Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Borgarafundur í Hlaðvarpanum
Gegn
fordómum
OPINN borgara-fundur verður áfimmtudaginn 8.
mars nk. í Hlaðvarpanum
við Vesturgötu í tilefni af
alþjóðlegum baráttudegi
kvenna fyrir friði og jafn-
rétti. María S. Gunnars-
dóttir, formaður Menning-
ar- og friðarsamtaka ís-
lenskra kvenna, hefur haft
umsjón með undirbúningi
fundarins.
„Það eru tuttugu og tvö
félög og samtök sem
standa að þessum fundi.
Þetta er árlegur fundur en
dagskráin er breytileg frá
ári til árs. Hún er venju-
lega lituð af því sem er á
döfinni hér heima eða í
heimsmálunum á hverjum
tíma. Í ár er yfirskrift
fundarins: Gegn fordómum“
– Hvers vegna var þetta efni
valið nú?
„Ástæðan fyrir því að fundinum
var valin þessi yfirskrift er að
Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt
til þess að árið 2001 verði helgað
baráttu gegn kynþáttafordómum
og útlendingahatri.“
– Er þetta efni sem þér sýnist
brýnt að kynna hér á landi?
„Já, við í undirbúningshópnum
töldum nauðsynlegt að opna mál-
efnalega umræðu um ástandið á
hinu fjölmenningarlega Íslandi.
Nýlega hafa birst ýmsar rann-
sóknir á viðhorfum Íslendinga.
Það þýðir ekki endilega að for-
dómar séu eitthvert nýtt fyrir-
bæri hér á landi. Ég held að við
ættum að vera raunsæ og viður-
kenna fordóma sem hluta af
mannlífinu. Fordómar geta verið
margs konar og það er ákveðið
skref að viðurkenna að við erum
öll fordómafull á einhvern hátt.
Við erum flest föst í ýmsum stað-
alímyndum sem geta bæði verið
jákvæðar og líka neikvæðar. Ég
þekki manneskjur sem eru svo
fordómafullar gagnvart sjálfum
sér að þær leyfa sér engan veginn
að blómstra. Í öðrum birtast for-
dómarnir sem ótti við hið óþekkta,
það sem fólk þekkir ekki og hræð-
ist þess vegna.“
– Hvað fer fram á hinum opna
borgarafundi í Hlaðvarpanum?
„Þar munu íslenskar og erlend-
ar konur leggja sitt af mörkum til
umræðunnar og byggja bæði á
faglegum rannsóknum og reynslu
sinni.“
– Verða konur sérstaklega fyrir
fordómum vegna erlends þjóðern-
is hér á landi?
„Ég held að ástandið hér sé
svipað og í nágrannalöndum okk-
ar. Við sem höfum gaman af sög-
unni við vitum að straumar í Evr-
ópu berast að lokum hingað, bara
svolítið seinna. Þannig var það
með ’68 kynslóðina, hún var tölu-
vert yngri hér en hugsanabræður
á meginlandinu, þannig var það
líka með pönkara, íslenskur pönk-
ari er líka talsvert yngri en enskur
pönkari. Þetta hefur ákveðna
kosti fyrir eyjuna Ísland.
Þegar aldan skellur
að landi er hún orðin
svolítið þreytt. Í dag
eru „rasistar“ í Evrópu
á undanhaldi. Þessar
hreyfingar hafa alls
staðar náð hámarki
fylgis á tímum kreppu.
Nú er fylgi þeirra minnkandi og
ástæða þess er tvíþætt. Annars
vegar vegna aukins hagvaxtar í
Evrópu og minnkandi atvinnu-
leysis og hins vegar vegna þess að
þeir sem hafa leitt þessar hreyf-
ingar hafa sjálfir grafið sína eigin
gröf. Það kemur kannski ekki á
óvart að menn sem eru andmann-
úðlega sinnaðir skuli einnig vera
dæmdir fyrir andfélagslega hegð-
un.“
– Eru margir fyrirlesarar á
borgarafundinum?
„Það verða sex fyrirlestrar og
fjallað verður um efni eins og:
hvað fylgir fjölmenningu, kyn-
þáttafordóma og viðhorf til nýbúa.
Fundinum lýkur með umræðum.
Fundarstjóri verður Kesara An-
amthawat-Jónson grasafræðing-
ur.“
– Er þessi fundur efnislega í
takt við umræður erlendis nú?
„Nei, við erum eins og fyrr
sagði einum fjórum árum á eftir
umræðu um þessi efni víðast í ná-
grannalöndunum. En við erum
auðvitað í tengslum við ýmsar
hreyfingar og höfum fylgst með
umræðunni þar. Þetta er frekar
fundur sem efnt er til af því að við
teljum að þörf sé á málefnalegri
umræðu um þetta efni hérna
núna.“
– Hvað viljið þið gera í þessum
„fordómamálum“
„Markmið lýðræðissinna á Ís-
landi er ekki að banna hreyfingar
af einu eða neinu tagi. Lýðræði
nærist nú einu sinni á ólíkum
skoðunum og skoðanaskiptum, en
við þurfum að standa vörð um rétt
allra í samfélaginu. Þess vegna
þurfa lögin að tryggja þegnana
fyrir öllum áróðri fyrir
kynþáttahatri og það
að hvetja til ofbeldis
gagnvart manneskju af
öðrum kynþætti hlýtur
alltaf að vera refsivert
athæfi. Síðastliðið
haust sagði í skýrslu Ís-
lands til Sameinuðu þjóðanna að
kynþáttamisréttismál hefði aldrei
komið fyrir dómstóla hér á landi.
Það sýnir vonandi að við séum
meðvituð um þá staðreynd að Ís-
lendingar í útlöndum eru þrisvar
sinnum fleiri en útlendingar bú-
settir hér, þrátt fyrir mikla fjölg-
un innflytjenda.“
María S. Gunnarsdóttir
María S. Gunnarsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 1956. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Tjörnina 1976 og fór
eftir það til náms við University
of Sussex í Brighton. Hún lauk
námi í bókasafnsfræði við Há-
skóla Íslands 1983 og hefur unn-
ið eftir það við sitt fag, m.a. sem
forstöðumaður Safnahússins í
Vestmannaeyjum árunum 1983
til 1986. Þá gerðist hún deild-
arstjóri íslenskra bóka hjá Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar
til haust 1989, eftir það hefur
hún starfað við Valhúsaskóla á
Seltjarnarnesi sem bókasafns-
fræðingur og kennt frönsku.
María er gift Gérard Lemarquis
kennara og fréttaritara og eiga
þau fjögur börn.
Lögin þurfa
að tryggja
þegnana
fyrir kyn-
þáttaáróðri
Svona, ekkert bí, bí-blaður, titturinn þinn, vegabréfið og hvaðan ertu að koma?
LJÓST þykir nú orðið að ekki er
unnt að uppræta með lyfjameðferð
HIV-veiruna hjá þeim sem smitast
hafa og fengið geta alnæmi. Har-
aldur Briem sóttvarnalæknir sat
nýverið alnæmisráðstefnu í Banda-
ríkjunum og tjáði hann Morgun-
blaðinu að nýjar rannsóknaniður-
stöður leiddu þetta í ljós. Einnig
segir hann nú reynt að meta árang-
ur þess að veita lyfjameðferð með
ákveðnum hléum.
„Menn hafa lengi haldið að hægt
væri að uppræta smit með lyfjum
og töluðu fyrst um að það væri
hægt á þremur til fjórum árum og
síðan kannski fimm til tíu en nú
hefur verið staðfest að svo er ekki,“
sagði Haraldur. „Ákveðin hvít blóð-
korn geyma veiruna í sér svo lengi
sem við lifum og má að því leyti
líkja þessu ferli við mislinga. Ef við
höfum fengið mislingja sem börn
fáum við þá ekki aftur vegna þess
að minnisfrumur eru fyrir hendi og
það sama á við um HIV-veiruna.“
Lyfjum beint á aðra staði
Haraldur segir að á ráðstefnunni
hafi einnig verið rætt um svonefnd
lyfjahlé, þ.e. hver reynsla væri af
því að gefa lyfin um stundarsakir
en taka síðan hlé. Rannsökuð hefðu
verið ýmis tilbrigði við þessa að-
ferð, t.d. að gefa lyf í viku og taka
síðan viku hlé eða gefa lyf í tvo
mánuði og taka mánaðarlangt hlé.
Sagði hann að svo virtist sem fyrri
aðferðin gæfi betri árangur en ljóst
væri að væru tekin svona hlé drægi
úr fylgikvillum hjá sjúklingum og
sparnaður væri talsverður. Segir
Haraldur miklar rannsóknir stund-
aðar á þessu sviði.
Þá sagði hann stöðugt í gangi
rannsóknir með fleiri lyf sem unnið
geta á ónæmum stofnum, a.m.k til
að byrja með, og hafa önnur skot-
mörk veirunnar en þau lyf hafa
sem fyrir hendi eru. Vonast er til
að lyf finnist sem hafa færri auka-
verkanir og eru þægilegri til töku
því meðferðin er ævilöng.
Á Íslandi höfðu um síðustu ára-
mót greinst 143 sjúklingar með
HIV-veiruna og eru 34 úr þeim
hópi nú látnir. Um þessar mundir
greinist um það bil einn á mánuði
með HIV. Hann segir að eftir
breytingu árið 1996 þegar farið var
gefa lyfjablöndur hafi dánartíðnin
lækkað og tiltölulega fáir fái al-
næmi.
Ekki er unnt að uppræta HIV-veiruna með lyfjum
Reynt að meta árangur
lyfjagjafar með hléum