Aldamót - 01.01.1901, Page 84
84
lögmálsins sett á bekk meö hinum dýrlegustu á-
kvæöum fjallræöunnar.
Hinar ytri ástæöur fyrir því, aö biblían sé guö-
innblásin bók segir guöfræöingurinn Hollaz að séu
þessar:
1. Aldur hennar; hún er eldri en allar aðrar bækur.
2. Ljós hugsun og sannleiksást höfundanna og þrá þeirra eftir
þekkingu og sannleika.
3. Dýrð kraftaverkanna, er staðfesta hina himnesku kenningu.
4. Samhljóða vitnisburður kirkjunnar, sem dreifð er um allan
heiminn, um guðdóm heilagrar ritningar.
5. Stöðuglyndi píslarvottanna.
6. Vitnisburður heiðinna þjóða um kenningu heilagrar ritningar.
7. Hve vel og fljótt það gekk að útbreiða kenningu kristindóms-
ins um heim allan, og hve dásamlega hún varðveittist í
margföldum ofsóknum.
8. Hin ógurlega þunga hegning, er hatursmenn og ofsækjendur
kristindómsins hafa orðið fyrir.
Þegar menn svo eru búnir að hugsa um þessar
ytri ástæður og láta þær undirbúa hjörtu sín, er tími
til að telja upp hinar innri ástæður fyrir því, að biblí-
an sé guðs orð. Þær hljóða svo:
1. Hátign drottins, sem vitnarum sjálfan sig í heilagri ritningu.
2. Einfeldnin og alvaran í stíl biblíunnar.
3. Hve háleitir hinir guðlegu leyndardómar eru, sem ritningin
opinberar.
4. Sannleikur allra staðhæfinga biblíunnar.
5. Helgi allra boðorða, er biblían hefir meðferðis.
5. Fullnæging heilagrar ritningar til sáluhjálpar.
Síðast af öllu er bent á það, er Lúter lagði alla
áherzluna á. Vitnisburð heilags anda í hjarta manns-
ins. En hinar aðrar ástæður eru orðnar svo margar,
að það ber svo sem ekkert á þessari síðustu.
Eg hefi leitast við að gjöra svo nákvæma grein
fyrir þessu og tilfæra allar þessar ástæður orðrétt, til
þess menn gætu nú tekiö þær fyrir sig og spurt sjálfa