Frjáls verslun - 01.04.1997, Page 8
FRETTIR
Þennan fimm dollara ástralska seðil fékk Frjáls verslun í Landsbanka íslands. Eins og myndin
ber með sér er auðvelt að skola af honum rykið. Fullyrt er að slíkir seðlar þoli að fara í þvottavél.
FV mynd: Geir Ólafsson.
SEÐLAR SEM MA ÞVO
eningaseðlar úr
pappír eru af-
skaplega forgengi-
legir hlutir. Þeir rifna,
upplitast, leysast í sundur
í vatni og stöðugrar end-
urnýjunar er þörf. Astr-
alski seðlabankinn hefúr
fyrstur banka í heiminum
hafið útgáfu peningaseðla
úr plasti og er nú svo
komið að allir ástralskir
dollaraseðlar eru plastpen-
ingar. Frá þessu er skýrt í
nýlegu heftí af Economist.
Astralir sjá marga kosti
við plastseðla og nefna
meðal annars að erfiðara sé
að falsa plastseðla, þeir
rifni siður og endist þar af
leiðandi lengur og þoli jafn-
vel þvott. Þannig er pen-
ingaþvætti allt í einu orðið
fremur hversdagslegt at-
hæfi. Ástralsld seðlabank-
inn hefur einnig gert fram-
leiðslu plastseðla að út-
flutningsgrein þvi þar eru
prentaðir seðlar fyrir nokk-
ur önnur ríki sem hafa stig-
ið þetta skref inn í 21. öld-
ina. Það eru td. Thailand,
Brunei og Vestur-Samóa.
Hafa ber í huga að i því
heita og raka loftslagi sem
títt er á suðurhvelinu end-
ast hefðbundnir pappírs-
peningar enn skemur en
hér norður við heim-
skautsbaug.
Fyrirtæki í Bandaríkj-
unum sem kallar sig
Duranote segist vera í
viðræðum við seðlabanka
24 landa sem sjái sparn-
að og hagræðingu í því að
nota plastpeninga. Varla
þarf að taka fram að þeg-
ar ævi plastpeninga Iýkur
eru þeir að sjálfsögðu
endurunnir og verða að
plastpokum eða ruslaföt-
um eða einhverju nýti-
legu.
Jón Friðsteinsson, að-
algjaldkeri Seðlabanka
Islands, sagðist aldrei
hafa heyrt um peninga-
seðla úr plasti þegar
Frjáls verslun innti hann
eftir framgangi þessa
máls hér á Islandi. Hann
upplýsti hins vegar að
hver seðill færi 5-7 sinn-
um í gegnum bankakerf-
ið á hverju ári og ending-
artími þeirra væri mis-
langur eða allt frá 11
mánuðum sem er líftími
1.000 króna seðils upp í
25.4 mánuði sem er
meðalaldur 5.000 krón-
anna.
Hver peningaseðill
kostar 7-11 krónur í
framleiðslu og nýlega var
gengið frá pöntun á seðla-
birgðum sem endast ættu
næstu 2 ár að minnsta
kosti.
GEVALIA
- Pað er kaffið Sími 568 7510
8