Eimreiðin - 01.05.1921, Side 90
218
HKIMILISIÐNAÐUR
[EIMREIÐItf
heimilisiðnað og vér og höfðu haft frá því sögur hófust,
en hvervetna hefir forni heimilisiðnaðurinn horfið að meira
eða minna leyti. Hann hefir illa þolað samkepnina við
verksmiðjurnar. Þó fer því fjarri að hann hafi lagst niður
erlendis. Bæði hefir ýms forn heimilisiðnaður staðist alla
samkepni og nýr risið upp. Hve stórfenglegur hann er enn
i raun og veru má sjá t. d. i hinni ágætu bók Krapotkins:
Störf hugar og handar (Hándens og Hjærnens Arbejder). Eg
held að útlendur varningur hafi gengið meira í augu vor
en flestra annara, að villiþjóðum fráskildum1). Ýmislegt
bendir til þess að bæði sé heimilisiðnaðurinn réttmætur
og að framtíðarhorfur hans séu allgóðar, þrátt fyrir allar
vélar og vinnuskiftingu, en áður en eg reyni að gera grein
fyrir þessu vil eg taka það fram að sá heimilisiðnaður,
sem eg á einkum við, lýtur að nauðsynjastörfum og Qár-
afla eins og hver annar atvinnuvegur, en upp úr heimilis-
iðnaði, sem ekki borgar sig og gefur eitthvað í aðra hönd,
svo sem er um flest heklið og útsauminn, er ekki mjög
mikið leggjandi.
Eg vil þá fyrst benda á að heimilisiðnaðurinn stendur
að einu leyti betur að vígi, en jafnvel hin fullkomnasta af
verksmiðjum vorra daga. Það er svo ætíð í sveitum að
nokkurn hluta ársins er lími afgangs frá venjulegum
heimilisstörfum og sama má að visu segja um sjáfarpláss
vor og kauptún. Sá sem notar þennan afgangstíma til ein-
hvers nytsams starfs t. d. til þess að búa til prjónles
græðir nálega alt það, sem fæst fyrir varninginn að efninu
frá dregnu sem í hann fór. Verksmiðjan verður hinsvegar
að kaupa dýrt vinnuafl, kosta til dýrra bygginga, véla og
hreyfiafls, verður að borga heildsölum og smákaupmönn-
um mjög dýr sölulaun. Að þessu leyti var það lærdómsríkt
að sjá tóskaparheimilin i Eyjafirði, sem unnu prjónles til
útflutnings. Ungir og gamlir, allir sem bókstaflega gátu
vetlingi valdið, sátu allan veturinn og prjónuðu sokka og
sjóvetlinga í höndunum. Mér var sagt að dagkaupið við
1) Pað liefir farið líkt fyrir oss og Persum, sem Rask sagði að sumu lika oss.
Peim finst fátt um hin heimsfrægu persnesku teppi, sem par eru unnin, en dást
að bómullarklútum og verksmiðju-glysi Evrópuþjóðanna.