Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Síða 78
80
6. Þessi tillaga kom frá Fjárhagsnefnd:
„Fundurinn heimilar, að framvegis verði Arsritið gefið út aðeins einu
sinni á ári og sendist aðeins þeim ævifélögum, sem undanfarið hafa
greitt tilskilið áskriftargjald til félagsins." — Samþykkt samhljóða.
7. Tekið var fyrir erindi Gísla Kristjánssonar, er hann flutti fyrr á
fundinum. Tóku margir til máls og urðu umræður fjörugar. Undir um-
ræðunum kom fram eftirfarandi tillaga frá Hafst. Péturssyni:
„Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands beinir þeirri áskorun til
Búnaðarþings, að það vinni að aukinni leiðbeiningu í garðrækt á næstu
árum á félagssvæði Ræktunarfélags Norðurlands, þar sem ekki hefur
verið unnt að sinna óskum manna um leiðbeiningar í þessum málum.“
Samþykkt í einu hljóði.
8. Kosningar. a) kosinn í stjórn Steindór Steindórsson til þriggja
ára; b) endurkosinn og varam. í stjórn til næstu þriggja ára Sigurður
O. Björnsson: c) kosinn varamaður f stjórn til næsta árs Þorsteinn
Davíðsson; d) kosinn varamaður í stjórn til næstu tveggja ára Armann
Dalmannsson.
í fundarlok flutti Steindór Steindórsson, formaður Ræktunarfél.
þakkir til fundarins fyrir það traust, sem honum var sýnt með endur-
kosningu í stjórn. Vék hann um leið þakkarorðum til ýmsra þeirra, er
stutt hafa að hugðarefnum Ræktunarfélags Norðurlands fyrr og síðar.
Formaður, Steindór Steindórsson, minntist þess, að íslen/k kartöflu-
rækt ætti 200 ára afmæli á þessu ári og þakkaði forgöngumanni kart-
öfluræktarinnar hér á landi, Birni Halldórssyni.
Fleira ekki tekið fyrir til bókunar.
Fundargerð upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið.
STEINDÓR STEINDÓRSSON.
fíaldur Raldvinsson. Guðm. Jósafatsson.