Morgunblaðið - 03.03.2001, Síða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN TRAVEL NETWORK
fyrir frábærar ferðir
Suður-Afríka
HEIMSREISA FYRIR
SÓLARLANDAVERÐ!
Ætlarðu að missa af?
Páskar 2001 – 8.-16. apríl
– aðeins 3 vinnudagar.
Pöntunarsími
56 20 400
Síðustu forvöð!
grafar en Karl Hallbjörnsson, Jak-
ob Bjarnason, Björgvin Herjólfs-
son, Reimar Pétursson, Valva Pét-
ursdóttir, Frosti Pétursson,
Ingólfur Björnsson og Gunnar
ÚTFÖR Björgvins Vilmundarson-
ar, fyrrverandi bankastjóra Lands-
banka Íslands, fór fram frá Frí-
kirkjunni í gær.
Fjöldi fólks fylgdi Björgvin til
Björnsson báru kistuna. Séra
Hjörtur Magni Jóhannsson frí-
kirkjuprestur þjónaði fyrir altari og
einsöng annaðist Ólafur Kjartan
Sigurðarson.
Morgunblaðið/Golli
Útför Björgvins Vilmundarsonar
TOLLGÆSLAN mun herða eftir-
lit með farþegum og varningi sem
kemur frá Bretlandi vegna gin- og
klaufaveikifaraldurs sem þar geis-
ar. Þá stendur til að hengja upp
veggspjöld í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar til að minna fólk á smithætt-
una.
Ríkisstjórnin ákvað í gær að
verja þremur milljónum króna til
að efla varnir gegn því að sjúkdóm-
urinn berist hingað til lands.
Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að hugsanlegt væri að
ferðamönnum sem koma frá Bret-
landi verði gert að ganga yfir e.k.
sótthreinsimottu við komuna til
landsins. Þetta væri þó ekki einfalt
í framkvæmd enda hafi slíkt ekki
áður verið gert hér á landi.
Hann segir að um leið og gin- og
klaufaveikifaraldur greinist í öðr-
um löndum en Bretlandi verði
gripið til svipaðra ráðstafana
vegna ferðamanna þaðan. Halldór
segir erfitt að meta hversu lengi
þessar varúðarráðstafanir muni
standa. Það fari eftir framvindu
mála í Evrópu.
Í Morgunblaðinu í gær var aug-
lýsing frá yfirdýralækni þar sem
kemur fram að embættið muni
ekki veita undanþágur fyrir inn-
flutningi á hráu kjöti frá Bretlandi
né öðrum óunnum landbúnaðar-
vörum.
Eiga helst við þá sem fara
um landbúnaðarhéruð
Halldór segir ljóst að berist gin-
og klaufaveiki til landsins hafi það í
för með sér verulegan kostnað fyr-
ir ríkissjóð. Sýkt dýr eru umsvifa-
laust felld og skrokkum þeirra
eytt. Ríkissjóður er skuldbundinn
til að greiða bændum bætur komi
til slíks.
Yfirdýralæknir hefur sent frá
sér ráðleggingar um smitvarnir
vegna gin- og klaufaveikisfarald-
urs í Bretlandi. Þar segir að farald-
urinn virðist ekki vera í rénun og
eigi menn erindi til Bretlands sé
mikilvægt að gæta fyllstu varúðar
við heimsóknir þangað, til að eiga
ekki á hættu að bera með sér smit
hingað heim.
Halldór segir að þessar leiðbein-
ingar eigi helst við þá sem fara um
landbúnaðarhéruð Bretlands.
Minni hætta sé á að þeir sem ein-
ungis ferðast um borgir beri með
sér smit. Engu að síður fer yfir-
dýralæknir fram á það við alla þá
sem koma til landsins frá Bretlandi
að þeir skipti um skó og föt fyrir
komuna.
Halldór segist bjartsýnn á að
ferðamenn fari eftir þessum til-
mælum, enda miklir hagsmunir í
húfi.
Í leiðbeiningum yfirdýralæknis
segir að menn skuli forðast snert-
ingu við dýr, sérstaklega klaufdýr.
Halldór telur þó litla hættu á að
smitefnið berist í fíkniefnaleitar-
hunda á Keflavíkurflugvelli.
Þá er vakin athygli á því að
ferðamenn mega alls ekki taka
með sér hrá matvæli til landsins.
Sem stendur sé þó skynsamlegra
að sleppa því alveg að taka með sér
soðið kjöt eða unnar kjötvörur. Að-
spurður um innflutning á unnum
kjötvörum frá Bretlandi segir
Halldór að ekki sé ástæða til að ótt-
ast að smit berist með þeim hætti.
Engin áform séu uppi um að banna
slíkan innflutning.
Halldór bætir við að dýralæknar
um allt land hafi verið beðnir um að
vera á varðbergi gagnvart sjúk-
dómnum og ræða við bændur um
varnir. „Við erum í viðbragðs-
stöðu,“ sagði Halldór.
Berst með fólki og fatnaði
Í ráðleggingunum yfirdýralækn-
isins segir enn fremur: „Smitefnið
dreifist auðveldlega með lifandi
dýrum, afurðum þeirra, fólki og
fatnaði. Smithætta er því veruleg
samfara heimsóknum í héruð þar
sem sjúkdómurinn hefur komið
upp, en einnig getur verið hætta á
smiti í þeim héruðum þar sem
sjúkdómurinn hefur ekki enn verið
greindur, því sýkt dýr skilja út
veiruna sem veldur sjúkdómnum
áður en sjúkdómseinkennin koma í
ljós.“
Yfirdýralæknir hvetur ferða-
menn sem eiga erindi til Bretlands
að hafa hrein föt og skó í plastpoka
til að fara í við heimferð. Öll föt
sem notuð hafa verið í Bretlandi
skal setja í plastpoka strax eftir
notkun. Sama gildir um skófatnað.
Notuðu fötin frá Bretlandi þarf að
þvo eða fatahreinsa strax eftir
heimkomu. Skó þarf að hreinsa og
sótthreinsa með t.d. Virkon S, eða
öðru sambærilegu efni, sem unnt
er að fá hjá dýralæknum, eða versl-
unum sem selja vörur til landbún-
aðarins. Skóna ætti ekki að nota í
fimm daga eftir sótthreinsun.
Yfirdýralæknir biður ferðamenn
að forðast ferðalög um landbúnað-
arsvæði og fara alls ekki í heim-
sóknir á sveitabæi.
Tollgæslan hyggst
herða eftirlit með far-
þegum frá Bretlandi
Yfirdýralæknir hvetur þá sem ferðast
um Bretland til að sýna varúð
ALLHARÐUR árekstur varð á
Hafnargötu í Keflavík um klukk-
an 16 í gær og urðu talsverðar
skemmdir á bílum. Minniháttar
meiðsl urðu þó á fólki og segir
lögreglan bílbeltum að þakka að
þau urðu ekki meiri. Um aftaná-
keyrslu var að ræða.
Tveir sjúkrabílar fluttu fólk
sem var í bílunum undir læknis-
hendur á sjúkrahús til aðhlynn-
ingar.
Að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík urðu nokkrir árekstrar í
Reykjanesbæ í dag, m.a. á Fitjum.
Fólk hefur þó lítið meiðst í þess-
um árekstrum en nokkurt tjón
varð á bifreiðum.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Tveir sjúkrabílar og margir lögreglubílar voru sendir á vettvang.
Allharður árekstur í Keflavík
RÚMLEGA 77% landsmanna telja
að landsmenn eigi að fá að greiða
atkvæði um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar en ekki aðeins Reykvík-
ingar. Er þetta meðal niðurstaðna
í skoðanakönnun sem Hollvinir
Reykjavíkurflugvallar fengu Price-
waterhouseCoopers til að annast
síðustu dagana í febrúar. Atkvæða-
greiðslan á að fara fram 17. mars
næstkomandi.
Spurningin sem lögð var fyrir
1.200 manns um land allt á aldr-
inum 18-75 ára hljóðaði þannig:
Eiga Reykvíkingar einir að ráða
því hvort miðstöð innanlandsflugs
verður áfram í höfuðborginni eða
telurðu að allir landsmenn eigi að
fá að greiða atkvæði um flugvall-
armálið?
Af þeim sem tóku afstöðu sögðu
77,7% að allir landsmenn ættu að
fá að greiða atkvæði en 22,3%
töldu Reykvíkinga eina að fá að
greiða atkvæði. Sé litið á íbúa á
landsbyggðinni sérstaklega er
hlutfall þeirra sem telja að allir
landsmenn eigi að fá að taka þátt
86,3% en 13,7% telja að Reykvík-
ingar einir ættu að greiða atkvæði.
Meðal höfuðborgarbúa eingöngu
er hlutfall þeirra sem telja málið
varða alla landsmenn 68,9% en
31,1% telja að Reykvíkingar einir
geti tekið þátt.
Styður sjónarmið
Hollvina
Friðrik Pálsson, formaður Holl-
vina Reykjavíkurflugvallar, segir
að samtökin telji mikilvægt að vita
um afstöðu allra landsmanna til
þess hverjir ættu að fá að ráða
framtíð flugvallarins.
„Við vildum vita hvort þetta
væri skoðun landsmanna og ekki
síður hvort þetta er skoðun Reyk-
víkinga. Okkur fannst við verða
mikið vör við mikinn áhuga og
skilning meðal Reykvíkinga að
þetta væri ekki eingöngu mál
þeirra,“ sagði Friðik og kvað það
enda koma í ljós í niðurstöðum
könnunarinnar.
„Okkur finnst þetta sláandi nið-
urstaða og hún styður þessi sjón-
armið okkar að fleiri en höfuðborg-
arbúar eigi að fá að segja álit sitt.“
Hollvinir Reykjavíkurflugvallar
kanna afstöðu til atkvæðagreiðslu
Yfir 77% telja flug-
vallarmálið snerta
alla landsmenn