Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 10
10
1. mynd. Búíjárræktarstöðin Lundur við Akureyri
The Breeding Station at Lundur near Akureyri
þær allmjög úr sér gengnar og skipun þeirra og innrétting
úrelt. Ræktunin var líka of lítil og þarfnaðist umbóta.
S. N. E. hefur því orðið að leggja þarna í mjög miklar og
kostnaðarsamar framkvæmdir og endurbætur. íbúðarhúsið
hefur fengið mikla viðgerð. Nýtt fjós fyrir 48 kýr hefur ver-
ið byggt, ásamt 2000 heyhesta hlöðu, áburðargeymslum,
kjarnfóðurgeymslu og mjólkurhúsi. Eldri gripahúsunum er
nú verið að breyta í nautafjós og sæðingarstöð, en hvort
tveggja er, að sæðingarstöðin hefur frá upphafi búið við
algerlega ófullnægjandi húsnæði, og að hún verður að
hverfa frá Grísabóli, þar sem hún nú er. Talsverð fram-
ræsla hefur verið gerð bæði á Lundstúninu og einnig á
Rangárvöllum og ræktaðir að nýju yfir 30 ha. Þó mikið
hafi þegar verið gert á búfjárræktarstöðinni er margt enn
þá ógert. Þannig vantar t. d. enn þá hentugar byggingar
fyrir uppeldið, en íslenzkar afkvæmarannsóknir hafa þá sér-