Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 32
LISTIR
32 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSHILDUR Haraldsdóttir og
Margrét Stefánsdóttur flautuleik-
arar og Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari koma fram á tónleikum í
Neskirkju á morgun, sunnudag, kl.
17. Á efnisskrá verða verk fyrir tvær
flautur og tvær flautur og píanó frá
öllum tímabilum flautubókmennt-
anna.
Dagskráin samanstendur af sjö
verkum: Fyrir hlé verður fluttur
Konsert í G-dúr eftir Cimarosa, Dúó
fyrir flautur eftir Robert Muczynski
og Dúett nr. 4 í F-dúr eftir W.F.
Bach. Á seinni hluta tónleikanna
flytja þær Tríósónötu í G-dúr BWV
1039 eftir Johann Sebastian Bach,
Þríhyrnu eftir Atla Ingólfsson,
Masque eftir Toru Takemitsu og
Rigoletto-Fantaisie op. 83 eftir
Franz og Karl Doppler.
Áshildur kemur reglulega fram
sem einleikari með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands.
Margrét hefur komið fram sem
einleikari víða og spilað með hljóm-
sveitum í Bandaríkjunum, Þýska-
landi og á Íslandi. Hún er flautu-
kennari við Tónlistarskóla Kópa-
vogs.
Nína Margrét hefur um árabil
verið í fremstu röð íslenskra hljóð-
færaleikara. Hún hefur komið fram á
fjölda einleiks- og kammertónleika á
Íslandi, Evrópu, Bandaríkjunum og
Kanada. Hún hljóðritaði píanóverk
dr. Páls Ísólfssonar á síðasta ári fyr-
ir BIS Gramophone, og verk Mend-
elssohns fyrir fiðlu og píanó ásamt
Nicholas Milton fyrir Naxos-útgáf-
una árið 1998 og er sá diskur vænt-
anlegur á markað í apríl 2001.
Flautubókmenntir
í Neskirkju
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Margrét Stefánsdóttir og Áshildur Haraldsdóttir flautuleikarar. Í bak-
grunni er píanóleikarinn Nína Margrét Grímsdóttir.
GUNNÞÓR
Guðmundsson,
heimspeking-
ur, rithöfund-
ur, skáld og
listmálari á
Hvamms-
tanga, er
þessa dagana
að setja upp
málverkasýn-
ingu í Eden í
Hveragerði. Gunnþór lærði að
mála á níræðisaldri, en hann er
fæddur árið 1916 í Lækjakoti í
Víðidal í Vestur-Húnavatns-
sýslu og uppalinn þar líka.
„Ég hélt málverkasýningu í
félagsheimilinu á Hvamms-
tanga í fyrrahaust í tengslum
við sameiginlega skemmtun
starfsfólks og vistfólks þar
sem safnað var fyrir píanói
fyrir sjúkrahúsið. Ég var með
um 50 myndir þá. Þetta verður
önnur einkasýning mín og nú
verða myndirnar eitthvað
fleiri, eða 70–80,“ sagði Gunn-
þór í samtali við Morgunblaðið
í gær. Myndirnar eru ýmist
gerðar með litakrít eða akrýl-
litum. Þetta er sölusýning og
verður hún opnuð upp úr há-
degi í dag og mun standa út
mánuðinn. Kveðst listamaður-
inn reikna með því að dvelja
sjálfur í Hveragerði allan þann
tíma.
Með sýn-
ingu í
Eden 85
ára gamall
Gunnþór Guð-
mundsson
INGUNN Eydal opnar sýningu á
glerverkum í sýningarsal Man,
Skólavörðustíg 14, í dag, laugar-
dag, kl. 15.
Ingunn var valin borgarlista-
maður árið 1983 og hefur fengið
viðurkenningar á stórum erlend-
um samsýningum. Hún hefur hald-
ið fjórtán einkasýningar, þar af
átta erlendis, með grafík, málverk
og nú síðast glerlist. Síðustu ár
hefur hún aðallega sinnt gler-
verkum.
Sýningin er opin kl. 10–18 virka
daga, laugardaga og sunnudaga
kl. 15–18, og lýkur 18. mars.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingunn Eydal glerlistarmaður með nokkur af verkum sínum.
Glerverk í Man