Morgunblaðið - 06.03.2001, Síða 18
FRÉTTIR
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GIN- og klaufaveiki breiðist nú
hratt út um Bretlandseyjar og er
óttast að hún komi upp á meg-
inlandi Evrópu. Um 70 tilfelli hafa
greinst í Bretlandi og tæplega 70
þúsund gripum verið fargað og
nokkur tilfelli komið upp í Frakk-
landi. Að auki hefur verið gripið til
inn- og útflutningsbanns og ann-
arra aðgerða í fleiri Evrópuríkjum
og vitað er um mörg tilfelli veik-
innar í Austur- og Suðaustur-Asíu.
Þessi veirusjúkdómur, sem er
bráðsmitandi og leggst fyrst og
fremst á klaufdýr eins og svín,
kindur, geitur og nautgripi, hefur
ekki komið upp hér á landi eftir
því sem best er vitað. Yfirvöld
hafa nú gripið til formlegra var-
úðarráðstafana líkt og þegar gin-
og klaufaveikifaraldur gekk síðast
yfir Bretland árið 1967. Þá var
kjötinnflutningur frá Bretlands-
eyjum af öllu tagi bannaður en að-
gerðirnar nú eru annars eðlis.
Í gær var komið upp sótthreinsi-
mottum í landganginum í Leifsstöð
á Keflavíkurflugvelli sem farþegar
frá Bretlandi verða hér eftir að
stíga á. Motturnar eru bleyttar
með þartilgerðum hreinsivökva og
fyrsti farþeginn til að stíga á slíka
mottu var George Robertson lá-
varður, aðalframkvæmdastjóri
NATO, þegar hann kom til lands-
ins með Flugleiðavél frá Glasgow
síðdegis í gær ásamt fylgdarliði á
leiðinni til Bandaríkjanna.
Einnig hefur embætti yfirdýra-
læknis látið gera bæklinga sem
verður komið fyrir í öllum vélum
Flugleiða, viðvörunarskilti hafa
verið sett upp á nokkrum stöðum í
Leifsstöð og allur farangur far-
þega frá Bretlandi verður gegn-
umlýstur sérstaklega.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, segir
við Morgunblaðið að sótthreinsi-
búnaðurinn sé settur
upp til að byrja með
eingöngu fyrir farþega
frá Bretlandseyjum.
Ekki standi til að grípa
til frekari aðgerða, þótt
vitað sé um tilfelli gin-
og klaufaveiki í öðrum heimsálfum
eins og Asíu. Þaðan sé ekki beint
flug til Íslands og af þeim sökum
þurfi ekki að hafa áhyggjur sem
stendur.
Tilraunaveiðar á álftum
þykja umdeildar
Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir hefur látið hafa eftir sér í
Morgunblaðinu að til greina komi
að skjóta álftir, sem koma til
landsins frá Bretlandi, til að kanna
hvort þær beri með sér gin- og
klaufaveikismit. Hefur hann sótt
um undanþágu hjá umhverfisráð-
herra um að fá að skjóta 10 álftir í
tilraunaskyni. Áform þessi hafa
vakið hörð viðbrögð fugla- og
dýravina, líkt og kemur fram á
öðrum stað í blaðinu í dag. Fugla-
verndarfélag Íslands og formaður
Sambands dýraverndunarfélaga
hafa sent frá sér ályktanir þar sem
varað er við tilraunaveiðum á far-
fuglum.
Halldór sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að nefnd um
veiðar villtra dýra væri með um-
sókn sína til umfjöllunar og málið
væri því í vinnslu. Þetta hefði ver-
ið gert þar sem vitað væri um
dæmi þess að farfuglar hefðu borið
með sér dýrasjúkdóma landa á
milli. Möguleikinn á smiti væri
fræðilegur og því mikilvægt að úti-
loka hann.
Aðspurður hvort ástæða væri til
að láta fleiri farþega en frá Bret-
landi stíga á sótthreinsimotturnar
í Leifsstöð sagði Halldór svo ekki
vera á þessu stigi. Fylgst yrði með
framvindunni í Evrópu. Gin- og
klaufaveikin hefði aðallega komið
upp í Bretlandi og þótt vitað væri
um tilfelli í öðrum heimsálfum
væri það langt liðið frá því að far-
þegar þaðan lögðu af stað þaðan
að sótthreinsun hér hefði lítið að
segja. Smithættan væri einkum til
staðar fyrsta sólarhringinn frá
mögulegu smiti.
Bretar könnuðu árið
1967 hvort starrinn
bæri með sér smit
Breskur landbúnaður gekk síð-
ast í gegnum gin- og klaufaveiki-
faraldur árið 1967 þegar komu upp
rúmlega 2.300 staðfest tilfelli víða
um Bretlandseyjar, allt norður til
Orkneyja, og 400 þúsund húsdýr-
um var slátrað. Veik-
innar hefur reyndar
gætt í Bretlandi síðan á
19. öld og árið 1981
komu einnig upp nokk-
ur tilfelli.
Talið er að mikið
þurfi að gerast nú til að veikin
verði útbreiddari en árið 1967. Til
að farga dýrunum var þá leitað að-
stoðar breska hersins. Veikin kom
upp í október 1967 og var að
mestu gengin yfir um mitt ár 1968.
Nokkur tilfelli komu upp á meg-
inlandi Evrópu en skipulögð bólu-
setning á þeim tíma er talin hafa
komið í veg fyrir mikla útbreiðslu.
Bólusetning af þessu tagi er ekki
fyrir hendi í dag, samkvæmt til-
skipun frá Evrópusambandinu.
Til að varna því að gin- og
klaufaveiki bærist til Íslands
1967–1968 var gripið til þess ráðs
að stöðva allan innflutning á unnu
kjöti frá Bretlandi en algjört bann
var þegar í gildi á gripum og hráu
kjöti. Páll Agnar Pálsson, þáver-
andi yfirdýralæknir, sagði við
Morgunblaðið í gær að aðgerðirn-
ar þá hefðu verið þær umfangs-
mestu sem íslensk heilbrigðisyf-
irvöld höfðu gripið til, þótt
kjötinnflutningurinn hefði ekki
verið eins mikill og hann er nú.
Páll sagði innflutningsbannið hafa
gilt í nokkra mánuði.
Sökum lítillar umferðar fólks
milli þessara landa á þeim tíma
þótti ekki ástæða til að koma upp
sótthreinsibúnaði á Keflavíkur-
flugvelli, að sögn Páls, eða að hafa
eftirlit með komu farfugla til
landsins, sem hann taldi að væri
erfiðleikum háð.
Páll sagði að vísu hefðu Bretar
kannað starra, sem á þeim tíma
flakkaði á milli meginlands Evrópu
og Bretlands, en sá fugl ekki sýnt
nein merki um að bera með sér
gin- og klaufaveiki. Páll sagði að ef
hann væri yfirdýralæknir í dag
myndi hann hiklaust stöðva allan
innflutning á kjötvörum frá Bret-
landi, miðað við núverandi aðstæð-
ur, en yfirdýralæknir hefur mælst
til þess við ferðamenn að þeir
komi ekki með unnin matvæli með
sér til landsins.
„Umferðin á milli landanna á
þessum árum var langtum minni
en hún er í dag. Nú fara þúsundir
manna til Bretlands. Við vorum
samt ákaflega harðir á innflutn-
ingsbanninu enda voru allir skít-
hræddir við þessa veiki.
Þetta var og er alveg
hryllilegur sjúkdómur.
Við vorum frekar fljótir
að grípa til þessa banns.
Ég fylgdist með fréttum
af veikinni í Bretlandi
og aðgerðum gegn henni í gegnum
BBC á nóttunni en þá voru hlust-
unarskilyrðin best. Ég fylgist enn
með þessum fréttum BBC og fæ
þær fyrr en hjá Ríkisútvarpinu,“
sagði Páll.
Hann sagði stærsta vanda Breta
vera þann að þeir væru stöðugt að
flytja dýrin til og versla með þau.
Stærri sláturhús og kjötvinnslur
gerðu það að verkum að sækja
þyrfti gripina lengri leiðir en áður
og gjarnan á milli landshluta.
Reiknaði Páll samt ekki með því
að veikin yrði jafnútbreidd og fyrir
rúmum þrjátíu árum.
Páll minnti á að vindur gæti
auðveldlega verið smitleið þessar-
ar veiki og að á áttunda áratugn-
um hefðu dönsk yfirvöld talið að
nokkur tilfelli gin- og klaufaveiki
hefðu líklega borist með vindi til
Suður-Sjálands frá rannsóknarstöð
við strendur Þýskalands. Fuglar
lágu einnig undir grun sem smit-
berar þó að það sannaðist ekki.
Ráðherra vill stöðva allan
innflutning á kjötvörum
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra sagðist í samtali við
Morgunblaðið skora á ferðaskrif-
stofur að hvetja ferðamenn til að
sniðganga sýkt svæði erlendis.
„Mér finnst ekkert nóg nema að
ferðaskrifstofur, svo ekki sé talað
um hérlenda bændur, átti sig á því
að glórulaus vitleysa er að ferðast
inn á þessi svæði á þessum tíma.
Ég er ekki í rónni fyrr en ferða-
skrifstofur og aðrir hafa breytt
sínum áætlunum. Við sjáum að er-
lendis er allt gert til að koma í veg
fyrir samgang milli bæja svo pest-
in breiðist ekki hratt út. Annars
tel ég varnaraðgerðir okkar ágæt-
ar,“ sagði Guðni en taldi óþarft að
leggja mikla vinnu í að kanna
hvort farfuglar beri með sér gin-
og klaufaveiki. Sjálfsagt væri að
skjóta eina og eina álft eða gæs í
vísindaskyni en Guðni spurði þá á
móti hvað menn ætluðu virkilega
að gera ef þeir fuglar sýndu nú
smit.
Guðni sagðist vera sammála Páli
Agnari Pálssyni um að stöðva ætti
allan innflutning á unnum kjötvör-
um frá Bretlandi. Innflutningur á
hráu kjöti væri bannaður og
minnti Guðni á að yfirdýralæknir
væri þegar búinn að aðvara ferða-
fólk varðandi kjötvör-
urnar. Algjört bann
kæmi vissulega til
greina.
Þá taldi landbúnaðar-
ráðherra ástæðu til að
skoða eftirlit með
ferðamönnum frá fleiri löndum en
Bretlandi, t.d. frá Asíuþjóðum og
öðrum þar sem gin- og klaufaveiki
hefur komið upp. Aðgerðirnar í
gær væru væntanlega aðeins byrj-
unin.
Halldór Runólfsson sagði bann á
öllum kjötvörum frá Bretlandi
ekki hafa komið til tals hjá emb-
ætti sínu eða í landbúnaðarráðu-
neytinu. Ef aðstæður kölluðu á
slíkt bann yrði það tekið til skoð-
unar.
Stjórnvöld grípa til aðgerða í Leifsstöð til varnar því að gin- og klaufaveiki berist til landsins
Farþegar frá
Bretlandi
stíga á sótt-
hreinsimottur
Reuters
Írar hafa gripið til mikilla öryggisráðstafana vegna smithættu á gin- og klaufaveiki og hér úðar starfsmaður
flugstöðvarinnar í Dublin sótthreinsivökva yfir stóra mottu við landganginn.
Morgunblaðið/Golli
Sótthreinsimotturnar sem komið hefur verið upp í Leifsstöð en farþeg-
ar sem koma frá Bretlandi þurfa að stíga á þær.
Þegar gin- og klaufaveiki herjaði á breskan
landbúnað á árunum 1967–1968 stöðvuðu ís-
lensk stjórnvöld allan innflutning á kjötvör-
um frá Bretlandi. Nú er gripið til sótt-
hreinsibúnaðar vegna komu ferðamanna til
landsins og eftirlit áformað með farfuglum.
Björn Jóhann Björnsson komst að því m.a.
að landbúnaðarráðherra er hlynntur al-
gjöru innflutningsbanni á kjötvörum en
dregur gildi eftirlits með farfuglum í efa.
Innflutningur á
unnu kjöti var
stöðvaður
1967–1968
Fuglar lágu
undir grun en
smit með þeim
sannaðist ekki