Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Blaðsíða 59
59
við eystra hliðvegg nyrzt, nær 20 feta (=6,28 ra) á hvorn veg. í
króknum að sunnanverðu við útbygginguna sýndist hafa verið
grjótbálkur áfastur við hana um 16 fet (=5 m) á hvorn veg.
í honum miðjum eða þar um bil fannst rnikið af ösku, nokkur viðar-
kol og dálítið af nautsbeinum. — Sbr. enn fremur útgáfu S. V. af
uppdrætti B. G. með viðaukum eftir S. V. aftanvið Árb. 80—81.
Nú er þettá alt vallgróið aftur og óljóst hvar verið hafi hleðsl-
ur þær er S V. fann, nema gaflhlöðin eru bæði greinileg enn og
allhá. Fyrir vestari hliðvegg sjer og nokkuð, einkum sunnantil;
sumuleiðis má sjá hvar dyr þær hafa verið, sem S. V. getur um,
11—12 fet (um 3,50 m) frá norðurgafli að innan. Mál þau, er
S. V. tilgreinir, virðast hafa verið rjett. Norðurendinn er mjórri,
ura 20 fet nú (=6,28m ). — Fyrir útbyggingunni sjer nær ekki;
má þó sjá við hvað S. V. heflr átt, enda segir hann ljóst til þess.
— Alt er túnið þarna með óverulegum smáþúfum nú. — Tóttin er
ekki mörkuð á uppdrætti herforingjaráðsins, en á uppdráttum B. G.
og S. G. eru hjer markaðar 3 búðir, miðbúðin löng og glögg,
Byskupabúð, en óglögg búð við hvorn enda hennar; kalla þeir hina
nyrðri Síðu-Halls-búð og hina syðri Flosabúð (hina fyrri B. G.,
=Svínfellinga-búð, S. G.). Sbr. útgáfurnar af uppdráttunum og
Alþst. 23—24, þar sem S. G. skýrir ljóslega hvernig þetta hefir
komið þeim fyrir sjónir þá, og á hverju þessi heiti eru bygð, sem
þeir gefa búðum þessum, nefuilega búðaskipuninni frá 1700, og
hvað við víkur Byskupa-búð, almennri sögn jafnframt; en í búða-
skipuninni stendur: »Flose hafde ádur bud fyrer austan ana skamt
frá Sijdu Hallsbud, hvar sidar var B[ysku]ps Augmundar bud, vest-
an til vid Þingvallatrader: á hægre hónd í tunenu þá heim ad
kyrkiunne er ridid«.
I rauninni mun hvorki hægt að sanna þetta, nje ósanna. Eins
og Kálund og S G. hafa bent á eru allar líkur til, að búðir
Síðu-Halls og Flosa (Svínfellinga) hafi verið austan ár. Hin »al-
menna sögn« um Byskupabúð kann að vera bygð á búðaskipuninni,
en þó bendir nafnið Gyrðs-búð, sem er annað nafn eða hið þriðja
á þessari búð, á það, að sjerstök munnmæli hafi lifað um þessa búð, því
að ekki er það nafn í búðaskipuninni. Kemur þetta einnig heim
við það er Einar próf. Einarsen segir i brjefi sínu til S. G. 20. sept.
1863: »Fyrir austan ána veit jeg að nefna Skaptabúð á sjálfu
Lögbergi, og Gyrðisbúð uppá Biskupshólunum í túninu. Var það
leingi, að biskupar tjölduðu þá búð, og ekki mátti heimabóndi slá
hóla þessa, því þeir voru ætlaðir biskupshestum, unz seinustu bisk-