Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Page 170
174
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
lanHs. Var þetta mjög vönduð og athyglisverð sýning, en 26. nóvember
flutti dr. Haraldur Sigurðsson fyrrum bókavörður erindi um sögu
kortagerðar af íslandi og skýrði merkustu kortin á sýningunni. — Eim-
skipafélag íslands og Brunabótafélag íslands veittu mjög mikilsverðan
stuðning svo halda mætti sýninguna, en gestir urðu 1.230.
Þá var sett upp nokkuð óvenjuleg sýning í anddyri, ýmsir munir
tengdir jólahaldi fyrrum, gömul jólatré, jólaskraut, jólakort frá fyrri tíð
og ýmsar bækur um jólahald. Stóð sýningin frá því nokkru fyrir jól og
fram yfir þrettándann á árinu 1984. 15. desember flutti Árni Björnsson
safnvörður erindi um jólahald fyrrum og hvernig jólasiðir breyttust,
Bœndajól og borgarjó1 kallaði hann það. Var margt manna sem hlýddi á
erindið.
Þessar sýningar settu einkum upp þær Halldóra Ásgeirsdóttir for-
vörður, safnverðirnir Lilja Árnadóttir og Margrét Gísladóttir og einnig
Elsa E. Guðjónsson safnvörður hina síðustu.
Safnið lánaði ýmsa gripi á kirkjulistarsýningu, sem haldin var á Kjar-
valsstöðum um páskana og lánaði einnig altaristöflur í kirkjur, sem lán-
uðu sínar á sýninguna, en að öðru leyti tók safnið ekki þátt í henni.
Þá lánaði safnið ýmsa hluti á sýningu í Neuchátel í Sviss, sem haldin
var á miðju ári.
Skrifstofur og vinnustofur: í ágústmánuði voru skrifstofur safnsins og
starfsfólks fluttar niður á jarðhæð, þar sem áður var íbúð þjóðminja-
varðar, þótt ekki væri öllum breytingum lokið á húsnæðinu. Þarna
fékkst mjög góð vinnuaðstaða, sérstakur inngangur á skrifstofur,
aðskilinn frá inngangi í sýningarsali, eldhús og góð aðstaða á kaffistofu,
góð skjalageymsla, snyrting og fatageymsla og fjórar vinnustofur safn-
varða. Er áformað að tengja fleiri vinnustofur á suðurhlið hússins skrif-
stofúálmunni, og helzt þyrfti öll starfsemi safnsins að geta farið frarn á
einu svæði og aðskilin frá sýningar- og geymsluhúsnæði. — Bíða varð
með að smíða bókahillur í skrifstofugang, en þangað er hugmyndin að
flytja hluta bókasafnsins, sem er að sprengja utan af sér núverandi bóka-
stofu.
Húsvörður fékk til afnota herbergi það á annarri hæð þar sem kaffi-
stofa var áður og áformað er að safnbúðin flytjist inn í herbergi það,
sem áður var aðalskrifstofa.
Listasafni íslands var eftirlátin stofa sú, sem áður var skrifstofa
Þjóðminjavarðar.
Utbúin var bráðabirgðaaðstaða í geymslu fyrir forvörzlu, en textíl-
forvörður mun áfram hafa vinnuaðstöðu að hluta til í turni.