Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isSpænska liðið Bidasoa besti
kosturinn fyrir Hauka? /B1
Kristján Sigurðsson frá Stoke til
Knattspyrnufélags Akureyrar /B3
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
KONA á fimmtugasta
og áttunda aldursári,
Ólöf Snorradóttir frá
Gilsfjarðarmúla, fannst
látin skammt frá
brúnni yfir Gilsfjörð á
sunnudagsmorgun.
Hún hafði lagt af stað
akandi heim til sín frá
félagsheimilinu Voga-
landi við Króksfjarðar-
nes, en villtist í slæmu
veðri og festi bifreiðina
utan vegar. Talið er að
konan hafi lagt af stað
frá Vogalandi um
klukkan 3 aðfaranótt
sunnudags og var hafin
leit síðar um nóttina þegar hún skil-
aði sér ekki heim.
Að sögn lögreglunnar á Patreks-
firði tók konan ranga beygju til hægri
í suður eftir þjóðvegi 60
í stað þess að beygja til
vinstri og aka austur
með Gilsfirði. Skömmu
eftir að konan var kom-
in inn á þjóðveg 60
hafnaði bifreiðin utan
vegar. Konan yfirgaf þá
bifreiðina og gekk rúm-
an kílómetra suður eftir
veginum niður að Gils-
fjarðarbrú. Að sögn lög-
reglu virðist sem hún
hafi áttað sig við brúna,
enda gáfu fótspor henn-
ar til kynna að hún hefði
lagt af stað til baka.
Íbúar á nálægum
bæjum í Gilsfirði hófu leit að konunni
klukkan 5 á sunnudagsmorgun og
fannst hún látin á veginum skammt
ofan við brúna um klukkan 6.30. Ekki
kom til þess að kallaðar yrðu út
björgunarsveitir, enda átti að kanna
fyrst svæðið í nágrenni félagsheim-
ilisins áður en frekari leit yrði hafin.
Eftir að hin látna fannst var hún
flutt í Króksfjarðarnes. Þangað kom
læknir heilsugæslustöðvarinnar í
Búðardal klukkan 7.30 og úrskurðaði
hana látna klukkustund síðar.
Hin látna, Ólöf Snorradóttir, var til
heimilis á bænum Gilsfjarðarmúla.
Hún var fædd 15. október 1943 og
lætur eftir sig eiginmann og fimm
börn.
Ólöf Snorradóttir
! ""
Kona varð úti
við Gilsfjarðarbrú
HVASSVIÐRI með snjókomu og
skafrenningi var ríkjandi á aust-
anverðu Norðurlandi og Austur-
landi í gær og fyrrinótt. Veður var
mjög slæmt austan Akureyrar og
með ströndinni austur frá Húsavík
í gærmorgun og víðast ófært fram-
an af degi. Aðfaranótt mánudags
var farið að snjóa verulega og víða
skafrenningur og voru allir fjall-
vegir ófærir á Austurlandi í gær.
Ekkert varð þó af því aftakaveðri
sem Veðurstofan hafði spáð aust-
anlands, en allhvasst varð víða og
fór vindur í 20 m/sek á nokkrum
stöðum.
Snjóflóð í Mjóafirði
Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum og Húsavík var þung færð
á götum og þurftu margir öku-
menn á aðstoð að halda við að
komast leiðar sinnar í fannferginu.
Allt gekk þó slysalaust fyrir sig
enda fólk lítið á ferðinni þar sem
skyggni var lítið í skafrenningnum.
Á Akureyri var sömu sögu að segja
en þar voru helstu götur mokaðar
snemma í gærmorgun og helst að
bílstjórar lentu í vandræðum í
heimkeyrslum og á fáfarnari göt-
um.
Í Mjóafirði féll snjóflóð í fyrri-
nótt skammt frá bænum Kastala
sem stendur yst í Brekkuþorpi. Að
sögn Jóhönnu Lárusdóttur, sem
býr á Brekku þar skammt frá, var
hríðin það blind í gær að mönnum
tókst ekki að gera sér fulla grein
fyrir umfangi flóðsins en ekki er
vitað til þess að það hafi valdið
tjóni.
Almannavörnum var tilkynnt um
flóðið og var ekki talin mikil hætta
á stóru flóði þar sem harðfenni
væri í giljum og snjórinn rynni þá
jafnóðum af stað. Jóhanna sagði að
flóabáturinn hefði ekki farið til
Neskaupstaðar í gær vegna veðurs
en það væri sjaldgæft að hann
sigldi ekki. Í Brekkuþorpi er búið í
7 íbúðarhúsum.
Röskun á innanlandsflugi
Nokkur röskun varð á innan-
landsflugi í gær vegna veðurs. Að-
eins var fært til Vestmannaeyja og
Sauðárkróks í gærmorgun og var
flugi til annarra staða frestað fram
yfir hádegi. Þá var flogið til flestra
staða á landinu nema Egilsstaða
en öllu flugi þangað var aflýst
vegna veðurs í gær.
Um miðjan dag í gær var norð-
urleiðin til Akureyrar, Siglufjarðar
og Húsavíkur orðin fær en þar var
mjög slæmt skyggni á köflum
vegna hvassviðris og snjókomu.
Ófært var frá Akureyri til Dalvík-
ur og Grenivíkur fram yfir hádegi
og alveg ófært um Möðrudals-
öræfi. Á Austurlandi var orðið fært
um Fagradal og með ströndinni
suður um en þar var skafrenningur
og slæmt ferðaveður. Mikið hvass-
viðri var í Öræfum í gærmorgun
og á Fagurhólsmýri mældist vind-
hraðinn 26–27 m/sek klukkan níu.
Þá var mjög hvasst undir Hvalnesi
en að sögn lögreglunnar á Horna-
firði lentu ferðalangar ekki í erf-
iðleikum vegna hvassviðris.
Veðurstofan spáir í dag 13–18 m/
sek suðvestanlands og snjókomu
eða slyddu um land allt og búist er
við 0–9 stiga frosti, kaldast á Vest-
fjörðum. Í dag er reiknað með að
skil komi upp að Suðurlandi með
snjókomu sem síðan fer yfir í
slyddu og rigningu þegar líður á
daginn. Síðan á vindur að snúast í
austanátt víðast hvar á landinu
með hlýnandi veðri og slyddu og
síðan rigningu fram á sunnudag. Á
Vestfjörðum gæti hins vegar orðið
vægt frost.
Ófært á heið-
um og þung-
fært í bæjum
Morgunblaðið/Halldór Þormar
Á Siglufirði var hvassviðri og skafrenningur í gær eins og víða norð-
austan- og austanlands.
Morgunblaðið/Jim Smart
Tafir urðu á innanlandsflugi í gærmorgun vegna veðurs og myndaðist
nokkur biðröð á Reykjavíkurflugvelli seinni part gærdagsins.
Snjókoma með skafrenningi víða norðan- og austanlands í gær
TÆKNILEG vandamál komu upp í
gær við rekstur Morgunblaðsins á
Netinu. Ollu þau því að notendur
áttu erfitt með að tengjast vefnum
og einnig gátu starfsmenn mbl.is
ekki uppfært vefinn reglulega.
Unnið var að því í gær að komast
fyrir þennan vanda en ekki er hægt
að útiloka áframhaldandi truflanir í
dag. Eru lesendur mbl.is beðnir vel-
virðingar á því ónæði sem þetta kann
að hafa valdið þeim.
Tæknivanda-
mál ollu trufl-
unum á mbl.is
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
óskað eftir því við ríkissaksóknara að
hann taki til meðferðar meinta vitn-
eskju starfsmanna embættisins um
umsækjendur um störf hjá Íslands-
pósti og að þær bærust fyrirtækinu í
gegnum starfsmenn Tollstjóraemb-
ættisins í Reykjavík. Ingimundur
Einarsson, varalögreglustjóri í
Reykjavík, ritaði ríkissaksóknara í
gær og fór fram á ofangreinda athug-
un.
Varalögreglustjóri segir að óskað
hafi verið eftir því að ríkissaksóknari
taki til meðferðar þann þátt málsins
sem snúi að embætti lögreglunnar í
Reykjavík en áður hefur ríkislög-
reglustjóri óskað eftir sams konar at-
hugun fyrir hönd síns embættis.
Snýst málið um að kannað verði hvort
starfsmenn Tollstjóraembættisins í
Reykjavík hafi fengið upplýsingar hjá
embættunum hvort starfsmenn og
umsækjendur um störf hjá Íslands-
pósti hefðu verið grunaðir um fíkni-
efnaneyslu. Kom það fram í svari
Tollstjóraembættisins við fyrirspurn
frá Persónuvernd.
„Tollstjóri lætur í veðri vaka að lög-
reglumönnum hjá lögreglunni í
Reykjavík, og ríkislögreglustjóra
reyndar líka, hafi verið kunnugt um
að upplýsingar gengju síðan til Ís-
landspósts og við óskuðum eftir að
hann tæki málið til meðferðar,“ sagði
Ingimundur í samtali við Morgun-
blaðið. Hann kvaðst ekki vita hversu
langan tíma athugunin geti tekið en
vonast til að hún gangi hratt fyrir sig.
Lögreglan í
Reykjavík
leitar til
ríkissak-
sóknara
Meint upplýsingagjöf
lögreglu til tollstjóra
FÉLAGSMENN í Póstmannafélagi
Íslands felldu nýgerðan kjarasamn-
ing við Íslandspóst.
Á kjörskrá voru 1.395 og greiddu
870 atkvæði. Já sögðu 367 eða 42,2%,
nei sögðu 488 eða 56% og auðir og
ógildir seðlar voru 15.
Póstmenn
felldu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦