Aldamót - 01.01.1901, Side 156
156
betur aö sér til bókarinnar, en fólk í öörum löndum.
Þar næst er sögö mentunarsaga nokkurra helztu land-
anna, að þvf er alþýðuskólana snertir: Danmerkur,
Þýzkalands, Englands ogsvo Færeyjaog Islands. Kem-
ur þaö þá áþreifanlega í ljós, að vér erum langar leið-
ir á eftir siðuðum þjóðum að því er mentun alþýðu
snertir. Jafnvel Færeyingar eru langt á undan oss.
Þeir hafa komið sér upp kennaraskóla í Þórshöfn; þar
þurfa kennaraefni að vera þrjú ár við nám. Alþýðu-
skólakennarar fá þar 500—600 krónur í laun, og eftir-
laun fyrir sjálfa sig og ekkjur sínar. Þó á nú að bæta
kjör þeirra töluvert. I Reykjavík er skólagjald hér
um bil 1 króna á mann, en það er meira en helmingi
minna en í fátækustu bæjunum í Danmörku. A bls.
163 farast höf. svo orð:
„Hérálandi er engin skólaskylda, sem þó er lífsskilyrði sið-
menningarinnar; börnum er hér á landi veitt margfalt minni fræðsla
en í nágrannalöndunum; hér er lagt margfalt minna til hennar, en
hjá öllum þjóðum með mótmælenda trú; hér er jafnvel lítið sem ekk-
ert eftirlit haft með því, hver not verða af því fé, sem lagt er til ment-
unar börnum og unglingum; hér eru engar skýrslur um fræðslu barna;
hér er enginn kennaraskóli; hér er enginn verulegur unglingaskóli cg
hér er engin yfirskólastjórn, sem sér um mentun barna og unglinga.
Það er látið ganga eins og það bezt gengur, eða réttara sagt, eins og
það verst gengur. * ‘
í þeim kafla, sem ókominn er af ritgjörðinni, ætl-
ar höf. að sýna fram á, að mentun alþýðu má ekki
lengur byggjast á fræðslunni í heimahúsum, svo fram-
arlega hún eigi nokkuð að færast í lag, að tilsögn
sveitakennaranna er öldungis ófær grundvöllur, en að
koma verði upp alþýðuskólum víðs vegar í sveitum
landsins, er börn og ungmenni geti annað hvort geng-
ið á frá heimilum sínum eða haft vist á um námstím-
ann, að stofna verði einn unglingaskóla í Reykjavík
fyrir land alt og sömuleiðis eins góðan kennaraskóla
og framast séu föng til. En öll eigi kenslumálin að
vera undir umsjón skólastjórnar, er bráð nauðsyn sé
til að setja. Þetta kann nú landanum að þykja nokk-