Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Blaðsíða 45
47
búfræðipróf frá búnaðarskólanum á Eiðum, mun hafa ver-
ið Asmundur Jóhannesson, frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði.
Mun hann hafa útskrifazt þaðan um eða rétt fyrir 1890,
því vorið 1891 vann liann að þúfnasléttun hjá bændum á
Sléttu, Kristjáni í Leirhöfn, Guðmundi á Grjótnesi og
fleiri bændum á Sléttu. Er talið, að liann hafi fyrstur manna
komið með undirristuspaða til afnota við þúfnasléttun, en
áður höfðu menn orðið að nota torfljá til ofanafristu.
Ekki er vitað með fullri vissu, hversu lengi þetta fyrsta
búnaðarfélag, er stofnað var í Presthólahreppi, starfaði með
fullum krafti, því fundargerðir hafa ekki verið skráðar
nerna fyrstu árin, en ýmislegt bendir til, að starfsemi þess
liafi mjög verið farin að dragast saman er leið að alda-
mótunum.
Þann 7. maí 1892, var stofnað búnaðarfélag í Öxarfjarð-
arhreppi. Aðal hvatamaður þess var Páll Jóhannesson, bóndi
og síðar hreppstjóri að Austara-Landi, og voru stofnendur
aðeins 9 að tölu.
Ekki verður sagt, að stofnun Búnaðarfélags Öxfirðinga
hafi markað veruleg tímamót í búnaðarframförum í hreppn-
um, þó allmikið væri unnið að jarðabótum á félagssvzeðinu,
einkum Þúfnasléttun, á fyrstu árum félagsins. Því bæði var,
að ekki gengu í félagið nema nokkur hluti af bændum
sveitarinnar, og svo virðist sem áhugi á umbótum og skiln-
ingur á félagslegu samstarfi liafi verið mjög takmarkaður
nema lijá forgöngumönnunum. Þó var þúfnasléttun ekkert
nýtt fyrirbæri í hreppnum, því Björn Jónsson, bóndi og
hreppstjóri í Sandfellshaga, Páll Jóhannesson, bóndi Aust-
ara-Landi, og fleiri bændur, höfðu um nokkur undanfarin
ár unnið talsvert að þúfnasléttun með augsýnilega góðum
árangri. En vegna þess, hversu fámennur þessi félagsskapur
var og þar af leiðandi getulítill, gekk erfiðlega að halda
félaginu uppi og var því það ráð tekið að sameina það Bún-
aðarfélagi Presthólahrepps, er var endurvakið skömmu eftir
aldamótin.