Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 19

Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 19
19 Lúter var þó ekki lengra kominn en það, að hann eigi að eins trúði að til var fjölkyngi og galdranornir, heldur vildi hann brenna þær allar. Og hann, mikli barnavinurinn, réði til að barni væri drekt, til að losa heimili þess við návist djöfulsins, því barnið væri getið af djöflinum. Erasmus heldur uppi hlífiskildi fyrir hjátrúnni og Bódín, sem af samtíð sinni var talinn »ce premier homme de la France« (fyrsti maður á Frakklandi), sá er Hallam segir um, að að eins tveir menn hafi verið hans jafnokar (að gáfum) Aristóteles og Machiavelli. Þessi maður getur ekki fundið nægilega sterk orð til að áfella mótmælenda lækni einn, Wier að nafni, fyrir það, að hann samdi ritgerð um »djöflaglapsýnina«, af því hann var sannfærður um, að margir þess- ara ólánsmanna væru vitstola, og vildi draga úr hinum skelfilegu þján- ingum þeirra. Bódín segir, að læknir þessi »hafi gengið á hólm við guð«. Hann hefði gert tilraun til að frelsa þá, sem heilög ritning og kirkjan hefði brennimerkt, sem verstu glæpamenn. Hann hefði jafn- vel verið svo ósvífinn að opinbera töfraformálana. Hver mætti nú án hryllingar hugsa til framtíðar kristindómsins eftir svo skelfilegar aug- lýsingar! Niðurstaðan sem Bódín kemst að, er einkennileg í mann- úðarsögunni: »Það eina, sem menn geta gert, er að hefja á ný of- sóknirnar með enn meira krafti«. — Og auðvitað fyrst og fremst hafa hendur í hári þessa góða Wiers. Með Bódín getur maður furðað sig á því, að kristindómurinn hafi iifað af — ekki árás Wiers, heldur þann hjátrúarinnar og hjartaleysis anda, sem lýsir sér í ritum Bódíns og margra fleiri, og játaður var í allri samtíðinni. Alt þetta hefir þó kristindómurinn lifað af. Enn hreinni og æðri hefir hann komið í ljós, eftir því sem framför í vísindum hefir losað mennina við ofstækisfullar trúarsetningar, sem þeir hafa útbúið, og rutt veginn að hreinni og eðlilegri skilningi og tileinkun sannleiks og kær- leiksandans, er Jesús einkennir sem sinn anda. Yfirleitt getum vér ályktað svo, að óbundið frelsi til að rannsaka alt á himni og á jörðu, andann og náttúruna, í stuttu máli alt, sem yfirleitt getur vakið spursmál í sálu mannsins, hljóti að skapa sann- leiksþrá og ryðja veginn fyrir anda umburðarlyndisins og um leið anda kærleikans. Skilyrðið fyrir hverjum rannsóknarárangri er svikalaus trú- menska við sannleikann, trúmenska, sem ekki hræðist innri bar- áttu né baráttu við valdhafana út á við. Trúmenska við sannleikann í kærleika verður að standa sem heilög yfirskrift yfir rannsóknar- verkinu. Og einmitt af því að sannleikans er leitað, kemur af sjálfu sér umburðarlyndið við aðra leitendur sannleikans, alstaðar þar sem svarið verður ekki gefið með sannfærandi krafti. Frá kristilegu sjónarmiði er lögmál náttúrunnar og lífsins fyrir- skipað af guði. Lögmál guðs í náttúrunni og lífinu getur ekki verið andstætt boðum hans í trúarbrögðunum. Fyrir því hlýtur, einmitt frá kristilegu sjónarmiði, öll áreiðanleg vísindaleg rannsókn þess- ara laga — auðvitað ekki allar fræðikenningar og ágizkunarkenningar 2’
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.