Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 9
9
Ástæðurnar til þess, að Danir, sem bæði eru miklir bú-
menn og búfjárræktarmenn, hurfu frá hinni gömlu tilhög-
un við að dæma nautin, en reistu afkvæmarannsóknarstöðv-
ar um allt landið, voru tvær:
1. Sæðingar, sem hófust í Danmörku 1938, höfðu náð
geysilegri útbreiðslu, og því töldu þeir knýjandi nauðsyn að
fá nautin fullreynd sem yngst.
2. Stríðsárin höfðu svo truflandi áhrif á fóðrun kúnna og
uppeldi, að hin gamla aðferð við að dæma nautin með sam-
anburði dætra og mæðra hafði gersamlega hrunið saman, og
þótt hún enn sé höfð til hliðsjónar, þá er hin nýja afkvæma-
rannsókn fyrst og fremst samanburður á nautum.
Eigi er mér kunnugt um, að afkvæmarannsóknarstöðvar
fyrir naut séu starfandi annars staðar á Norðurlöndum en í
Danmörku, að undanskilinni einni slíkri stöð í einkaeigu
í Svíþjóð. í Bretlandi var slíkri stöð komið á fót í Yorks
1953, en hvort hún starfar enn og hver útbreiðsla þessara
rannsókna hefur orðið þar í landi veit ég eigi. l'að er því
athyglisvert, að árið 1952 hefjast nautgriparæktarsambönd-
in á Suðurlandi handa um að stofna slíka stöð á Laugar-
dælum, og árið 1955 kaupir S. N. E. jarðeignina Lund við
Akureyri, ásamt áhöfn, byggingum og eyðibýlinu Rangár-
völlum, sem áður taldist til Glæsibæjarhrepps en er nú í
lögsagnarumdæmi Akureyrar, og hefur nú reist þar prýði-
lega búfjárræktarstöð. Hafa þegar tvö fyrstu nautin verið
afkvæmarannsökuð þar árið 1957/58 og tvö til viðbótar eru
nú í rannsókn.
Uppbygging og aðdragandi.
Þegar Lundur var keyptur fylgdu honum allmiklar bygg-
ingar og ræktun, því þar hafði verið rekinn myndar-búskap-
ur um langt skeið. Því fór þó fjarri, að byggingar þessar
gætu fullnægt nema að litlu leyti starfsemi þeirri, sem nú
átti að reka þar, því auk þess sem þær voru of litlar, voru