Morgunblaðið - 10.02.2001, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
LEIKÁRIÐ sem nú stendur yfir er
skemmtilegt fyrir margra hluta sak-
ir. Það er fjölbreytt, skemmtilegt og
úr nógu að velja. Það sem er þó
skemmtilegast er hversu mikið er af
nýjum íslenskum leikritum og fátt er
ánægjulegra en að sjá ungt hæfi-
leikafólk mæta til leiks.
Nýjasta íslenska sýningin á fjöl-
unum er Já hamingjan, eftir Krist-
ján Þórð Hrafnsson, gamanleikur
sem kemur virkilega á óvart. Sér-
staða hans felst í þeirri djúpu alvöru
sem býr á bak við slípaðan og kóm-
ískan texta. Texta sem veitir leikur-
unum tveimur, sem fara með hlut-
verk eldri og yngri bróður, glettilega
gott tækifæri til þess að skapa eft-
irminnilegar persónur.
Í leikritinu segir frá tveimur
bræðrum sem standa frammi fyrir
því að hagsmunir þeirra skarast og
upphefst samtal sem er æði dæmi-
gert fyrir samskipti í fjölskyldum.
Það einkennist af tilraunum til
beinnar og óbeinnar stjórnunar,
valdatogstreitu sem oftar en ekki er
byggð á veikum rökum, útúrsnún-
ingum og óheiðarlegum viðbrögðum.
Verkið er skrifað af merkilega miklu
innsæi og skilningi á nánum mann-
legum samskiptum með öllum þeim
gildrum sem í þeim felast. Það er
bráðskemmtilegt, vel leikið og skilur
mikið eftir sig. Þetta er verk sem
unnendur góðs leikhúss ættu ekki að
láta framhjá sér fara.
SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR,
blaðamaður.
Já hamingjan
Frá Súsönnu Svavarsdóttur:
ÞAÐ sem vekur mesta athygli varð-
andi dóm Hæstaréttar í öryrkjamál-
inu eru viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Í
stað þess að boða forráðamenn Ör-
yrkjabandalagsins strax á sinn fund
og biðjast velvirðingar á að á þeim
hafi verið gerð stjórnarskrár- og
mannréttindabrot sl. sjö ár og óska
eftir samvinnu um útfærslu á leiðrétt-
ingum kjarasamninga þeirra reiðir
ríkisstjórnin strax til höggs undir for-
ustu forsætisráðherra og fær m.a.
lögmenn úr kunningjahópi hans til að
gera drög að frumvarpi og túlka nið-
urstöður dóms Hæstaréttar í öryrkja-
málinu. Ætli þjóðin hafi nokkurn tíma
áður orðið vitni að öðru eins klúðri
ríkisstjórnar sem einkenndist af
hroka og yfirgangi á öryrkjum og
áfram er haldið á sömu braut með
frumvarpi, sem virðist áfram brjóta
mannréttindi þessa fólks. Hér verður
ekki tekin til umfjöllunar hin lög-
fræðilega hlið þessa máls, heldur hinn
siðferðilegi grundvöllur sem lýtur að
sjálfræði og sjálfsvirðingu öryrkja.
Ein af mikilvægustu stoðum sjálfræð-
isins er virðing einstaklingsins og við-
urkenning á sjálfstæði og að skoðanir
hans og þarfir séu metnar til jafns við
aðra þjóðfélagsþegna. Réttindum Ör-
yrkjabandalagsins hefur verið ítrekað
hafnað í gegnum árin vegna geðþótta-
ákvarðana stjórnvalda. Frelsi öryrkja
er stórlega skert til athafna og
ákvarðana vegna efnahagslegs ósjálf-
stæðis.
Viljaskortur
og lítilsvirðing
Viljaskortur ríkisstjórnarinnar að
leysa þessi mál í sátt og samlyndi við
Öryrkjabandalagið hefur gengið fram
af þjóðinni. Sama gildir um kjör ellilíf-
eyrisþega og fleiri minnihlutahópa í
þjóðfélaginu. Það er skoðun mín að
ríkisstjórnin hafi sjálf lagt á sig
þyngstu álögurnar og byrðir og þeir
munu uppskera eins og til var sáð.
Aðdáun og hrifning ríkisstjórnarinn-
ar á auðhyggju og óheftri markaðs-
hyggju sem leitt hefur yfir þjóðina
einokun og fákeppni er háskabál sem
vegur að almenningshagsmunum og
lífskjörum. Skynsemi, dugnaður og
þrautseigja Öryrkjabandalagsins á
eftir að skila þeim vel áleiðis í kjara-
og réttindamálum sínum og verða
jafnframt öðrum sem standa höllum
fæti mikill ávinningur. Þeir hafa barið
lengi og fast á dyr ríkisstjórnarinnar
og unnið sinn stærsta sigur, en leiðin
er löng að settu marki þegar dóm-
greind viðsemjandans skortir allt
réttlæti. Flokkshlýðni og fylgispekt
þingmanna ríkisstjórnarinnar í þessu
máli undirstrikar enn og aftur að þeir
greiða ekki atkvæði samkvæmt sann-
færingu sinni heldur valdboði og leið-
sögn forustunnar. Er það lýðræði
þegar þingmenn eru dregnir í dilka
eftir pólitískum eyrnamörkum gegn
betri vitund? Hinar hörðu umræður
um öryrkjamálin hafa náð augum og
eyrum landsmanna og þeir tekið af-
stöðu. Þjóðin hefur risið upp gegn of-
ríki ríkisstjórnarinnar og lögbrotum
gegn Öryrkjabandalaginu og vonandi
nær þessi þjóðfélagsvakning til hinna
fjölmennu hópa, sem búa við afar bág
lífskjör, margir hverjir langt undir fá-
tæktarmörkum. Það er augljóst að
ríkisstjórnin óttast málefnalega af-
stöðu þjóðarinnar og beitir öllum til-
tækum fjölmiðlum máli sínu til fram-
dráttar. Það blása kaldir vindar um
ríkisstjórnina, skoðanakannanir sýna
mikið fylgistap og mikill ótti er kom-
inn í raðir Framsóknarflokksins.
Undirgefni flokksins í samstarfi við
íhaldið á eftir að verða honum mikil
þrautaganga, flokksfylgið fellur til
hægri og vinstri og miðjan stendur
strípuð eftir. Hin taumlausa fylgi-
spekt við íhaldið hefur reynst þeim
dýrkeypt.
KRISTJÁN PÉTURSSON,
fv. deildarstjóri.
Siðferði og
sjálfsvirðing
Frá Kristjáni Péturssyni: