Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Blaðsíða 57
57
þúfur, sem skera sig út úr umhverfinu og virðast kunna bera vott
um einhverjar gamlar mannvirkisleifar, en tóttarlag sjest ekkert. —
Enn sunnar og nær ánni markar S. G. aðra óljósa búð, er hann
segir vera Gríms Svertingssonar; sbr. Alþst. bls. 9, uppdráttinn og
skrána (nr. 6). B. G. setur þar nokkra punkta í ferhyrning, og
annan litlu vestar, suður undan þeirri búðinni, er hann setur nafn
Gríms Svertingssonar við. Hjá þessum ferhyrningum, sem eiga lík-
lega að tákna sjáanlegar, en óglöggar búðaleifar, setur hann: »Mark-
úsar og Skafta búðir*. Er það gert eftir búðaskipuninni sjálfsagt,
eins og öll þessi nöfn hjá þeim S. G og B G. báðum. — Á þeim
staðnum, sem nær er ánni, er ekki laust við að sjáist einhver óljós
verksummerki. Búðir þeirra Gríms og Markúsar lögsögumanns
munu hvergi nefndar og er næsta undarlegt að búðaskipunin skuli
segja, að þær hafi verið hjer um slóðir, en búð Skapta er óefað
sama búðin og nefnd er Ölvesingabúð í Njáls-s., og er ekki óeðlilegt
samkvæmt frásögnunum um liðsbónarfarirnar, að ímynda sjer að
hún hafi verið hjer sunnantil, nálægt öðrum búðum, sem hjer eiga
að hafa verið, enda er þetta sennilega sett með hliðsjón af þeim
frásögnum.
Enn hefir S. G. þózt sjá búðarleifar fast upp við hallinn vestur
frá Skapta-búð sinni, rjett fyrir vestan þá búð, er áður var sagt að
hann markaði óljósa og setti nafnlausa á uppdrátt sinn, um 30 m.
fyrir suðvestan 34. búð; og loks markar hann tvennar aðrar búða-
leifar fyrir sunnan þær, er hann kennir við Grím Svertingsson og
Markús lögsögumann, austanvið tjörn, sem þar verður í mýrinni.
Sjá uppdráttinn aftanvið Alþst.; en ekki hefir Ben. Gröndal borið
lit í þessar leifar, enda er hjer ekkert þesslegt að sjá, að ástæða
sje til að ætla að hjer hafi nokkur mannvirki verið.
Þess ber að geta, að fremur er votlent hjer um slóðir, alt
fyrir sunnan ranann, sem 30. og 31. búð standa á, þar eð landið
er lítið hærra en vatnsflöturinn og sennilega oft undir vatni þegar
hátt er í. Fyrir þvi geta búðarleifar, sem hér hafa kunnað að
sjást óljóst fyrir 60 árum, verið orðnar ógreinanlegar nú
Skulu nú ekki til tíndar hjer fleiri búðatóttir vestan árinnar,
en lögrjettu og lögbergs skal getið síðar.
C Búðir, búðaleifar o. fl austan ár.
Svo sem alkunnugt er, sjást nú harðla fáar búðaleifar austan
ár. Stendur þetta í sambandi við það er áður var sagt um bygging
þeirra búða, er nú er að finna á Þingvelli. Þær eru nær allar frá