Eimreiðin - 01.05.1921, Síða 114
242
FRESKÓ
(EIMREIÐIti
Lögmaðurinn bafði sagt að »mótparturinn mundi standa
á móti«. Petta kuldalega orð risti hjarta mitt eins og hár-
beitt sveðja. Eg og hún fjandmenn, mótpartar i máli! í
rauninni væri ekkert í þessu máli, sem væri á nokkurn
hátt niðrandi fyrir okkur, hvorugt, og þó yrðum við fjand-
menn, óhjákvæmilega. —
En svo sagði lögfræðingurinn líka, að vel gæti verið, að
sá, sem nú hefði eignirnar og nafnið, léti undan strax, án
þess að til málaferla kæmi, þegar hann sæi, að öll skil-
riki væru óhrekjandi. Já, vafalaust. Hún mundi strax og
umyrðalaust ganga frá því öllu, þessi drambsama, fagra
frænka min! Hún mundi hafa sig á brott úr húsinu og
láta mig eftir i húsbóndasætinu og aldrei sjá mig framar.
Hvað hafði eg svo grætt á því öllu? Og er ekki þetta alt
hrein og bein drottinssvik, því að fyrir traust hennar og
góðvild og ekkert annað, hefi eg komist að þessu öllu.
Eg hefði annars aldrei vitað eða getað látið mér detta
í hug né hjarta, að móðir min hefði með fljótræðisflólta
sínum og ístöðuleysi bakað sér alt þetta tjón sjálf. Pað
væri skammarlegt, að nota mér þennan skjalafund til þess,
að ræna hana eignum hennar. Petta er úlfakreppan, sem
eg er í: Eg sé enga leið til þess að ná rétti mínum
nema þá, að skaða hana.
Og svo er eitt að athuga. Pegar hún kemst að því, að
eg segist vera sonur Alureds jarls og réttmætur erfingi,
þá er eg viss um, að hún biður alls ekki eftir neinum
dóm i málunum. Hún mundi fyrirlíta þá aðferð, að reyna
að verjast með lagakrókum. Hún mundi ganga frá öllu, og
leggja á mig ævilangt hatur. Og þó að hún væri svo
göfuglynd, að líta ekki á mig sem beinan valdaránsmann,
þá gæti hún aldrei fyrirgefið mér þetta tilvik. Hún hefir
fengið mér lykla að hirslum, til þess að eg gæti rann-
sakað fornar myndir, mest sjálfum mér til gamans, og eg
notaði það traust til þess arna! Hún lét mig njóta alls á
heimili sínu, og þá notaði eg tómstundirnar til þess að
grafa grunninn undan rétti hennar, þeim rétti, sem hvorki
hún, né nokkur annar, hafði getað efast um fram að þess-
um tíma. Jafnvel þó að hún héldi að öll þessi skjöl væru