Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 23
FRÆÐSLUNEFND Suðurlands
stóð nýlega fyrir námstefnu um
menningartengda ferðaþjónustu á
Hótel Geysi. Var námstefnan vel sótt,
meðal annars af aðilum utan Suður-
lands sem vildu kynna sér það sem
Sunnlendingar hafa þegar lært.
Samgönguráðherra, Sturla Böð-
varsson, opnaði námstefnuna örlítið
síðar en til stóð sökum þess hversu
seinlega honum gekk að komast um
vegagerðarsvæði skammt frá Geysi.
En þegar námstefnan hafði verið sett
tóku við fyrirlestrar tíu aðila sem
fjölluðu um ótal leiðir til að laða ferða-
menn að svæðum. Mikla athygli vakti
fyrirlestur Margrétar Hallgrímsdótt-
ur þjóðminjavarðar. Í lok hans luku
fundargestir upp einum rómi um það
að mál hennar gæfi fyrirheit um meiri
tengingu þjóðminjavörslu við ferða-
þjónustu í framtíðinni en verið hefði
hingað til.
Arthúr Björgvin Bollason fjallaði
um Njálusafn og Þórður Tómasson
um safnið á Skógum og greindu báðir
frá þeirri reynslu sem þar hefði feng-
ist og þeim frumherjakrafti sem þarf
til að byggja upp slíka staði. Geir
Waage, sóknarprestur í Reykholti,
kynnti uppbyggingu Snorrastofu og
Heimskringlu í Reykholti. Bjarni
Harðarson ritstjóri og Þór Vigfússon,
fyrrverandi skólameistari, fjölluðu
um þjóðtrú, örnefni og drauga í ferða-
þjónustu og Rögnvaldur Guðmunds-
son ferðamálafræðingur um sagnalist
og mikilvægi íslenskrar sagnahefðar í
ferðaþjónustu.
Jóhanna B. Magnúsdóttir, formað-
ur ferðamálasamtaka Suðurlands,
fjallaði um þann árangur sem hefði
náðst í uppbyggingu á menningar-
tengdri afþreyingu á Suðurlandi og
ræddi einnig um ný tækifæri. Ásborg
Ósk Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi
í uppsveitum Árnessýslu, greindi frá
því sex ára ferli sem lá að baki opn-
unar Geysisstofu allt frá því hún var
draumur og þar til hún varð að veru-
leika á síðasta ári. Í hádegishléi var
námstefnugestum boðið að skoða
Geysisstofu undir leiðsögn Guðmund-
ar Jónssonar arkitekts sem hannaði
sýninguna og fá sér smá „skjálfta“ í
eftirrétt, á jarðskjálftaherminum,
eins og einhver gestur orðaði það.
Sá óvænti atburður átti sér stað á
námstefnunni að opnað var nýtt vef-
setur Geysis og þrýsti samgönguráð-
herra á hnappinn sem opnaði http://
www.geysiscenter.is við lófatak
gesta. Síðasti fyrirlesturinn fjallaði
um fjármögnun menningartengdrar
ferðaþjónustu og leiddi Sigurður
Bjarnason frá Atvinnuráðgjöf Suður-
lands gesti í allan sannleika um hana.
Eftir fyrirspurnir og umræður í lok
fyrirlestranna sleit Jón Hjartarson
fundarstjóri námstefnunni formlega
um fjögurleytið og buðu þá staðar-
haldarar á Geysi, þau hjónin Már Sig-
urðsson og Sigríður Vilhjálmsdóttir,
gestum til kaffihlaðborðs á Hótel
Geysi.
Ráðstefna um menningartengda ferðaþjónustu
Margar leiðir til að
efla ferðamennsku
Ljósmynd/Bjarni Harðarson
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra og starfsmaður Pjaxa
opnuðu nýjan vef Hótels Geysis.
andi starf, þjálfist í að útfæra hug-
myndir sínar frá fyrstu hugdettu
til lokaútfærslu hugmyndarinnar,
auki skilning sinn á gildi hönnunar
og að lokum tengi hugmynda- og
verkefnavinnu við raunverulegar
aðstæður.“ Kennari er listakonan
Elísabet Haraldsdóttir.
Síðastliðið vor fór svo fram ný-
sköpunarkeppni grunnskóla og
komust tveir nemendur Andakíls-
skóla í úrslit. Hákon Garðar átti
tvö hugverk í samkeppninni. Ann-
að þeirra, túnhliðastrekkjari, hlaut
1. verðlaun í keppninni, en hitt,
rokbaninn, var það áhugavert, að
stjórnendur Vírnets hf. ákváðu að
kaupa framleiðslurétt að hugverk-
inu og hefur sá samningur nú verið
staðfestur.
Einnig hægt að nota sem
skjól í landgræðslu
Í samningnum stendur: „Samn-
ingur þessi er um þróun og nýtingu
á hugmynd, sem ungur hugvits-
Grund - Hinn 27. febrúar sl. boðaði
skólastjóri Andakílsskóla til fund-
ar í skólanum. Tilefni fundarins
var að gefa nemendum, kennurum
og gestum tækifæri á að fagna
þeirri ánægjulegu athöfn, þegar
Vírnet hf. í Borgarnesi staðfesti
með undirritun sinni samning um
þróun og nýtingu á hugverkinu
„Rokbananum“, sem hugvitsmað-
urinn Hákon Garðar Þorvaldsson,
12 ára nemandi í Andakílskóla,
fann upp og hannaði. Rokbaninn er
skjól fyrir hesta og önnur húsdýr
þegar hvasst er í veðri.
Aðdragandann að þessu hug-
verki má rekja til síðastliðins vetr-
ar, en þá var bætt við einni
kennslustund á viku í nýsköpun í
skólanámskrá Andakílsskóla.
Markmið þessarar kennslu var eft-
irfarandi: „Stefnt skal að því að
nemandinn: vinni með eigin hug-
myndir sem lausnir á þörfum eða
vandamálum í umhverfinu, virki
hugmyndir sínar í gegnum skap-
maður skilaði inn í nýsköp-
unarkeppni grunnskólanemenda
árið 2000 undir nafninu Rokbani.
Rokbaninn er skjól fyrir hesta
og önnur húsdýr þegar hvasst er í
veðri. Hann er byggður þannig, að
veggir með þaki mynda kross eða
X og þar eru einnig jötur með
grasi og heyi til þess að skepn-
urnar geti fengið næringu þegar
þær eru í þessu skýli. Rokbaninn er
gerður úr færanlegum einingum,
sem einnig er hægt að nota sem
skjól við uppgræðslu. Gerður er
munur á hæð eininganna eftir því
hvort um hesta eða kindur er að
ræða.
Með samningi þessum heimilar
hinn ungi hugvitsmaður
Vírneti-Garðastáli hf. að vinna
áfram að þróun og hönnun hug-
myndarinnar. Verði til mark-
aðshæf afurð úr þróunarvinnunni
er fyrirtækinu frjálst að sækja um
hönnunarvernd fyrir hana, sem
verður þá eign fyrirtækisins, sem
það getur ráðstafað að vild, m.a.
með því að framselja hana öðrum.“
Samið um þróun
og nýtingu á
rokbananum
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Stefán Haraldsson, forstjóri Vírnets-Garðastáls, undirritar samninginn.
Rokbaninn; frekari útfærsla Vírnets-Garðastáls hf. í Borgarnesi.Frumhönnun Hákons Garðars Þorvaldssonar á rokbananum.
Nýsköpun grunnskólanemenda í Andakílsskóla á Hvanneyri
Bolungarvík - Stóra upplestr-
arkeppni grunnskólanema
stendur nú yfir á norðanverðum
Vestfjörðum. Nemendur sjö-
unda bekkjar grunnskólanna í
Bolungarvík, á Ísafirði og á Suð-
ureyri taka þátt í keppninni í ár.
Forkeppni fer fram í hverjum
skóla fyrir sig en úrslitakeppn-
in, þar sem tveir nemendur úr
hverjum þessara þriggja skóla
keppa, verður haldin á Ísafirði
12. mars nk. Tólf nemendur í
sjöunda bekk Grunnskóla Bol-
ungarvíkur kepptu nýlega um
sæti í úrslitakeppninni. Nem-
endurnir lásu upp úr sögum og
ljóðum sem þau völdu sér en síð-
ustu tvær vikur hafa staðið yfir
stífar æfingar undir leiðsögn
umsjónarkennara þeirra, Unn-
ar Ingvadóttur.
Sigurvegarar í forkeppninni í
grunnskóla Bolungarvíkur urðu
þau Svala Þórarinsdóttir sem
las upp úr sögunni Maddit og
Beta eftir Astrid Lindgern og
Ásmundur Gunnar Ásmunds-
son sem las upp úr bókinni
Frelsun Berts eftir Sören Ols-
son og Anders Jacobsson. Vara-
maður þeirra í úrslitakeppninni
verður Valdimar Olgeirsson.
Sigruðu
í upplestr-
arkeppni
á Bolung-
arvík
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Ásmundur Ásmundsson,
Valdimar Olgeirsson og
Svala Þórarinsdóttir ásamt
umsjónarkennara sínum,
Unni Ingadóttur.