Aldamót - 01.01.1901, Page 72
hafa spyrnt á móti broddunum, þeim mun vænna þyk-
ir mönnum um þaö, þegar mótspyrnan er a5 síðustu
látin niöur falla.
III.
Nú sem stendur er allur hinn kristni heimur tví-
skiftur út af þessu, eftir því sem eg bezt fæ séö. Ann-
ars vegar stendur hin svo-nefnda vísindalega guðfræði,
-—háskólakennarar í guöfræði víös vegar í hinum kristnu
löndum. þeir halda nú níjög eindregið fram hinum
nýja skilningi á guðs orði og guðlegri opinberun og
virðast í flestum aðalatriðum að vera býsna samdóma.
Árið 1892 kom út bók ein á þýzkalandi um innblástur
heilagrar ritningar eftir prest einn, Rohnert að nafni,
sem heima á í Waldenbmg. Bókin er rituð til að
verja hina gömlu skoðun gegn hinum nýju og er rituð
frá hinu strangasta bókstafstrúar sjónarmiði, sem nokk-
urn tíma hefir verið haldið fram í lútersku kirkjunní.
Einmitt höfundur þeirrar bókar segir, að hann þekki
einungis einn einasta guðfræðiskennara á þýzkalandi,
er haldi enn fram óskeikulleika (Irrtumslosigkeit) ritn-
ingarinnar, og nafngreinir hann um leið (und das ist
der Herr Prof. D. Nösgcii). það ætti því að mega
taka orð hans trúanleg, því vænlegri hefði vörnin orð-
ið fyrir hann, ef hann hefði getað bent á einhverja
fleiri lærða guðfræðinga þar á þýzkalandi, er litu á
málið frá hans sjónarmiði. En þvert á móti tilfærir
hann orð allra helztu guðfræðinganna, sem mest hafa
ritað og allur heimur lengi hefir borið lotningu fyrir, til
að sýna fram á, hve hörmulega þeir séu fallnir frá í
þessu atriði. þetta á sér ekki stað einungis á þýzka-