Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 24
FRÉTTIR
24 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„HETJUBLÓÐGJAFAR“ voru
heiðraðir á ársfundi Blóðgjafa-
félags Íslands sem var haldinn 28.
febrúar sl. í húsnæði Landspítala –
háskólasjúkrahúss. Fundurinn var
sá fjölmennasti til þessa.
Að þessu sinni voru 110 blóðgjöf-
um veittar viðurkenningar fyrir að
hafa gefið blóð 50 sinnum. 14 blóð-
gjafar fengu viðurkenningu fyrir að
hafa gefið blóð 75 sinnum og 6 blóð-
gjafar náðu 100 blóðgjafa markinu.
Á fundinum voru haldin tvö
fræðsluerindi. Annars vegar sagði
Íris Ösp Bergþórsdóttir nemi í Há-
skólanum frá viðhorfskönnun með-
al almennings til Blóðbankans. Síð-
ara erindið var flutt af Kristjönu
Bjarnadóttur, starfsmanni í Blóð-
bankanum, og fjallaði um væntan-
lega beinmergsgjafaskrá á Íslandi.
Fundurinn hófst á venjubundnum
aðalfundarstörfum og var fundar-
stjóri Birkir Þór Gunnarsson en
hann er einn þeirra sem náði 100
blóðgjafa markinu á síðastliðnu ári.
Hundraðshöfðingjar
Árið 1992 náði fyrsti blóðgjafinn
100 gjafa markinu en nú eru þeir
orðnir 19 talsins. Í daglegu tali eru
þessir blóðgjafar nefndir hundr-
aðshöfðingjar. Að þessu sinni var
haldið upp á að í fyrsta sinn var
kona í hópi blóðgjafa sem náð
höfðu að gefa blóð 50 sinnum á
liðnu ári, hún heitir Úrsula E.
Sonnenfeld.
Í skýrslu formanns um starfsemi
félagsins á liðnu ári kom fram að
félagið hefur átt í viðræðum við yf-
irstjórn heilbrigðismála um hlut-
verk félagsins í blóðgjafaþjónustu
landsins. Á fundinum var kosin sjö
manna stjórn og endurkjörinn for-
maður hennar er Björn Harðarson
starfsmaður í Blóðbankanum.
Stjórn félagsins vill sérstaklega
þakka forstjóra Landspítala – há-
skólasjúkrahúss fyrir sýndan vel-
vilja í garð félagsins.
„Blóðgjafafélagið heldur á lofti
hagsmunum blóðgjafa en þeir eru
meðal annars betri aðbúnaður
blóðgjafa, bætt öryggi, betri nýting
blóðgjafarinnar og fjölgun í blóð-
gjafahópnum. Á fundinum kom
fram að á síðustu árum hefur orðið
aukning í hópi virkra blóðgjafa og
nýskráningu blóðgjafa hefur einnig
fjölgað. Árið 1999 voru virkir blóð-
gjafar á skrá 13.202 og þar af nýir
blóðgjafar 1781. Árið 2000 voru
virkir blóðgjafar 14.258 og þar af
nýir blóðgjafar 2.298.
Með markvissu starfi í Blóð-
bankanum fyrir og eftir alþjóðlega
vottun á starfseminni hefur tekist
að ná góðum árangri í þessa veru.
Sú ánægjulega þróun hefur átt sér
stað á síðustu misserum að konur
hafa komið í æ ríkari mæli í Blóð-
bankann og lagt sitt af mörkum til
hjálpar sjúkum, því blóðgjöf er
ætíð gjöf blóðgjafanna til þeirra
sem um sárt eiga að binda,“ segir í
frétt frá Blóðgjafafélagi Íslands.
Blóðgjafar hafa
aldrei verið
fleiri en nú
Björn Harðarson, formaður Blóðgjafafélags Íslands, Úrsula E. Sonn-
enfeld, fyrsta konan sem gefur blóð 50 sinnum á ári, og Þorbjörg Auð-
unsdóttir, varaformaður Blóðgjafafélags Íslands.
UM 260 hundar af 40 tegundum tóku þátt í al-
þjóðlegu hundasýningu Hundaræktarfélags Ís-
lands, sem haldin var í reiðhöll Gusts í Kópavogi
um helgina, en sigurvegari var írski setterinn,
Eel Gardens Ztorny Ztormwind, sem er ís-
lenskur meistari. Húsfyllir var á sýningunni
sem tókst í alla staði mjög vel, að sögn Emilíu
Sigursteinsdóttur sýningarstjóra. Á sýningunni
voru hundarnir skoðaðir og dæmdir út frá rækt-
unarstaðli, sem hundaræktarfélög í upp-
runalöndum tegundanna gefa út. Emilía sagði
að hundarnir væru m.a. dæmdir út frá almennri
líkamsbyggingu, eins og hæð og þyngd, höf-
uðlagi og feldi. Þá sagði hún að hreyfingar,
skapferli og almennt yfirbragð skipti einnig
máli.
Að sögn Emilíu hefur Hundaræktarfélagið
verið mjög heppið með dómara og sagði hún það
fyrst og fremst helgast af því að íslensku sýn-
ingarnar hefðu getið sér gott orð víðsvegar um
heim. Að þessu sinni voru það Michael
McCarthy, frá Írlandi, sem hefur réttindi til að
dæma allar tegundir, og Annika Ulltveit-Moe,
frá Svíþjóð, sem sáu um dómgæsluna.
Eins og áður sagði var það írski setterinn Eel
Gardens Ztorny Ztormwind, sem sigraði á sýn-
ingunni. Hundurinn er í eigu Jónu Th. Viðars-
dóttur, en Magnús Jónatansson, eiginmaður
hennar, sýndi hundinn í úrslitunum. Í öðru sæti
varð hundur af shih tzu-tegund, sem heitir
Íselda Mánagull, en hann er í eigu Sveinbjörns
Nikulássonar. Í þriðja sæti varð Freyja, sem er
íslenskur fjárhundur í eigu Önnu Dóru
Markúsdóttur. Freyja og Íselda Mánagull urðu
íslenskir meistarar á sýningunni, en Eel
Gardens Ztorny Ztormwind bar þann titil fyrir.
Á sýningunni var einnig valinn besti öldung-
urinn og besti hvolpurinn. Íslenski og alþjóðlegi
meistarinn, setterinn Xandra vom Laacher-
Haus, var valinn besti öldungurinn en hann er í
eigu Hjördísar H. Ágústsdóttur. Besti hvolpur
sýningarinnar var valinn hundur af shuh tzu-
tegund, sem er í eigu Emilíu Sigursteinsdóttur
og heitir Tangse Spader.
Hluti af starfsemi Hundaræktarfélags Ís-
lands er þjálfun ungra sýnenda á aldrinum 10 til
17 ára. Er þá metið hversu vel hundur er sýnd-
ur, hversu góðu sambandi sýnandi nær við
hundinn og hversu góða þekkingu hann hefur á
viðkomandi hundakyni.
Að þessu sinni tóku um 40 ungmenni þátt í
sýningunni og sagði Emilía að mikill áhugi væri
á meðal ungra sýnenda og að margir þeirra
væru á heimsmælikvarða. Dómari hjá ungum
sýnendum var Hans Åke Sperne.
Besti ungi sýnandinn í flokki 10 til 13 ára var
valinn Katrín Hill, sem sýndi tíbet spaniel. Í
flokki 14 til 17 ára var Steinunn Þóra Sigurðar-
dóttir valin besti sýnandinn, sem einnig sýndi
tíbet spaniel. Næsta sýning Hundaræktar-
félagsins verður haldin í Kópavogi í lok júní.
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands var haldin í Kópavogi
Írskur
setter var
valinn
bestur
Margrét Andrésdóttir sýndi enska
setterinn Eðal-Rjúpu.
Chuahua-hundurinn Íslands Ísafoldar Fönix Snær gægist yfir öxl eiganda síns, Önnu Jónu Halldórsdóttur. Boxer-hundar úr Bjarkeyjarræktun frá Ingu Gunnarsdóttur og Þresti Ólafssyni.
Morgunblaðið/Ásdís
Írski setterinn Eel Gardens Ztorny Ztormwind var valinn besti hundurinn á sýningu
Hundaræktarfélags Íslands um helgina. Í öðru sæti varð Íselda Mánagull, hundur af shih
tzu-tegund, og í þriðja sæti varð íslenski fjárhundurinn Freyja.