Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Qupperneq 58
Aðal viðfangsefni fundarins var að ræða um stofnun og
starfræksfu Sambandsins. Var að loknum umræðum sam-
þykkt samhljóða að stofna Búnaðarsamband Norður-Þing-
eyinga. Þá voru samþykkt lög fyrir Sambandið, kosin stjórn
og samin fjárhagsáætlun.
Stofnun Búnaðarsambands Norður-Þingeyinga, ber bænd-
um héraðsins fagurt og órækt vitni um djarfhug og félags-
þroska og sýnir meðal annars, að þeir höfðu þrek og djörf-
ung til að troða nýjar brautir, því þetta var fyrsta sýslu-
búnaðarsambandið, sem stofnað var hér á landi. Og þar með
var rofið hið viðurkennda Búnaðarsambandakerfi, er búið
var að setja upp og Búnaðarfélag íslands og ríkisstjórn hafði
lagt blessun sína yfir. Auk þess var vitað, að Ræktunarfélag
Norðurlands leit þessa Sambandsstofnun óhýru auga og
taldi þetta uppreisn gegn yfirráðarétti þess og forystu í bún-
aðarmálum á Norðurlandi.1') En vegna hinnar öruggu og
traustu aðstöðu, er Sambandið hafði innan héraðs, kveið
það ekki utanhéraðs andstiiðu, þótt sú yrði reyndin á, að
andstaða Búnaðarþings og Búnaðarfélags fslands yrði hinu
nýstofnaða Sambandi erfiðari, en þeir svartsýnustu höfðu
látið sér til hugar koma og verður vikið að því í öðrum
kafla.
1) Ég held, að höf. mikli fyrir sér andstöðu mína og Ræktunarfé-
lagsins. Hvað mig áhrærir, þá lagði ég áherzlu á, að Bf. ísl. og Búnaðar-
þing veitti Rf. Nl. þann styrk til sambandsstarfsemi, er því bar að
réttu, og gerði því kleift að styðja búnaðarsamtök og búnaðarframfarir
í hinum ýmsu héruðum innan vébanda Rf. Nl., en eftir að sýnt varð,
að þetta fékkst ekki án þess að kljúfa Ræktunarfélagið í mörg smærri
sambönd, stóð ég eigi gegn þeirri þróun og studdi hana jafnvel með
því að vinna að stofnun eins sambandsins, þótt ég sé þeirrar skoðunar,
að skipting Rf. Nl. í sex sambönd hafi að sumu leyti veikt samtökin
og að þessi nýju sambönd ættu að hafa meiri samstöðu en orðið hefur.
Það kom í ljós þegar, er þessi skipan var á komin, að þá sá Bún-
aðarþing sér ekki fært að rýra styrkinn til Rf. Nl. neitt að ráði, en
veitti hinum nýju búnaðarsamböndum verulegan styrk, er það áður
hafði neitað að veita til búnaðarsambandsstarfsemi Rf. Nl. Ó. J.