Morgunblaðið - 03.03.2001, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 9
! "
$ "
Glæsilegt úrval
af vorfatnaði
við öllu tækifæri
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Opið lau.–sun. kl. 15–18, þri.–fim. kl. 20.30–22.30
eða eftir nánara samkomulagi. Ólafur.
Visa- og Euro-
raðgreiðslur
Eitthvert besta úrval landsins af
vönduðum gömlum dönskum
húsgögnum og antikhúsgögnum
Gili, Kjalarnesi
s. 566 8963/892 3041Antikhúsgögn
Langur
laugardagur
Nýjar vörur m.a.
sundbolir, bikini o.fl.
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473.
Laugavegi - s. 552 4045
NLPnám
• Langar þig til að veita hæfileikunum
þínum frelsi?
• Að skapa jákvæðar breytingar?
• Að ná ennþá betri árangri?
• Þá er NLPnám fyrir þig.
Alþjóðlegt nám hefst í Reykjavík 30. mars
2001, fyrsti hluti af þremur. Upplýsingar í
síma 896 3615, Ragnhildur. Hrefna B. Bjarnadóttir
Neuro-Lingvistisk-Programmering
Ath. stærðir 36-56
Full búð af nýjum vörum frá MERRYTIME
MERRYTIME
í Reykjavík
HEILDSALA Á „WARM UP“
MICROFLÍSFATNAÐI
FYRIR KONUR
Opið milli kl. 11 og 15 laugardag.
SPOR Í RÉTTA ÁTT
HÖFÐATÚNI 12, 2. HÆÐ
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ís-
lenska ríkið af kröfum konu, sem
fór fram á rúmar 10 milljónir króna
í bætur fyrir ætluð læknamistök.
Hæstiréttur er sammála þeirri
niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavík-
ur að þegar litið sé til álits lækna-
ráðs, athugunar á aðgerðalýsingu,
sjúkraskráa, röntgenmynda og
framburðar vitna, svo og skoðana
sérfróðra meðdómsmanna, þá hafi
konunni ekki tekist að sanna þá
fullyrðingu að ótilhlýðilega hafi
verið staðið að læknismeðferð
hennar.
Konan var lögð inn á barnadeild
Landspítalans í október 1979, þá
tæplega 12 ára gömul, vegna mik-
illa verkja í hnjám. Í kjölfarið voru
allir liðþófar fjarlægðir úr hnjám
hennar á árunum 1980 og 1981 með
fjórum skurðaðgerðum. Eftir að-
gerðirnar kenndi hún verulegra
óþæginda, sem háðu henni mikið og
leiddu til 35% örorku.
Konan hélt því m.a. fram í málinu
að ekkert hefði gefið til kynna að
réttlætanlegt hefði verið að fjar-
lægja liðþófana. Aðgerðir læknis
hefðu gengið of langt miðað við það
sem fram hefði komið í sjúkra-
skýrslum hennar, sem hefðu verið
um margt ónákvæmar, ef ekki bein-
línis rangar, og ósamræmi á milli
þeirra innbyrðis.
Hæstiréttur bendir á að að áliti
læknaráðs, siðamáladeildar þess og
landlæknis hafi verið staðið tilhlýði-
lega að greiningu og meðferð kon-
unnar miðað við einkenni, niður-
stöðu rannsókna og viðurkenndar
læknisaðferðir þess tíma. Héraðs-
dómur var staðfestur, með þeirri
athugasemd Hæstaréttar að ekkert
hefði komið fram fyrir réttinum,
sem veitti efni til að hnekkja þeirri
niðurstöðu.
Ekki staðið
rangt að
meðferð
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ hef-
ur beint þeim tilmælum til starfs-
fólks innan heilbrigðisgeirans að láta
af notkun svokallaðs Catgut-saums
við skurðaðgerðir vegna gruns um
að saumurinn kunni að vera sýktur
af kúariðu. Saumurinn er í vissum
tilvikum framleiddur úr nautgripa-
görn. Saumurinn er m.a. fluttur inn
frá Evrópu og því eru ákveðnar líkur
á efni í honum, sem koma frá sýktum
svæðum, beri smit.
Að sögn Sigurðar Guðmundssonar
landlæknis er notkun saumsins hér-
lendis lítil núorðið, eða við 1–5% að-
gerða. Líkurnar á smiti eru taldar
einn á móti milljón, en engu að síður
var talið rétt að vara við notkun
saumsins, enda eru ýmsar aðrar
gerðir saums sem nota má í staðinn.
Sigurður tekur fram að engin dæmi
séu um að menn hafi sýkst af kúariðu
vegna notkunar saumsins.
Varað við notk-
un saums við
skurðaðgerðir
♦ ♦ ♦
VERSLUNIN ELKO í Kópavogi
býður þeim sem geta veitt upplýs-
ingar um þjófnað á tölvum og raf-
tækjum í eigu verslunarinnar fund-
arlaun, að sögn Jónasar Guðmunds-
sonar rekstrarstjóra hjá ELKO.
49 tölvum og fjölda raftækja var
stolið úr gámi verslunarinnar sem
stóð við Norðurbakka Hafnarfjarð-
arhafnar aðfaranótt þriðjudags.
Heildsöluverðmæti hlutanna er um
6,5 milljónir króna en útsöluverð
þeirra nemur um 10–12 milljónum.
Jónas biður þá sem hugsanlega
geta veitt upplýsingar um þjófnað-
inn að hafa annaðhvort samband við
ELKO eða lögregluna í Hafnarfirði
sem fer með rannsókn málsins.
Elko heitir
fundarlaunum
♦ ♦ ♦