Eimreiðin - 01.05.1921, Síða 37
EIMREIÐIN]
KIRKJAN OG SPÍRITISMINN
165
sem eg hefi orðið að þola meira en sextíu ár, en aldrei
heíi eg sjálfur skotist í skjól, og skilið félaga minn eftir
úti í stormi og regni. Fáum mundi óljúfara en mér að
hverfa aftur, þótt eigi væri nema í huganum, til atvika á
genginni æfislóð, en það skal eg þó glaður gera, geti eg
með því móti flutt fegins orð eftirskildum ástvini; og geti eg
það ekki með öðru móti en því að hreyfa borð, eða berja
bjöllubumbu, þá skal eg hreifa borðið og berja bumb-
una. Eg ætla ekki að vera fastur á virðingunni, þegar
vinur minn er staddur í örvænting. Læt eg svo úttalað
um þessar tvær ólíku skoðanir okkar mr. Magee's.
Nú er nóg rætt um skoðanir! Við skulum komast að
staðreyndunum — þessum »ruddalegu staðreyndum«, er
hinum viðkvæmu tilfinningum dr. Inge1) býður við. Ást-
vinir vorir hafa látið oss verða vara við sig. Lífsföru-
nautur minn hafði staðið við hlið mína í hverri sorginni
eftir aðra og hverri rauninni eftir aðra, um nær því tutt-
ugu ára skeið. Síðustu tíu árin, sem hún lifði, var hún
nær því stöðuglega þjáð, bæði á sál og líkama. Fjáning-
arnar fóru alveg með líkamskrafta hennar, en þær gátu
engan veginn bugað þróttmikinn anda hennar. Síðustu
fimm árin, sem hún lifði, hefði það verið einskær ánægja
fyrir hana, hefði hún losnað við þrautirnar stundarkorn.
Fegar hún vaknaði á þriðja degi — deginum, sem er svo
merkilegur fyrir dulspekina — til meðvitundar um dýrðar-
líf það, sem hún hafði svo lengi þráð, hélt hún þá kyrru
fyrir og naut sælunnar, sem hún kunni svo vel að meta?
Nei, er eg stóð við kistuna, þá kom skyndilega yfir mig
bylgja himnesks unaðar; hver aldan eftir aðra af styrk og
fögnuði virtist streyma inn í mig allan. Tilfinningin var
bæði líkamleg og andleg — mér fanst sem eg væri í sam-
bandi við rafmagnsvirki. Hún varaði eigi aðeins augna-
blik, heldur stundum saman, og áhrifin hafa aldrei horfið.
Hvað var þetta annað en áhrifin frá fagnandi anda henn-
ar, sem hún lét yfir mig koma, þar sem eg var staddur
í hrygðarmyrkrinu? Slíkar tilfinningar eru mér annars
gersamlega ókunnar, því að eg hefi altaf verið þung-
1) Dr. Inge nafnkunnur prófastur í London, andstæður spíritismanum. Pýð.