Morgunblaðið - 06.03.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu MMC Galant V6 2500
station, 5 dyra, 16“ álfelgur,
geislaspilari, skyggaðar rúður,
nýskráður 10,09,1999, ekinn
16.000 km.
Ásett verð 2.140.000.
frá þekktum og óþekktum einstak-
lingum.“
Hildur sagði að margt skemmti-
legt hefði gerst í söfnuninni, t.d.
hefði félaginu borist fullur bali af
skiptimynt. Það hefði verið
„þyngsta“ framlagið sem barst.
Gott starf sjálfboðaliða
Söfnun Krabbameinsfélagsins var
í samvinnu við Kiwanis og Lions og
sagði Hildur að þessar tvær hreyf-
ingar hefðu eins og aðrir sjálfboða-
liðar staðið afskaplega vel að mál-
um.
„Það lögðu margir mikið á sig og
víða um land myndaðist góð
stemmning. Í Grímsey, þar sem búa
um 90 manns, söfnuðust t.d. 320
þúsund krónur. Í Vestmannaeyjum
tóku 85 manns þátt í söfnuninni
þrátt fyrir að þar væri afar slæmt
veður. Formaður Krabbameins-
félagsins þar orðaði það svo að það
hefði myndast kosningastemmning.
Þar söfnuðust 850 þúsund sam-
kvæmt bráðabirgðatölum, eingöngu
frá einstaklingum. Það náðist líka að
byggjast upp góð stemmning á höf-
uðborgarsvæðinu. Margir fóru tvær
eða þrjár ferðir og komu til baka
með fulla bauka,“ sagði Hildur.
Hildur sagðist ekki hafa hugmynd
um hvað margir einstaklingar hefðu
gefið í söfnunina en það hefði nánast
verið undanteking ef fólk gaf ekki
eitthvað. Þeir sem ekki gáfu hefðu
þá oftar en ekki verið fólk sem hafði
ekkert að gefa. Söfnunarfólk hefði
því mætt einstökum velvilja.
Hildur sagði að 30–40% af söfn-
unarfénu hefðu komið í gegnum
UM 76 milljónir höfðu safnast í
landssöfnun Krabbameinsfélags Ís-
lands í gær, en hún fór fram um
helgina. Hildur Björk Hilmarsdóttir
söfnunarstjóri sagði að enn væru að
berast framlög frá fyrirtækjum og
því kæmi ekki í ljós fyrr en í lok vik-
unnar hver heildarupphæði yrði.
„Söfnunin tókst einstaklega vel.
Það var gífurlega góð þátttaka. Okk-
ur telst til að á þriðja þúsund sjálf-
boðaliðar hafi gengið með söfnunar-
bauka og tekið við framlögum.
Söfnunarfólk mætti alls staðar
miklum velvilja. Framlögin voru af
ýmsum stærðum, allt frá einni
krónu upp í milljón. Margir gáfu há-
ar upphæðir til minningar um vini
og ættingja sem hafa látist úr
krabbameini á liðnum árum.
Hæstu framlögin eru ein milljón
símasöfnun. Þar hefði fólki sem
sjálfboðaliðar náðu ekki til gefist
færi á að koma framlagi í söfnunina.
Hún sagði að Landssíminn hefði gef-
ið alla þjónustu við söfnunina, bæði
lán á tækjabúnaði og vinnu tækni-
manna. Framlag Símans hefði verið
mikilvægt sem og framlag Búnaðar-
bankans sem er fjárgæsluaðili með
söfnuninni. Mikil vinna væri við að
telja og halda utan um öll framlög.
„Markmiðið með söfnuninni er að
auka þjónustu við krabbameins-
sjúklinga, ekki síst með því að hjálpa
þeim að komast út í lífið á nýjan leik,
efla forvarnir og treysta núverandi
starfsemi Krabbameinsfélagsins.
Fyrst og fremst leggjum við áherslu
á að bæta þjónustu við krabba-
meinssjúklinga sem brýn er þörf á,“
sagði Hildur. Krabbameinsfélagið
hefur þrisvar áður staðið fyrir lands-
söfnunum, 1982, 1986 og 1990. Árið
1990 söfnuðust um 52 milljónir
króna, sem jafngildir 72 milljónum í
dag.
Um 76 milljónir
króna hafa safnast
Enn voru að berast framlög í landssöfnun Krabbameinsfélags Íslands í gær
Morgunblaðið/Tómas Jónasson
Um fjórðungur fjárins kom gegnum söfnunarsímann 750 5050 en þar
vann hópur sjálfboðaliða við símsvörun.
Landssímann um að fá aðgang að
breiðbandinu. Hann sagðist hafa
orðið var við áhuga hjá áskrifendum
félagsins að tengjast breiðbandinu,
t.d. hjá þeim sem væru að flytjast í
ný hverfi. ÍÚ vildi þess vegna kom-
ast inn á breiðbandið með Stöð tvö,
Sýn, Bíórásina og Fjölvarpið.
Vilja fá lausn til framtíðar
Hreggviður sagði að upphaflega
hefði verið ágreiningur milli Lands-
símans og ÍÚ um verð. Verðlagning
Landssímans hefði verið með þeim
hætti að það hefði verið óhagkvæmt
fyrir ÍÚ að fara út í þetta nema velta
VIÐRÆÐUR standa yfir milli Ís-
lenska útvarpsfélagsins (ÍÚ) og
Landssímans um að ÍÚ noti breið-
bandið til að dreifa sjónvarpsstöðv-
um félagsins. Bæði RÚV og Skjá 1
er dreift á breiðbandinu. Um helgina
hóf Íslenska sjónvarpsfélagið, sem
rekur Skjá 1, endurvarp á tveimur
erlendum sjónvarpsstöðvum sem
sýna jaðaríþróttir og erótík. Vafi
leikur á hvort útsending á sjónvarps-
rásinni sé í samræmi við útvarpslög.
Hreggviður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenska útvarps-
félagsins (ÍÚ), sagði að ÍÚ hefði átt í
viðræðum með hléum í nokkur ár við
kostnaðinum yfir á áskrifendur. Árið
1998 hefði Samkeppnisstofnun úr-
skurðað að Landssíminn yrði að
gæta jafnræðis við aðrar sjónvarps-
stöðvar í verðlagningu, en RÚV
hefði þá haft aðgang að breiðband-
inu án endurgjalds. Viðræðurnar
núna snerust því um tæknilegar út-
færslur og að tryggja heildarlausn
fyrir alla viðskiptavini ÍÚ, einnig þá
sem eru með Fjölvarpið og Bíórás-
ina.
„Við áttum okkur á því að þegar
við erum komnir inn á breiðbandið
er ekki um það að ræða að fara það-
an út aftur. Við getum ekki leyft
okkur að koma þannig fram við okk-
ar viðskiptavini að svipta þá dreifi-
leið sem þeir hafa valið. Þess vegna
skiptir miklu máli fyrir okkur að
ganga frá málum okkar til allrar
framtíðar,“ sagði Hreggviður.
Útvarpslög heimila aðeins
óbreytt endurvarp
Þór Jes Þórisson, framkvæmda-
stjóri breiðbandssviðs Landssímans,
sagði að Landssíminn hefði rætt við
Íslenska útvarpsfélagið um að það
kæmi inn á breiðbandið með Stöð 2
og Sýn á sama grundvelli og RÚV og
Skjár 1, þ.e. án endurgjalds a.m.k. til
að byrja með. Þetta hefði staðið til
boða um hríð. Menn hefðu sameig-
inlega verið að reyna að finna bestu
leiðir til að koma þessum rásum inn
á breiðbandið.
ÍÚ væri hins vegar einnig með
Bíórásina, Popptíví og Fjölvarpið og
breiðbandið gæti ekki tekið við öll-
um þessum rásum. Á breiðbandinu
væru 34 rásir í dag, en kerfin í fjöl-
býlishúsum tækju almennt ekki við
nema um 40 rásum. Eins væru vissir
tæknilegir annmarkar á því að
tengja breiðbandið við loftnet. Það
væri unnið að því að leysa þessi mál,
en það hefði tekið lengri tíma en von-
ast hefði verið eftir.
ÍÚ í viðræðum um að dreifa
efni um breiðband Símans
EITT hundrað ára varð í gær Guð-
munda Guðmundsdóttir frá Grinda-
vík og hélt hún upp á afmælisdag-
inn með afkomendum sínum á
Hrafnistu í Reykjavík þar sem hún
býr. Alls á Guðmunda nú 51 afkom-
anda á öllum aldri og var stærstur
hluti þeirra mættur í afmælisveisl-
una.
Guðmunda fæddist í Buðlungu í
Grindavík 5. mars 1901 og ólst upp
að Búðum í Grindavík. Maður henn-
ar var Guðlaugur Þórðarson sjó-
maður, fæddur 7. ágúst árið 1902,
en hann lést í ágúst 1962. Þau
bjuggu í Reykjavík frá árinu 1941
og hefur Guðmunda dvalið á Hrafn-
istu síðustu árin.
Guðmunda hlustar mikið á útvarp
og las mikið til skamms tíma en hef-
ur nú orðið að draga úr því þar sem
sjónin er aðeins farin að daprast.
Hún getur því fylgst vel með frétt-
um og atburðum líðandi stundar en
hún man ekki síst gamla tíma.
Guðmundu og Guðlaugi varð
tveggja barna auðið en alls á Guð-
munda nú 51 afkomanda eins og áð-
ur er getið og fagnaði meirihluti
þeirra áfanganum með afmælis-
barninu í gær.
Fagnaði 100
ára afmæli
sínu í
hópi fjölda
afkomenda
Morgunblaðið/Guðlaugur Wium
Guðmunda Guðmundsdóttir er hér í hópi fjölda afkomenda sinna sem heiðruðu hana á afmælisdaginn.
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra vill ekkert tjá sig um yf-
irlýsingu Ingu Jónu Þórðardóttur,
oddvita sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn Reykjavíkur, í Morgun-
blaðinu sl. laugardag. Þar sagðist
Inga Jóna ætla að sækjast eftir því
að veita lista flokksins áfram for-
ystu í næstu kosningum.
„Ég hef ekkert frekar um málið
að segja en kemur fram á síðunni
minni,“ sagði Björn þegar Morg-
unblaðið leitaði eftir viðbrögðum
hans í gær.
Í pistli á heimasíðu sinni í gær
vék Björn að vangaveltum um
hugsanlegt framboð hans til borg-
arstjórnar Reykjavíkur, en þetta
mál kom m.a. til umræðu í þætti
Egils Helgasonar á Skjá einum sl.
sunnudag. Þar segir Björn: „Stef-
án Jón Hafstein, ráðgjafi Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, og
hún sjálf virðast hafa af því nokkr-
ar áhyggjur að ég hafi ekki tekið af
skarið í þessu máli. Verða þau að
bíða enn um sinn.“
Tjáir sig ekki um framboð
Björn Bjarnason