Morgunblaðið - 06.03.2001, Blaðsíða 25
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 25
Aðalfundur
Olís 2001
Aðalfundur Olíuverzlunar Íslands hf. vegna starfs-
ársins 2000 verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu
föstudaginn 9. mars nk. og hefst kl. 16:00.
Dagskrá fundarins er þessi:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 13. gr.
samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins:
- Tillaga um að fækka í varastjórn.
- Tillaga um orðalagsbreytingar vegna
rafrænnar skráningar á hlutum í félaginu.
3. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál,
sem löglega hafa verið upp borin.
Ársreikningur félagsins ásamt skýrslu stjórnar og
endurskoðenda mun liggja frammi á skrifstofu
félagsins í Sundagörðum 2, hluthöfum til sýnis,
7 dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent við upphaf fundar.
Að loknum aðalfundarstörfum verður hluthöfum
boðið upp á léttar veitingar.
Stjórn Olíuverzlunar Íslands hf.
Aðalfundur Bakkavör Group hf. vegna starfsársins 2000 verður
haldinn á Radisson SAS Hótel Sögu, fundarsal A, v/Hagatorg,
Reykjavík, miðvikudaginn 7. mars og hefst hann kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til kaupa félagsins á eigin hlutum allt að 10%
samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Tillaga um breytingar á samþykktum:
Heimild til stjórnar félagsins að auka hlutafé félagsins um allt að 200
milljónir króna að nafnverði og að hluthafar falli frá forkaupsrétti sínum
sbr. 3. mgr. 34. gr. laga um hlutafélög.
4. Önnur mál löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins ásamt skýrslu stjórnar og endurskoðenda mun liggja
frammi á skrifstofu félagsins í Hamraborg 10,
200 Kópavogi, 7 dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent við upphaf fundar. Atkvæðaréttur hluthafa miðast
við stöðu hluthafaskrár að morgni 7. mars 2001.
Að loknum aðalfundarstörfum verður hluthöfum boðið upp á léttar veitingar.
Stjórn Bakkavör Group hf.
Aðalfundur
Bakkavör Group hf.
2001
HAGNAÐUR Héðins-samstæðunn-
ar dróst saman um 81% á síðasta ári
en hann nam 7 milljónum króna árið
2000 en var 37 milljónir króna árið
1999.
Samkvæmt upplýsingum frá
Héðni skýrist minnkun hagnaðar
einkum af minnkandi fjárfestingum í
fiskimjölsiðnaði ásamt hækkunum á
innlendum kostnaðarliðum, þar með
talinni launaþróun ársins.
Eigið fé í lok ársins 2000 nam 411
milljónum króna að meðtöldu hlutafé
að nafnvirði 100 milljónir króna og
hefur eigið fé aukist um 3,5% á einu
ári.
„Afkoma Héðins hf. á árinu 2000
er í samræmi við það sem gerist í
málmiðnaði og endurspeglast af
starfsumhverfi í fiskveiðum og fisk-
vinnslu. Fjárfestingar í fiskimjöls-
iðnaði hafa legið niðri. Ekki er gert
ráð fyrir að breyting verði hér á árið
2001,“ kemur fram í tilkynningu frá
Héðni til Verðbréfaþings Íslands.
Tap af rekstri Peders Halvorsen AS
Á árinu keypti Héðinn hf. 73%
hlutafjár í norska félaginu Peder
Halvorsen AS sem byggir starfsemi
sína á framleiðslu vatns- og gufu-
katla, svo og þjónustu við norska ol-
íuiðnaðinn. Tap varð á rekstri þessa
dótturfélags á árinu 2000 og er tekið
tillit til þessa í samstæðureikningi.
Gert er ráð fyrir að endurskipulagn-
ing félagsins skili hagnaði á árinu
2001.
Aðalfundur Héðins verður haldinn
16. mars og mun stjórn félagsins
leggja fram tillögu á honum um að
sækja um afskráningu hlutabréfa
félagsins af vaxtarlista Verðbréfa-
þings Íslands. Jafnframt mun stjórn
leggja til að greiddur verði út 10%
arður til hluthafa.
Stjórnin mun leggja fram tillögu
um að Halldór Lárusson, Jakob
Möller og Sverrir Sveinsson verði
kjörnir í stjórn félagsins en Björn
Ástmundsson og Markús Möller til
vara.
Hagnaður Héðins dregst saman um 81% á milli ára
Sótt um afskráningu
af Verðbréfaþingi
7
8
8
7
#'
9
*' '
'
(
:
('
;
*' <
:
9
#$
#
!!
$
!
%
&%
./,
/-4
,.
.
"
),
,4
!-/
/!
!0
/02,=
"2=
!
"##!
$ "!
"$ "$% "$!
"$!
"$!
$!
"!
$
&
'((
'((
'((
& !'$' !'$'
& JACK Stahl, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Cola-Cola drykkjarvörufram-
leiðandans, hefur ákveðið að hætta
hjá fyrirtækinu. Stahl hefur starfað
fyrir félagið í tuttugu ár og var
næstráðandi á eftir aðalfram-
kvæmdastjóra þess, Douglas Daft.
Brotthvarf Stahl kemur í kjölfar
gagngerrar endurskipulagningar á
stjórnskipulagi fyrirtækisins.
Breytingarnar fela meðal annars í
sér að fyrirtækinu verður skipt upp
í þrjú svið byggð á landfræðilegri
skiptingu, Ameríku, Asíu og Evr-
ópu/Afríku. Fjórða sviðið mun sjá
um að þróa ný viðskiptatækifæri
fyrir félagið. Nýverið hefur félagið
tilkynnt um samvinnu við Walt
Disney-fyrirtækið um markaðs-
setningu á ávaxtasöfum undir
merkjum Walt Disney. Ætlunin er
að höfða sérstaklega til barna með
slíkum drykkjum. Einnig hefur fyr-
irtækið tilkynnt um samvinnu milli
þess og stórfyrirtækisins Proctor &
Gamble um stofnun nýs fyrirtækis
sem framleiðir ávaxtasafa og nasl
vörur.
Douglas Daft aðalframkvæmda-
stjóri segir að þar sem fyrirtækið
sé að hefja nýtt vaxtarskeið á nýrri
öld sé þetta nýja skipulag einmitt
það sem fyrirtækið þarfnist. Coca-
Cola hefur á undanförnum árum
verið að missa markaðshlutdeild yf-
ir til Pepsi Cola. Einnig hafa nýir
drykkir eins og alls kyns íþrótta-
drykkir aukið markaðshlutdeild
sína verulega, sérstaklega á Banda-
ríkjamarkaði.
Aðstoðarframkvæmda-
stjóri Coca-Cola hættir
BRESKA blaðið Financial Times
mun bjóða upp á farsímaáskrift og
þjónustu frá og með vormánuðum.
Undir nafninu FT Mobile er ætlunin
að selja venjulega farsímaáskrift en
einnig að selja notendum upplýsing-
ar úr blaðinu og gagnasafni þess.
Samstarfsaðilar blaðsins eru BT
Cellnet og Carphone warehouse sem
selur farsíma á Bretlandseyjum og
er um að ræða samstarf Carphone
og FT Carphone mun sjá um sölu á
símum og áskrift að FT Mobile.
Þjónustan mun notast við farsíma-
kerfi BT Cellnet. Með auknum
möguleikum á að færa gögn og upp-
lýsingar í gegnum farsímakerfi
treystir FT á að fréttir úr blaðinu og
gagnasafni þess verði eftirsótt vara.
Ljóst er að fyrirtæki eins og Pear-
son sem auk þess að eiga Financial
Times group á einnig sjónvarps- og
útvarpsstöðvar og The Economist
vill verða virkur þátttakandi á mark-
aði sem meira og meira snýst um
upplýsingar. Það hafi sýnt sig að það
sé mögulegt að ná auknum tekjum af
farsímanotendum í gegnum þeirra
áskrift með því að bjóða upp á alls
kyns þjónustu.
Financial
Times býður
upp á far-
símaþjónustu
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni