Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 16
FRÉTTIR
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KONA sem ákærð er fyrir að hafa
orðið Hallgrími Elíssyni að bana í
kjallaraíbúð á Leifsgötu 10 hinn
23. júlí sl. sagði í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær að Hallgrímur
hefði látist í kjölfar átaka við rúm-
lega fertugan karlmann sem er
ásamt öðrum manni ákærður fyrir
að hafa tekið við hluta af ránsfeng
sem konan hafði af Hallgrími.
Konan lýsti því að maðurinn
hefði tekið Hallgrím hálstaki.
Stuttu síðar hafi hann sagt hann
látinn.
Þessar upplýsingar höfðu ekki
áður komið fram í frásögn kon-
unnar, hvorki við yfirheyrslur hjá
lögreglunni né fyrir dómi.
Aðspurð um ástæður þess sagði
konan að hún hefði ekki munað
þetta fyrr. Atburðarásin hefði hins
vegar rifjast upp fyrir henni með-
an hún hún hafi setið í gæslu-
varðhaldi.
Konan var handtekin hinn 24.
júlí í fyrra og hefur verið í haldi
síðan.
Aðalmeðferð í máli ríkissaksókn-
ara gegn konunni hófst í gær. Hún
er ákærð fyrir manndráp og er
einnig sökuð um að hafa skömmu
áður en hún varð Hallgrími að
bana slegið hann og rænt af hon-
um peningaveski með um 100.000
krónum.
Tókst á við hann en
varð honum ekki að bana
Konan hefur ávallt neitað sak-
argiftum en sagði í gær að Hall-
grímur hefði látið sig fá seðlabúnt,
en hún sagðist þó ekki viss um
fjárhæðina. Nokkru síðar hefði
komið til ryskinga á milli þeirra.
Átökin hefðu þó ekki verið alvar-
leg og hann hefði verið á lífi þegar
hún skildi við hann.
Undir lok átakanna hafi Hall-
grímur skorið hana í báðar hendur
með glerbrotum úr áfengisflösku.
Hún hafi því farið út úr herberg-
inu til að búa um sárið.
Stuttu síðar hafi hún séð átök á
milli Hallgríms og karlmannsins.
Hann hafi m.a. slengt höfði Hall-
gríms upp við vegg en síðan sest
klofvega ofan á hann og tekið hann
hálstaki. Hann hafi stuttu seinna
sagt Hallgrím látinn. Hún hafi þá
hafið lífgunartilraunir en síðan
lagt Hallgrím á hliðina þar sem
hún taldi sig finna andardrátt.
Konan hefur við rannsókn máls-
ins gefið nokkuð misjafnar útskýr-
ingar á því hvernig hún skarst á
höndum. Eftir að hún var hand-
tekin var hún færð í læknisskoðun.
Læknirinn sem skoðaði konuna
sagði við fyrirtöku málsins á föstu-
dag að skurðirnir bentu ekki til
þess að þetta væru varnaráverkar
en konan hefur haldið því fram að
Hallgrímur hafi ráðist á hana með
brotinni áfengisflösku.
Frásögn karlmannsins af
atburðarásinni er allt önnur. Hann
segist þó hafa slegið Hallgrím
þennan dag en höggið hafi að
mestu geigað og því ekki verið
þungt.
Maðurinn kvaðst hafa sofið í
íbúðinni á Leifsgötu 10 aðfaranótt
laugardags en farið þaðan snemma
morguns og ekki komið aftur fyrr
en síðdegis. Hann hafi þá verið
verulega ölvaður. Hann hafi sest í
stól og dottað en rumskað af og til
og þá séð Hallgrím og konuna tak-
ast á.
Loks hafi hann heyrt þegar
flaska brotnaði. Hann sá þá að
konan hafði skorist á hendi. Þegar
hann leit á Hallgrím hafi honum
fundist hann torkennilegur, líkt og
hann væri látinn. Hann segist þá
hafa gert tilraun til að lífga hann
við en án árangurs.
Ákærði man
ekki atburði
Hinn karlmaðurinn sem ákærð-
ur er fyrir hylmingu er hálfsjötug-
ur. Hann bar fyrir dómi í gær að
hann myndi ekkert eftir atburðum
hinn 23. júlí. Ástæðuna sagði hann
vera þá að hann hefði fengið heila-
blóðfall fyrir nokkrum vikum og
hefði við það misst minnið.
Í lögregluskýrslu sem tekin var
af manninum sagðist hann hafa
séð konuna löðrunga Hallgrím og
síðan tekið af honum seðlaveski.
Þetta gat maðurinn ekki staðfest
fyrir héraðsdómi enda sagðist
hann alls ekkert muna eftir þessu.
Eftir að átökunum lauk fóru
konan og eldri karlmaðurinn á
veitingastað í nágrenninu.
Konan sagði fyrir dómi að
nokkru eftir miðnætti hafi hún
ásamt öðrum manni farið á Leifs-
götu 10 til að athuga með Hall-
grím. Þau hafi þá komið að honum
látnum.
Ákærð fyrir hafa orðið manni að bana á Leifsgötu 10 í júlí í fyrra
Segir hann hafa látist í kjöl-
far átaka við annan mann
BÆJARSTJÓRN Stykkishólms
boðaði til almenns fundar 1. mars
þar sem kynnt var hugmynd um
skipulag gamla miðbæjarins í
Stykkishólmi.
Á fyrsta fundi bæjarstjórnar
Stykkishólms í nýja ráðhúsinu fyr-
ir tveimur árum var skipuð
þriggja manna nefnd til að gera
tillögur að deiliskipulagi fyrir
gamla miðbæinn. Nefndin hefur
fengið til liðs við sig Bæring
Bjarnar Jónsson arkitekt til að
vinna úr hugmyndum og koma
með tillögu um nýtt skipulag. Með
honum starfar við verkefnið Sig-
björn Kjartansson Á fundinum
kynnti Bæring tillögu þeirra.
Hún skiptist í 4 liði. Í fyrsta lagi
að þétta byggð í gamla miðbænum
og fylla í eyður við Aðalgötu og
Hafnargötu. Í öðru lagi að gera
útivistar- og samkomusvæði á
milli gömlu kirkjunnar og Frúar-
hússins. Í þriðja lagi að gera safn-
asvæði við Norska húsið og versl-
un Skipavíkur og í síðasta lagi
garður og útivistarsvæði á því
svæði sem slökkvistöðin er. Hann
leggur til að húsnæði Skipavíkur
verði gert að bátasafni.
Fyrir liggur að Aðalsteinn í
Hvallátrum vill gefa Stykkis-
hólmsbæ þrjá gamla báta og er
mikill áhugi fyrir því að þiggja þá
höfðinglegu gjöf og koma bát-
unum fyrir á fyrirhuguðu safna-
svæði.
Fjölmenni sótti kynningarfund-
inn og sýnir það hvað Hólmarar
hafa mikinn áhuga á að fylgjast
með og taka þátt í að móta fram-
tíðarskipulag gamla bæjarins, þar
sem gömlu húsin mynda fallega
umgjörð og gera svæðið aðlaðandi
fyrir bæjarbúa og ferðamenn. Við-
brögð fundarmanna voru jákvæð
og bæjarbúar komu með fjöl-
breyttar hugmyndir sem verða
skoðaðar betur. Nú verður haldið
áfram að útfæra skipulagið og er
það von nefndarmanna að end-
anlegar tillögur að skipulaginu
liggi fyrir á þessu ári.
Gamli miðbærinn í Stykk-
ishólmi skipulagður
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Mikill fjöldi Hólmara sótti kynningarfund um nýtt skipulag gamla miðbæjarins í Stykkishólmi. Á myndinni er
Dagbjört Höskuldsdóttir að koma með ábendingar, en hún er ein þeirra sem býr í gamla miðbænum.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi á fimmtudaginn Guðmund
Njál Guðmundsson í þriggja ára
fangelsi fyrir smygl á rúmlega 800 e-
töflum til landsins. Til frádráttar
fangelsisvistinni kemur gæsluvarð-
hald sem hann hefur setið í frá 16.
október sl. Guðmundur St. Marteins-
son héraðsdómari kvað upp dóminn.
Tollverðir stöðvuðu Guðmund við
komuna til landsins frá Þýskalandi
og leituðu á honum. Fíkniefni fund-
ust hvorki á honum né í farangri hans
en grunsemdir vöknuðu um að hann
hefði falið fíkniefni innvortis. Hann
var því handtekinn og færður lög-
reglunni í Reykjavík þar sem hann
játaði innflutning fíkniefna innvortis.
Röntgenmynd sýndi að hann hafði
litla böggla innvortis. Samkvæmt
efnaskýrslum lögreglunnar var hann
alls með 819,5 e-töflur innvortis.
Þeim hafði hann komið fyrir í smokk-
um sem hann síðan gleypti.
Fyrir dómi kvaðst hann hafa ætlað
að selja flestar töflurnar en 50-150
stk. ætlaði hann til eigin neyslu og
kunningja sinna. Töflurnar hafði
hann keypt í Amsterdam.
Auk fangelsisvistarinnar var Guð-
mundi gert að greiða Pétri Arnari
Sverrissyni hdl. 60.000 kr. í mál-
svarnarlaun. Kolbrún Sævarsdóttir
flutti málið fyrir hönd ákæruvalds-
ins.
Fangelsi í
3 ár fyrir
smygl á
e-töflum
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands
dæmdi á fimmtudag tvo unga menn
fyrir árás og hótanir gegn tveimur
lögreglumönnum og dyraverði
skemmtistaðar í nágrenni Borgar-
ness. Atburðurinn átti sér stað þann
10. október 1999.
Annar mannanna var dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið fang-
elsi en hinn til greiðslu 50.000 króna
sektar. Við ákvörðun refsingar var
tekið tillit til þess að óhæfilega lang-
ur tími hefði liðið frá því brotið var
framið og þar til ákæra var gefin út.
Málsatvik eru þau að lögreglan
var kölluð að veitingastaðnum en þar
hafði komið til átaka milli dyravarðar
og mannanna tveggja. Þegar lög-
reglan kom á staðinn voru mennirnir
komnir út. Annar þeirra var þá með
talsverðan skurð á hendi eftir að hafa
brotið rúðu í útidyrahurð.
Mennirnir veittu mikla mótspyrnu
við handtöku og reyndu að berja og
sparka í lögreglumennina. Þeir voru
þó yfirbugaðir, settir í járn og færðir
á lögreglustöðina.
Í lögreglubílnum höfðu mennirnir
í hótunum við lögreglumennina og
hétu því að vinna fjölskyldum þeirra
tjón. Sá slasaði endurtók hótanirnar
á meðan læknir gerði að sárum hans.
Lögreglumennirnir hrufluðust og
mörðust við átökin og hlutu bólgur.
Dyravörðurinn meiddist einnig.
Annar mannanna hafði tvisvar áð-
ur hlotið skilorðsbundinn fangelsis-
dóm fyrir þjófnað. Þá hefur hann
verið dæmdur til sektargreiðslna
vegna hótana og skemmdarverka.
Hann var nú dæmdur í tveggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi. Refsing-
in fellur niður haldi hann skilorð í tvö
ár. Hinn maðurinn var dæmdur í
50.000 króna sekt. Mennirnir voru að
auki dæmdir til að greiða sakar-
kostnað þ.m.t. málsvarnarlaun skip-
aðs verjanda síns, Inga Tryggvason-
ar hdl. Sigríður Jósefsdóttir
saksóknari sótti málið fyrir hönd rík-
issaksóknara. Finnur T. Hjörleifs-
son héraðsdómari kvað upp dóminn.
Dæmdir fyrir
árás og hót-
anir við lög-
reglumenn
♦ ♦ ♦
KARLMAÐUR um tvítugt
slasaðist á hendi þegar hann
ók á ljósastaur á Hafnarfjarð-
arvegi skammt norðan
Hamraborgarbrúar aðfara-
nótt sunnudags.
Aðkoma að slysinu var ljót,
að sögn lögreglu í Kópavogi,
og varð að loka Kringlumýr-
arbraut til suðurs í hálftíma á
meðan unnið var við að koma
manninum út úr bílnum.
Hann var einn í bílnum og er
grunaður um ölvun við akst-
ur.
Ók á ljósa-
staur grun-
aður um ölvun
VEÐUR var með hlýrra móti í
febrúar og þarf að fara aftur til
ársins 1994 til að finna hlýrri
febrúarmánuð, samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstof-
unni.
Í Reykjavík voru sólskins-
stundir 91,8, sem er 39,8 stund-
um umfram meðallag. Meðal-
hitinn var -0,2 gráður sem er
0,6 gráðum undir meðallagi og
úrkoma mældist 80,8 mm, sem
er nokkuð umfram meðallag.
Sólskinsstundir færri
en venjulega
Á Akureyri var meðalhitinn
-0,6 gráður og er það 0,9 gráð-
um yfir meðallagi. Úrkoman
mældist 34 mm og reyndist úr-
koman fimmtungi minni en
venja er í febrúar. Sólskins-
stundir voru 28,2 sem er 7,8
stundum færra en venja er á
Akureyri í febrúar.
Á Akurnesi á Hornafirði var
meðalhitinn 0,5 gráður og úr-
koman mældist 163,3. Á Hvera-
völlum var meðalhitinn -5,9
gráður, úrkoman mældist þá
91,9 mm og sólskinsstundir
voru 59,2.
Febrúar-
mánuður
í hlýrra
lagi