Morgunblaðið - 03.03.2001, Blaðsíða 56
BÍLAR
56 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ver› a›eins í dag
LEXUS kynnir nýjan sportbíl á
bílasýningunni í Genf, SC430, og um
leið IS300 og IS300 sem kallaður er
SportCross. Þessar þrjár gerðir
bætast nú við í framboð Lexus í
Evrópu og þessar gerðir eru einnig
væntanlegar hingað til lands.
Á síðasta ári jókst sala hjá Lexus í
Evrópu um 10% og voru alls seldir
18 þúsund bílar. Þrjár nýjar gerðir
voru einnig kynntar í fyrra, lúxus-
fólksbílarnir LS430 og GS430 og
síðan sportlegi jeppinn RX300 og
styrktu þessar gerðir stöðu Lexus í
álfunni. Forráðamenn Lexus telja
söluna síðasta ár góða þar sem nýju
gerðirnar voru ekki kynntar fyrr en
seint á árinu.
Nýi SC430-bíllinn er byggður á
hugmyndabílnum sem vakti athygli
á Parísarsýningunni í fyrra. Hann
er búinn 4,3 lítra og átta strokka vél
sem er 283 hestöfl, er með fimm gíra
sjálfskiptingu, er á 18 tommu hjól-
börðum og segja Lexus-menn að
bíllinn sameini þægindi og aksturs-
eiginleika fyrir þá sem vilja snögga
og vandaða bíla og setji nánast nýja
staðla fyrir sportbíla.
Þokar Lexus enn upp á við
Yasushi Nakagawa, aðalhönnuður
SC430, segist með þessum nýja bíl
vilja þoka Lexus merkinu enn þá
meira upp á við. „Þetta er ekki að-
eins viðbót við Lexus-línuna heldur
einn besti sportbíllinn,“ segir hann
og á þar við blæjubíla, en SC430 er
þó ekki blæjubíll heldur með hörðu
þaki úr áli sem renna má niður í far-
angursgeymsluna með rofa í mæla-
borðinu. Tekur það um það bil 25
sekúndur og hreyfist þakið aðeins
meðan fingri er stutt á rofann. Um
leið og sleppt er stöðvast það.
IS300-stallbakurinn og IS300
SportCross eru að nokkru byggðir á
IS200-gerðinni sem hefur verið vin-
sæl í Evrópu og seldust af henni um
13.000 bílar í fyrra. Hönnuðurinn,
Nobuaki Katayama, segir nýju
bílana rökrétt framhald á IS200-
gerðinni. Hann segir að lúxusbíla
hafi oft skorta skemmtilega akst-
urseiginleika og staðhæfir að hér
séu á ferðinni skemmtilegir bílar
sem áhugasamir ökumenn muni
skemmta sér yfir.
Þessar nýju gerðir hafa þriggja
lítra vél, fjögurra strokka, 16 ventla
og er hún 210 hestöfl.
Volkswagen sýnir hugmyndabíl-
inn Microbus sem teiknaður var í
miðstöð fyrirtækisins í Kaliforníu í
Bandaríkjunum. Nokkrar línur
hans minna að ýmsu leyti á uppruna
sinn, gamla „rúgbrauðið“, en er allt
annar bíll að utan sem innan. Mæla-
borðið er með alveg nýju sniði en
aftur eru komnir hringlaga mælar
og gírskiptingin er með framúr-
stefnulegu sniði. Bíllinn er 4,7 m
langur og 1,9 m á hæð. Hann er bú-
inn 3,2 lítra og 6 strokka vél sem
gefur 231 hestafl.
Morgunblaðið/Jóhannes
Microbus minnir að sumu leyti á gamla „rúgbrauðið“.
Nýtt „rúgbrauð“
frá VW á leiðinni
Á bílasýningunni í
Genf er bæði stóra
og litla bíla að finna og
bíla fyrir hvers kyns
notkun. Jóhannes Tóm-
asson minnist hér á
nokkra þeirra.
SC430 er nýr og aflmikill sportbíll frá Lexus og með hreyfanlegu þaki
sem renna má niður í farangursgeymsluna.
Lexus IS300 er bæði til sem langbakur og stallbakur.
Þeir sem eru af lengri gerðinni
verða að beita lagni við að koma
sér fyrir í minnstu bílunum og
liggur við að sá sem þarna hefur
sest undir stýri geti stýrt með
hnjánum.
Frá Chrysler mátti bæði sjá nýja
Cherokee- og Wrangler-jeppa.
FRÉTTIR
NÝLEGA luku starfsferli tveir af
reyndari vátryggingamönnum
þessa lands. Það voru þeir Einar
Karlsson og Jóhann E. Björnsson
en báðir hófu þeir störf hjá Al-
mennum tryggingum árið 1951 og
störfuðu því samtals í 98 ár.
Lengst af starfaði Einar Karls-
son að innheimtumálum en síðar
kom hann einnig að samskiptum
við umboðsmenn sem og hluthafa.
Hjá Almennum tryggingum hf.
starfaði Jóhann E. við afgreiðslu
brunatrygginga eða allt fram til
ársins 1961 er hann hóf störf hjá
Ábyrgð hf. tryggingafélagi bind-
indismanna. Starfaði hann þar
fram til ársins 1997, lengst af sem
forstjóri, eða þar til að Ábyrgð hf.
sameinaðist Sjóvá-Almennum
tryggingum hf.
Við hóf í tilefni þess að starfs-
mennirnir voru kvaddir þakkaði
Ólafur B. Thors, framkvæmda-
stjóri Sjóvá-Almennra, þeim fyrir
vel unnin störf og gat þess jafn-
framt að tryggð og hollusta slíkra
starfsmanna væri ómetanleg öll-
um fyrirtækjum, stórum sem
smáum.
Ólafur B. Thors framkvæmdastjóri, Einar Karlsson, Jóhann E. Björns-
son og Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra.
Við vátryggingar
í samtals 98 ár
SAMFYLKINGIN boðar til fundar
um málefni útlendinga þriðjudaginn
6. mars kl. 20 í Litlu-Brekku, Banka-
stræti.
Dagskráin hefst með stuttri kynn-
ingu á vinnu þingflokks Samfylking-
arinnar í málefnum útlendinga. Að
því loknu verða flutt erindin: Að vera
ekki borinn og barnfæddur...: Juan
Carlos Melgar, Um stefnumótun
Reykjavíkurborgar í málefnum út-
lendinga og um samstarf sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu um Al-
þjóðahús: Snjólaug Stefánsdóttir
verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar,
Að byggja brýr...: um málefni flótta-
manna: Irena Guðrún Kojic kennari
og Ný lagasetning: Lög um útlend-
inga – hvers er að vænta, hvað er
mikilvægast: Ragnar Aðalsteinsson
formaður Mannréttindaskrifstofu
Íslands. Fundarstjóri og stjórnandi
umræðna er Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir borgarfulltrúi.
Fundur um málefni
útlendinga