Morgunblaðið - 10.02.2001, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 10.02.2001, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 73 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú ert réttsýnn og ráðagóð- ur og þess vegna sækja svo margir í þig, að þú þarft að læra að verja þig. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Nú er rétt að taka aftur til við verk, sem þú slóst á frest fyrir nokkru. Með réttu verklagi kemstu hjá mistök- um og klárar þig af þessu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Gættu þess að gefa ekki neitt það í skyn sem þú getur ekki eða vilt ekki standa við. Blekkingar geta dregið ljót- an og leiðan dilk á eftir sér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Takist þér ekki að koma mál- stað þínum til skila undan- bragðalaust áttu á hættu að allt fari út um þúfur. Temdu þér því skýran málflutning. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Því fylgir alltaf nokkur spenna, þegar takast þarf á við nýja og óvænta hluti. En þú hefur ekkert að óttast því menntun þín bjargar þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Í fjármálum er nauðsynlegt að reyna að sjá sem lengst fram í tímann; reyna að gera sér grein fyrir því hvernig landið liggur í meginatrið- um. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þeir sem hafa skilning til kunna vel að meta framlag þitt. Ef þú vilt sannfæra hina líka þarftu að grípa til sér- stakra ráðstafana. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vertu óhræddur við að standa upp og krefjast rétt- ar þíns. Ef þú sýnir sann- girni munu aðrir verða fljót- ir til að fallast á málflutning þinn. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Stundum verður þú að sætta þig við að aðrir stjórni ferð- inni. Vertu þá samstarfsfús ef þú á annað borð getur hugsað þér þetta verklag. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er alltaf best að horfast í augu við raunveruleikann og haga orðum og gerðum í samræmi við hann. Annað kallar bara á tóm vandræði. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Fyrst aðrir eiga auðvelt með að fella sig við forystu þína, skaltu veita þeim þá leiðsögn sem þú veist sannasta og besta. Virðing þín mun aukast. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þeir sem hvörfluðu frá þér, koma nú aftur, þegar þú hef- ur staðið við þitt og stendur með pálmann í höndunum. Taktu þeim af auðmýkt og lítillæti. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reiknaðu ekki með að aðrir leggi allt upp í hendurnar á þér. Þú verður að hafa fyrir hlutunum sjálfur og munt svo uppskera eins og þú sáir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. KANTAR er ekki alls varn- að! Hér er dæmi úr bók hans Advanced Bridge Defense þar sem hann stenst ekki mátið að leiða fram mikil- væga varnarreglu. Hún er þessi: Þegar kóng er spilað út gegn samningum á fimmta þrepi eða ofar er makker beðinn um að sýna lengd í litnum – ekki kalla eða vísa frá. Þú ert í vestur: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ DG863 ♥ 10843 ♦ KD5 ♣ 7 Vestur ♠ ÁK975 ♥ KG7 ♦ 42 ♣ G63 Vestur Norður Austur Suður -- -- 3 lauf 3 tíglar 4 lauf 4 tíglar Pass 5 tíglar Pass Pass Pass Þú vilt vita lengd makkers í spaða og kemur því út með kónginn. Makker lætur tvistinn (sem er stök tala samkvæmt hinni gamaldags hefð) og suður fylgir með fimmu. Hvað nú? Bersýnilega má taka ann- an slag á spaða og ef makker á laufásinn fer spilið beint niður. En ef ekki er hjarta- kóngurinn mikill vonarpen- ingur. En það verður að bíða eftir þeim slag og Kantar kemur vel orðum að vanda vesturs þegar hann segir: „Kill the spades before they kill you!“ Norður ♠ DG863 ♥ 10843 ♦ KD5 ♣ 7 Vestur Austur ♠ ÁK975 ♠ 2 ♥ KG7 ♥ 9652 ♦ 42 ♦ 9 ♣ G63 ♣ KD109542 Suður ♠ 104 ♥ ÁD ♦ ÁG108763 ♣Á8 Dreptu spaðalitinn áður en hann drepur þig, og það er gert með því að spila smáum spaða í slag númer tvö og láta makker trompa. Að öðrum kosti geturðu kvatt hjartakónginn – „hann gæti fengið slag í öðru spili en ekki þessu!“ BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson SAMHLIÐA Corus ofur- stórmeistaramótinu í Wijk aan Zee fór fram svokallað B-mót sem var í 10. styrk- leikaflokki. Fyrirkomulag skákhátíðarinnar í Wijk aan Zee er þannig að sá sem vinnur B-flokkinn fær að ári að taka þátt í ofur- stórmeistaramótinu. Stað- an kom upp í móti þessu á milli hollenska stórmeist- arans Friso Nijboer (2578) og Nico Vink (2335). Stór- meistarinn hafði hvítt og valdi fallega leið til sigurs. 36. Dxf6! 36. Bxf6 hefði einn- ig leitt til vinnings en textaleikurinn er áferðafallegri. 36...Ha7 Svartur yrði mát eftir 36... gxf6 37. Bxf6#. 37. De6 Dxe6 38. Bxe6 og svartur gafst upp. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Mikhail Gure- vich (2694) 8 vinn- inga af 11 mögulegum. 2. Teimour Radjabov (2483) 7 ½ v. 3.-4. Thomas Luther (2544) og Friso Nijboer (2578) 7 v. 5. P Harikr- ishna (2514) 6 ½ v. 6. Karel Van der Weide (2463) 6 v. 7.-8. Boris F. Gulko (2622) og Dennis De Vreugt (2452) 5 ½ v. 9. Manuel Bosboom (2439) 5 v. 10. Yge Visser (2442) 4 v. 11. Nico Vink (2335) 2 ½ v. 12. Erik Hoeksema (2382) 1 ½ v. Úrslitum atskákmóts Ís- lands verður framhaldið í dag og fer keppnin fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Áhorfendur eru velkomnir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Árnað heilla LJÓÐABROT ANDLÁTSORÐ Heyr, himna smiðr! hvers skáldit biðr; komi mjúk til mín miskunnin þín; því heit ek á þik, þú hefr skaptan mik; ek em þrællinn þinn, þú ert dróttinn minn. Guð! heit ek á þik, at þú græðir mik; minnsktu, mildingr! mín, mest þurfum þín; ryð þú, röðla gramr ríklundr ok framr! hölðs hverri sorg ór hjarta borg. Gæt, mildingr! mín, mjök þurfum þín, helzt hverja stund á hölða grund, sendu, meyjar mögr! málsefnin fögr (öll er hjálp af þér) í hjarta mér. Kolbeinn Tumason. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. september sl. í Stórólfs- hvolskirkju á Hvolsvelli, af sr. Sigurði Jónssyni í Odda, Guð- rún B. Ægisdóttir og Kjartan Jóhannsson. Heimili þeirra er í Lambastekk 11, Reykjavík. Hlutavelta Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu 1.835 kr. Þau heita Kristbjörg Þöll Sívertsen, Þorkell Ingi Eiríksson, Hjörleifur Sívertsen, Stefanía Karen Eiríksdóttir og Vilborg Pála Eiríksdóttir. Morgunblaðið/Kristinn MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Rvk Og þetta er bara komið með 45.000 flugtíma. FRÉTTIR KIWANISKLÚBBURINN Setberg í Garðabæ stóð nýlega fyrir þorrablóti aldraðra Garðbæinga. Góð þátttaka var í þorrablótinu og voru gestir rúm- lega 150. Bragi Hlíðberg spilaði á harmonikku undir fjöldasöng og dansi og tóku gestir virkan þátt í dansinum, en margur maðurinn var eins og hann væri að dansa á réttarballi, þvílíkt var fjörið. Ingrid Hlíðberg las skemmtisögur og flutti brandara við mikinn fögnuð viðstaddra. Kiwanismenn ásamt Sinawikkonum mættu vel við undirbúning og þátttöku blótsins. Aldraðir Garðbæingar voru ánægðir og þökkuðu vel fyrir sig. Þorrablót eldri borgara í Garðabæ Þór Ingólfsson stjórnar hátíðinni við undirleik Braga Hlíðberg. Útsala! 10—50% afsláttur Úlpur Kápur Jakkar Pelskápur líta út sem ekta Opið laugardaga frá kl. 10—16    Mörkinni 6, sími 588 5518 NÁMSKEIÐ Í BAK- OG ANDLITSNUDDI helgina 17-18 febrúar frá kl. 14-18 báða dagana Slökunarnudd með ilmolíum (andlit, háls, herðar, handleggir, hendur og bak), þrýstipunkta- og svæðanudd. Verð kr. 14.000 og 400 kr. afsláttur fyrir pör. Sérmenntaður kennari með 15 ára reynslu. Upplýsingar og innritun í símum 552 1850 og 896 9653 frá kl. 10.30 til 11.30 virka daga og í síma 562 4745 milli kl. 18 og 19 virka daga. HAFÐU HRAÐAN Á! VERSLUNINNI SÓLHOFINU LOKAÐ Einstakt handverk og gjafavörur með afslætti Opið alla helgina Sólhofið, Laugavegi 28, s. 552 1800 Skammdegisþunglyndi Orsök - afleiðing - úrræði Fyrirlestrar - umræður og fyrirspurnir frá málþingi NLFÍ 30. jan. sl. um skammdeg- isþunglyndi má finna á heimasíðu okkar: www.heilsuvernd.is Berum ábyrgð á eigin heilsu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.