Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Side 50
fiö
þetta hjá B. G. heim við hana að því er við kemur þessari búð,
nje heldur búð Ásgríms Elliða-Grímssonar, svo sem siðar skal vikið
að; en S. G. heíir farið all-nákvæmlega eftir búðaskipuninni frá
1700 með búðanöfnin á sínum uppdrætti, að því er viðvíkur búð-
unum undir hallinum.
31. Rjett fyrir suðvestan 30. búð (amtmannsbúðin eldri), svo
sem 1,50 m. frá henni, er önnur tótt, sem snýr eins og er mjög lík
henni, eu þó heldur lægri og ellilegri. Eru dyr á þeim hliðvegg
miðjum, er að ánni veit, og er hjer lítið vik í árbakkanum niður-
undan. — Beint á móts við, hinu megin árinnar, er kirkjugarður-
inn. — Báðar eru þessar búðir, 29. og 30., á dálitlum hól, ílöngum,
svo sem sýnt er á uppdrætti herforingjaráðsins. — Þessi tótt er að
utanmáli 8,50 m. að lengd og 4,70 m. að br., en að innanmáli 5,50
m. og 1,70 m.
Nú virðist mjer sennilegast að búðaskipunin frá 1735 eigi við
þessa tótt, þar sem hún segir svo: Bud syslumanmens i Snœfellsness
syslu, Gudmundar Sigurdssonar, er á mots vid Þingvalla kyrkiu gard,
fyrer nordann ána uppa litlum Hool«. Þessi tilvísun kemur alveg
heim við stað þessarar búðar, nema að rjettara hefði verið að segja,
að hún væri fyrir vestan eða vestnorðan ána. Mjer hafði þótt lík-
legast, meðan jeg var í vafa um, hvar amtmannsbúðin hafi staðið
1700 og 1735, 30. búð, að sú tótt væri búðartótt Guðmundar sam-
kvæmt ofangreindri tilvísun. En nú fæ jeg ekki betur sjeð en að
tilvisanir beggja búðaskipananna um þessar og næstu búðir komi svo
bezt heim við þær tóttir, sem enn sjást hjer, að þetta (31.) sje búð-
artótt Guðmundar og amtmannsbúð næst fyrir norðan hana, þótt
undarlegt megi virðast, að búð Guðmundar skuli þá ekki í búða-
skipuninni vera miðuð við amtmannsbúð fyrst og fremst. — Raunar
segir þessi sama búðaskipun, eins og áður var getið um, að amt-
mannsbúðin sje fyrir sunnan ána á móts við Þingvallakirkju, en
þar hlýtur »sunnan« að vera misritun eða meinloka, ef til vill kom-
in af því, að höfundurinn er næsí á undan að tala um, hvar lög-
rjettan sje, og að þessi búð (amtmannsbúðin) er fyrir sunnan hana.
Hitt er þar á móti upplýsandi í þessu sambandi, að amtmannsbúð
er í búðaskipuninni sögð vera á móts við kirkjuna, en búð Guð-
mundar á móts við kirkjugarðinn; sýnir það að amtmannsbúð hefir
verið fyrir norðan búð Guðmundar. Hafi búð Guðmundar verið 30.
tótt, þá ætti eftir því amtmannsbúðin að hafa verið þar sem er 24.
tótt, þvi að 25.—29. tótt eru allar of óverulegar til þess að ætlað
verði um þær að nokkur þeirra sje amtmannsbúðartótt En bæði
er það, að 24. tóttin er helzti norðarlega til þess að geta heitið vera