Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Page 120
Sjera Jón Jónsson að Grenjaðarstað
118
halda dagbækur yfir sjúkdóma og lækningu þeirra i. sept.
1811. Dagbækur þessar eru nú í mínum fórum og ætla jeg
þeim að lenda í handritasafni Landsbókasafnsins.
Af dagbókunum sjest, að menn hafa leitað til sjera Jóns
eigi að eins úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, heldur og af öllu
Norðurlandi og Austurlandi, en þó voru þessir menn eigi mjög
margir, enda voru þá læknar lítið notaðir á íslandi sökum
þess, að lítið hafði verið til af þeim, og landsmenn höfðu eigi
vanist á að leita til þeirra.
Sjera Jón Jónsson var fæddur 15. oktober 1772 að
Stærra Arskógi í Eyjafjarðarsýslu. Foreldrar hans voru Jón
prestur Jónsson Gunnlaugssonar og Hildur Halldórs-
dóttir Hallssonar prests að Melstað í Miðfirði. Vorið 1776
fluttu foreldrar hans búferlum að Reynistað í Skagafjarðar-
sýslu. þá er Jón var 15 ára, fór hann í Hólaskóla og út-
skrifaðist þaðan ir. maí 1793 með góðum vitnisburði fyrir
gáfur, framför, iðni og siðgæði. Síðan var hann { hálft fimta
ár skrifari hjá Jóni Jakobssyni, sýslumanni í Eyjafjarðarsýslu.
16. sept. 1797 varð hann meðkennari við Hólaskóla, og
gegndi þeim störfum í 4 ár, uns Hólaskóli var afnuminn 1801.
Eftir tillögu stiftsyfirvaldanna flutti hann þá suður í Reykjavík,
og kendi þar við latínuskólann í tvö ár; þá fekk hann Möðru-
vallaklausturs prestakall og var vígður 1. apríl 1804. Hann
flutti þá norður, og gerði bú að Auðbrekku f Hörgárdal og
bjó þar til 1816, er hann fekk að hafa brauðaskifti við sjera
Árna Halldórsson í Stærra Árskógi. Settist hann þá að á
fæðingarstað sínum og þjónaði því brauði í 11 ár, uns hann
vorið 1827 flutti að Grenjaðarstað, sem konungur veitti hon-
um 13. desember 1826. Þar bjó hann síðan alla æfi og
þjónaði því prestakalli til 1854, er hann fekk leyfi til þess
að afhenda stað og kirkju sjera Magnúsi syni sínum, sem þá
gerðist aðstoðarprestur hans. Sjera Jón hafði þá þjónað
prestsembætti í rjett 50 ár. Þess má geta að 16. maí 1849
var síra Jón sæmdur riddarakrossi, og sýnir það, að lands-
stjórninni, og sjer í lagi Grími amtmanni Jónssyni, sem lagði
til að hann yrði riddari, þótti hann vera mikill nytsemdar-
maður; á þeim tímum var það mikil viðurkenning að fá
riddarakrossinn, og munu eínungis tveir prestar á íslandi hafa
fengið hann áður.
Sjera Jón andaðist að Grenjaðarstað 17. júní 1866, og
var þá á 94. árinu.
Sjera Jón giftist fyrst 1794, og hjet kona hans Krist-
rún Guðmundsdóttir. Hún andaðist 6. ágúst 1800, og