Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 60
62
sviði landbúnaðar, er að gagni mætti koma á Sambands-
svæðinu. Þá hefur stjórnarnefndin annazt allar fjárreiður
Sambandsins og aflað því fjár eftir beztu getu tii nauðsyn-
legra útgjalda. Einnig hefur hún boðað til funda, undirbú-
ið málefni þau, er lögð hafa verið fram og séð um fram-
kvæmd þeirra ályktana, er Sambandsfundir hafa samþykkt.
Þá hefur stjórnarnefnd og ráðið menn til starfa fyrir Sam-
bandið eftir þörfum, annazt alla reikningsfærsiu og nauð-
synlegar bréfaskriftir.
Meðan styrkir frá Búnaðarfélagi íslands voru veittir í
einu lagi til Búnaðarsambandanna í Norður- og Suður-
Þingeyjarsýslu, voru það stjórnarnefndir Sambandanna, er
áttu að annast skiptin. En þar sem þau fóru venjulega fram
í Húsavík eða á Laxamýri, var það oft erfiðleikum bundið
og dýrt að sækja þá fundi. Var formanni B. S. N. Þ. venju-
lega falið að annast skiptin fyrir þess hönd, og gengu þau
greiðlega eftir að búið var að finna viðunandi skiptagrund-
völl. Var niðurstaða skiptanna oftast þannig, að B. S. N. Þ.
fékk rúmlega y3 af þeirri upphæð, er til skipta kom.
Á stofnfundi B. S. N. Þ. var Sigurpáll Jónsson, bóndi í
Klifshaga, kosinn endurskoðandi reikninga Sambandsins,
og gegndi hann því starfi tii 1932. En 1933 var Baldur Öx-
dal, bóndi og hreppstjóri að Sigtúnum, kosinn endurskoð-
andi og hefur gegnt því starfi síðan.
Áður en B. S. N. Þ. var stofnað, annaðist Ræktunarfélag
Norðurlands jarðabótamælingar og leiðbeiningar í jarðrækt
hér í sýslu. En um leið og B. S. N. Þ. tók til starfa, tók það
mælingar og leiðbeiningarstarfsemi í sínar hendur og hefur
annazt þær síðan.
Fyrsti mælinga og starfsmaður Sambandsins var Guð-
mundur Björnsson búfræðingur frá Grjótnesi. Annaðist
hann allar jarðabótamælingar á Sambandssvæðinu, leið-
beindi bændum í jarðrækt og búfjárrækt og var ráðunaut-
ur stjórnarnefndarinnar um allar búnaðarframkvæmdir.
Guðmundur Björnsson var mikill áhugamaður um allt, er