Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 118
122
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
K—44. Hauskúpa, á hana vantar vinstra gagnaugabein, en er að öðru
leyti heil. Hún er úr fullvöxnum (adultus) einstaklingi, sennilega konu.
Óvíst er hvaða útlimabein eiga við þessa hauskúpu, en sennilegast eru
það K-46. Pau eru óvenjulöng af kvenmannsbeinum að vera en hins-
vegar grönn með rýrum vöðvafestum. Hauskúpan er einnig óvenju-
stór kvenhauskúpa, en að öðru leyti með kvenleg auðkenni.
K—44a. Vinstra herðablað, hægra viðbein, löngu leggbeinin úr vinstri
handlegg, en hin mikið sködduð. Beinin eru úr fullvaxinni (adultus)
konu.
K—45. Hlutar úr kúpuhvolfsbeinum, kinnkjálki og kjálkabolur. Bæði
herðablöð, viðbein, bæði upphandleggsbein, hægri sveif, hægri öln,
hægri lærleggur og sköflungur, öll mikið sködduð. Beinin eru úr um 16
ára unglingi (juvenilis), kyn óvíst.
K—46. (Á hugsanlega við K-44). Vinstra upphandleggsbein og sköfl-
ungur, heilleg. Mikið sködduð eru vinstri öln, báðir lærleggir, hægri
sköflungur, báðir dálkar og vinstri vala. Beinin eru sennilega úr fullorð-
inni (adultus) konu. Á beinum neðri útlima eru svartir blettir, e.t.v.
tjara.
K—47. Vinstra upphandleggsbein, hægri öln, hægri lærleggur og
vinstri sköflungur eru heil. Neðri helmingur af vinstri sveif. Beinin eru
sennilega úr fullvöxnum (adultus) karlmanni.
K—48. Vinstri sveif, vinstri sköflungur og hægra mjaðmarbein eru
heilleg. Á sköflungnum var vel gróið þverbrot neðan við miðju. Tals-
vert sködduð eru vinstri öln og hægri lærleggur. Beinin eru úr fullorðn-
um (maturus) karlmanni.
K-49. Neðri hluti af hægra upphandleggsbeini og brot af hægra
lærlegg. Beinin eru úr fullvaxinni (adultus) konu.
Um beinafundinn segir Gísli síðan í skýrslu sinni: Öll snúa beinin
eins og svo nærri austri, að erfitt er áhaldalaust að ákveða betur. Samt
fer þessi stefna illa í landslaginu, höfuðin hafa legið fram í brekkubrún,
en fætur vitað upp á móti túnhallanum. Engir munir fundust með bein-
unum og ekki vottur af járni eða ryði neinsstaðar. Líkin virðast hafa
verið grafin nrjög grunnt, að öllum líkindum innan við einn metra, auk
þess eru hvorki hendur né fætur krosslagðir, og þegar við það bætist,
að aðeins einn af þessum fimm sem athugaðir voru, var grafinn í kistu,
má fullyrða, að þessi greftrun liafi mjög fornlegan svip og líkan því,
sem var t.d. á Skeljastöðum í Þjórsárdal. (Sjá Forntida gárdar i Island
bls. 134-136).
Beinagrindurnar nr. 2, 3 og 4 liggja einnig svo þétt saman, að því