Eimreiðin - 01.05.1921, Síða 74
202
SYKURPLONTUR
(EIMREIÐIN
til þess að regnið skoli ekki burtu næringarefnum úr jarð-
veginum.
þar sem vel hagar til, og gróðurskilyrði eru góð, getur
akurgróðurinn verið fjölær. Viða er góð uppskera i 5—10
ár, þótt ekki sé ræktað af nýju. Þess eru dæmi að sami
gróðurinn hefir borið góðan ávöxt í 50—60 ár og jafnvel
lengur, en þá verður jarðvegur og loftslag að vera hið
ákjósanlegasta. Á Vesturheimseyjum er gróðurinn á ökr-
unum sumstaðar þriær, en ofl er ræktað af nýju á hverju
ári. Á Java hefir það komið í ljós að afurðirnar verða
minni og gæðin lakari á öðru ári. Þar er því ræktað af
nýju á hverju ári og þar að auki skift um gróður. Er þá
fyrst sáð sykurreyr, þá ertublómum, þá mais og síðast rís.
Síðan er röðin endurtekin þannig að fyrst eru ræktuð ertu-
blóm, svo mais og þá rís. Að því loknu er sykurreyr
ræktaður aftur.
Það má svo sem nærri geta að áburðartilraunir hafa
verið framkvæmdar í stóruin stíl á sykurreyrsökrunum.
Ef mikið er af köfnunarefni, kali og fosfórsýru i jarðveg-
inum þarf engan áburð fyrst um sinn. En við hverja
uppskeru missir jörðin mikið af þessum efnum, og þar
kemur að lokum að oflítið er af þeim í jarðveginum. þá
þarf áburð. Hefir húsdýraáburður reynst best. Áburðurinn
á að vera hæfilega mikill. Að bera meira á en hæfilegt
er talið, er að kasta fé sínu á glæ. Sykrið verður hvorki
meira né betra fyrir þann áburð sem umfram er.
Þegar reyrinn er gróðursettur eru til þess notaðir græð-
lingar. Toppur jurtarinnar er skorinn af og fylgja þá efstu
liðirnir, en þeir eru fremur sykurlitlir, og bera brum-
hnappa. Efsti brumlausi hluti stöngulsins er skorinn af.
Á plægðum akri eru grafnar fetsdjúpar rennur með 3—4
feta millibili. Græðlingarnir eru gróðursettir í rennurnar
og látnir í holur, sem grafnar eru í rennubotninn. Rætur
vaxa fljótt og þvínæst vaxa Ijóssprotar 4—5 (sjá 2. mynd)
upp í ljósið og loftið. Meðan akurinn er að gróa verður
að verja hann fyrir illgresi. Eftir 8 mánuði er akurinn
um það fullsprottinn og reyrinn orðinn eins hár og hann
á að sér. Neðstu blöðin eru þá venjulega visin. Víða eru þau