Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Page 21
21
B. Skarðbúðir.
8 Búð sú sem alþekí er undir nafninu Snorra búð; sbr. hjer
að framan. Hún er norðanvert við götuna í skarðinu í gjárbarm-
inn lægri, því er alfaravegurinn lá um, unz brúin var gerð yflr neðri
fossinn, þar sem áin fellur úr gjánni. Búð þessi er mjög veggja-
þykk og glögg, en hleðslur þó úr lagi gengnar. Hún snýr þvers-
um við gjána, eða nær frá austri til vesturs. Austurgaflhlað fláir
mjög að neðan og verður bogamyndað neðst, og er grjótdreif um-
hverfis með jarðvegi nokkrum í milli steina. Þar fyrir neðan, og
þó rjett við, er sem votti fyrir hálfhringmynduðum garði, eða öllu
heldur marghyrndri girðingu, þar sem miðveggurinn er 7,50 m. að
1., samhliða austurgafli búðarinnar, næstu veggir við, fyrir utan
hornin á búðinni, 5,50 m. hvor og hinir þriðju, sem eru meðfram
austurhluta búðarinnar og stefna á hana miðja, nokkru lengri, ef
sæjust, en þeir eru nú mjög óverulegir, nema helzt um 4 m. lang-
ur bútur af þeim nyrðri. Þetta munu þó engar girðingaleifar vera,
heldur stafa frá rannsókn S. V.1 Snorra-búð er sjálf að utanmáli
um 10,30 m. að 1. og 5,60 m. að br., en að innan um 6,50 og 2,30,
þar sem hún er gleggst. Dyr eru á suður-hliðvegg.
9. Við vesturenda búðarinnar 8., Snorra-búðar, er litil tóft á-
föst en öllu lægri, jafnbreið og um 5,40 m. að 1. að utanmáli, en
að eins 2,50 m. að 1. að innan, því að vesturgaflblað er þykt og
fláir að neðan. Flestir munu líta svo á, að þetta sje hluti af
»Snorrabúð« eða telja þetta tii hennar. En að sjá er það eldra en
aðalbúðin (8.) og mun þó ekki vera hluti af stærri búð hjer frá síð-
ari öldum, þannig að vesturgaflinn hafi verið svo sem færður inn,
heldur heflr hjer verið gerð sjerstök smátótt fyrir þingmannabúð —
eða eitthvað annað. I fornöld hefir Snorra-búð sjálfsagt verið svo
stór, að þessi tótt er innan þeirra takmarka, sem Snorra-búð hefir
þá haft. B. Gr. og S. G. marka á uppdrætti sína mjög stóra búð,
»Snorra-búð«, hjer með þeim búðatóttum innaní, sem nú sjást hjer;
ekki eins báðir þó. Við þessar tóttir, sem hjer eru nefndar búð 8.
og búð 9 setur B. G. nafn Magnúsar Olafssonar (lögmanns), og sýn-
ir hjer ekki tvær tóttir eða skifta tótt, heldur eina óskifta; S. Gr.
aftur á móti, skifta tótt, en ritar á spássiuna útundan: »Magnúsar
lögmanns Ólafssonar (= Snorrabúð2)*. í Alþst., bls 15—16, lýsir
1) Þessara garðbúta er getið hér vegna þess að þeir líta svona reglnlegir út
og snmir kunna að halda, að þeir sjeu leifar af fornu virki, eins og D. Bruun hjelt,
sjá Fortm. og Nuthj. bls. 209—10 og 215.
2) Á dálitla frummynd til uppdráttar sins, sem liklega er gerð 1860, hefir 8.