Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 49

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 49
51 Þórshafnar, mun hafa verið gjörð hjá Árna Davíðssyni, Gunnarsstöðum. Eftri 1915 fór nokkuð að draga úr framkvæmdum Bún- aðarfélags Þórshafnar, enda gengu þá úr félaginu bændur úr Þistilfirði, er verið höfðu þar félagsmenn frá fyrstu tíð og ætíð drjúgir liðsmenn. Fyrir forgöngu þeirra Jóhannesar Árnasonar, bónda á Gunnarsstöðum og Ólafs Þórarinssonar, bónda í Laxárdal, var þann 12. júní 1915, stofnað Búnaðarfélag Þistilfjarðar. Var það vonum seinna en við hefði mátt búast, að Þistil- firðingar stofnuðu sitt eigið búnaðarfélag, því vitað er með vissu, að þá voru liðin að minnsta kosti 45 ár frá því að fyrst var farið að vinna að jarðabótum þar í sveit. Eitt af fyrstu verkum Búnaðarfélags Þistilfjarðarhrepps var að kaupa jarðyrkjuverkfæri, er það svo lánaði félags- mönnum. Seinna hélt það uppi vinnuflokkum, er unnu að jarðabótum allt sumarið. Búnaðarfélag Þistilfjarðar gerðist brátt athafnasamt og hugkvæmt og hafði mörg járn í eldi. Það annaðist eftirlit með fóðurbirgðum og fóðrun búpenings í hreppnnm og innan vébanda þess var stofnað kynbótafélag fyrir sauðfé, og er sá kynbótastofn nú talinn einn af beztu sauðfjárstofn- um landsins. Þá hefur þar verið komið á laxaklaki og lax- veiðar starfræktar með góðum árangri. Eins og áður er getið, fór að draga úr framkvæmdum Búnðarfélags Þórshafnar eftir 1915, og eftir 1920 má telja, að það væri hætt störfum. En bændur á Langanesi undu því ekki, að ekki væri starfandi búanðarfélag í hreppnum. Var svo í apríl 1924 stofnað Búnaðarfélag Langnesinga, er hef- ur starfað síðan. Aðalhvatamaður að stofnun félagsins og fyrsti formaður þess var Jónas Helgason, búfræðingur frá Árseli, síðar bóndi í Hlíð. Búnaðarfélag Langnesinga var um skeið eitt fjölmenn- 4'

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.