Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 1
54. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 6. MARS 2001
FRAKKAR bönnuðu í gær útflutn-
ing og flutning á nautgripum, sauðfé,
svínum og hrossum næstu tvær vik-
urnar til að reyna að hefta útbreiðslu
gin- og klaufaveiki. Sjúkdómurinn
hefur ekki greinst í Frakklandi en
grunur vaknaði um að veiran hefði
borist til landsins og hafa a.m.k. tíu
bóndabýli verið sett í sóttkví og hef-
ur slátrun dýra verið hraðað.
Að sögn landbúnaðarráðherra
Frakklands, Jean Glavany, eru að-
gerðirnar hluti af nýrri áætlun sem
miðast að því að sjúkdómurinn berist
ekki til landsins.
David Byrne, sem fer með heil-
brigðis- og neytendamál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
lýsti því yfir í gær að hann væri
bjartsýnn á að það tækist að hafa
hemil á útbreiðslu sjúkdómsins,
gripið hefði verið til nauðsynlegra
varúðarráðstafana.
Í sláturhúsum í Bretlandi, þar sem
gin- og klaufaveiki greindist fyrir um
tveimur vikum, var farið að slátra í
gær á nýjan leik til að mæta skorti í
verslunum. Heilbrigð dýr, ætluð til
manneldis, frá svæðum í Skotlandi
þar sem veiran hefur ekki fundist,
voru leidd til slátrunar undir ströngu
eftirliti. Staðfestum tilfellum gin- og
klaufaveiki fjölgaði í 74 í Bretlandi í
gær.
Slátrun dýra var haldið áfram á
meginlandinu í gær þrátt fyrir að
ekkert tilfelli sjúkdómsins hefði ver-
ið staðfest þar enn. Landbúnaðar-
ráðherra Belga, Jaak Gabriels, sagði
frá því í gær að niðurstöður annarrar
umferðar rannsóknar á þremur svín-
um sem talin voru sýkt fyrir helgi
hefðu verið neikvæðar. Danir stað-
festu í gær að kýr sem grunur lék á
að væri sýkt væri ekki haldin gin- og
klaufaveiki.
Dýralæknir fylkisins Vestur-Agd-
er í Noregi mæltist í gær til þess að
bændur í Lista rækju dýr sín inn í
hús vegna grunsemda um að farfugl-
ar beri með sér smit. Fyrstu farfugl-
arnir, starrar, eru þegar komnir til
Noregs eftir vetrardvöl á Bretlands-
eyjum. Þeir halda sig einkum í
grennd við ræktað land og vegna
þess að þeir eru oft í grennd við bú-
fénað er ekki hægt að útiloka að þeir
beri með sér smit, segir dýralækn-
irinn Karsten Kjølleberg.
Íslensk stjórnvöld gripu í gær til
aðgerða til varnar því að gin- og
klaufaveiki berist til landsins.
Frakkar grípa til hertra aðgerða gegn útbreiðslu gin- og klaufaveiki
Banna útflutning búfjár
Reuters
Franskur bóndi grætur eftir að 800 kindum hafði verið slátrað í gær.
París, Ósló. AFP, AP, Morgunblaðið.
Farþegar frá Bretlandi/18
ARIEL Sharon, leiðtogi Likud-
flokksins, var í gær að leggja loka-
hönd á myndun nýrrar ríkisstjórnar
í Ísrael. Shas-flokkur bókstafstrúar-
gyðinga samþykkti á sunnudag að
taka þátt í stjórnarsamstarfinu og
hefur Sharon því hlotið nægan
stuðning til að mynda meirihluta-
stjórn. Búist er við að hann leggi til-
lögu um stjórnarmyndun fyrir ísra-
elska þingið á morgun.
Ísraelsstjórn jók í gær öryggisvið-
búnað í kjölfar sjálfsmorðsárásar
Palestínumanns, sem varð þremur
Ísraelum að bana í bænum Netanya
við Miðjarðarhafsströndina á sunnu-
dag. Þúsundir lögreglumanna voru í
gær á vakt í verslunarmiðstöðvum
og á öðrum stöðum þar sem marg-
menni er saman komið.
Sjálfsmorðsárásin á sunnudag var
önnur mannskæða sprengjuárásin í
Ísrael á fjórum dögum. Palestínu-
maðurinn sprengdi sig í loft upp á
fjölförnum gatnamótum í miðbæ
Netanya, en hann hafði áður reynt
að komast inn í strætisvagn, vænt-
anlega með það fyrir augum að
sprengja hann. Um 70 manns særð-
ust í sprengingunni. Enginn hefur
lýst ábyrgð á sprengjuárásinni á
hendur sér, en tvær þekktustu
hreyfingar herskárra múslíma,
Hamas og Heilagt stríð íslams, hafa
lýst því yfir að þær myndu fremja
hryðjuverk til að grafa undan rík-
isstjórn Sharons.
Dóttir Rabins í ríkisstjórn
Þeir flokkar sem samþykkt hafa
að eiga aðild að ríkisstjórn Ariels
Sharons og Likud-flokks hans,
Verkamannaflokkurinn, Israel Beit-
einu, sem er flokkur rússneskra inn-
flytjenda, og nú síðast Shas-flokkur-
inn, eiga samtals 64 sæti af 120 á
ísraelska þinginu. Tilkynnt var í gær
að Dalia Rabin-Plossof, dóttur Yitzh-
aks Rabins, fyrrverandi forsætisráð-
herra, hefði verið boðið embætti að-
stoðarvarnarmálaráðherra.
Sharon að ljúka
stjórnarmyndun
Getur
myndað
meirihluta-
stjórn
RÚTA og tveir fólksbílar féllu í
fljótið Douro í Portúgal á sunnu-
dagskvöld þegar gömul brú
hrundi og er óttast að um 70
manns hafi farist. Embættismaður
í héraðinu sagðist hafa varað
stjórnvöld í höfuðborginni Lissa-
bon margsinnis við og bent á að
brúin væri hættuleg en um hana
fóru að jafnaði um 1.600 bílar á
sólarhring. Erfiðlega gekk að
finna lík hinna látnu vegna þess
að straumur er mikill í fljótinu í
kjölfar rigninga að undanförnu.
AP
70 fórust er brú hrundi
Þjóðarsorg/33
TIL átaka kom í gær milli albanskra
skæruliða og makedóníska hersins
skammt frá landamærum Kosovo.
Her Makedóníu reynir af öllum mætti
að hafa hemil á uppreisnarmönnum
og koma í veg fyrir að átökin breiðist
út um landið. Atlantshafsbandalagið,
NATO, herti eftirlit við landamærin
en makedónísk stjórnvöld gagnrýndu
NATO fyrir að láta sér nægja að
fylgjast með átökunum úr fjarlægð.
Íslendingar á vegum alþjóðastofnana
í Kosovo sem voru á heimleið voru
kyrrsettir í Skopje, höfuðborg Mak-
edóníu, í gærkvöldi vegna ástandsins.
Richard Boucher, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði
Bandaríkjastjórn fordæma skæru-
hernaðinn og að hún styddi ríkisstjórn
Makedóníu. Boucher sagðist gera ráð
fyrir að Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna, SÞ, myndi ræða ástandið síðar í
vikunni líkt og ríkisstjórn Makedóníu
hefur farið fram á.
Að sögn varnarmálaráðuneytis
Makedóníu voru Albanar upphafs-
menn átakanna í gær. Það var annar
dagurinn í röð sem upp úr sýður milli
uppreisnarmanna og hersins. Þrír
hermenn létust í átökunum á sunnu-
dag en enginn í gær. Makedónía lok-
aði landamærunum við Kosovo í kjöl-
farið. Að sögn stjórnvalda í Maked-
óníu hafa átökin verið bundin við
nokkur þorp í grennd bæjarins Tan-
usevci, 30 km norður af Skopje.
Javier Solana, æðsti talsmaður
Evrópusambandsins í utanríkis- og
öryggismálum, hvatti skæruliða til að
leggja niður vopnin hið snarasta en
óttast er að allt geti farið í bál og
brand á þessum slóðum breiðist átök-
in út. Nær þriðjungur af íbúum
Makedóníu, sem eru tvær milljónir,
er Albanar og hafa þeir krafist auk-
inna réttinda síðan Makedónía hlaut
sjálfstæði með friðsamlegum hætti
fyrir tíu árum. Talið er að skæru-
liðarnir séu í tengslum við albanskar
uppreisnarsveitir í Presevo-dalnum í
suðurhluta Serbíu.
Að sögn Davíðs Loga Sigurðsson-
ar, starfsmanns Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu í Pristina, var
honum og öðrum starfsmönnum
bráðabirgðastjórnsýslu alþjóðastofn-
ana í Kosovo, þ.á m. fimm Íslending-
um, haldið kyrrum í Skopje í gær-
kvöldi. Starfsmennirnir áttu frí í gær
vegna helgidags múslíma, Eid al-
Adham, og höfðu margir nýtt sér
tækifærið til að bregða sér úr landi.
Davíð Logi segir skýringu kyrrsetn-
ingarinnar líklega vera að stjórnvöld
vilji þrýsta á að hlutlaust svæði undir
stjórn SÞ verði við landamærin.
Íslendingar kyrrsettir í Skopje
vegna árása aðskilnaðarsinna
Skærurnar
magnast í
Makedóníu
Debelde. AP, AFP.
Bandaríkin
Tveir féllu
í skotárás
Santee. AFP.
TVEIR nemendur Santana-fram-
haldsskólans í Santee austur af San
Diego létust þegar samnemandi
þeirra hóf skotárás í gærmorgun að
staðartíma. Þrettán manns voru
fluttir á sjúkrahús í grenndinni.
Annar nemendanna lést á staðnum
en hinn á sjúkrahúsi. Lögreglustjór-
inn í San Diego, William Kolander,
sagði að aðstoðarlögreglustjórinn
hefði verið við kennslu í skólanum
þegar atvikið varð og verið kominn á
vettvang nokkrum andartökum eftir
að skothríð hófst. Fimmtán ára nem-
andi var tekinn höndum og leitaði
lögregla samverkamanna hans í
gær. Georg W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði atburðinn vera „smánar-
legt verk hugleysingja“.
♦ ♦ ♦