Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 28
VIÐSKIPTI
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR Tryggingamiðstöðv-
arinnar hf. á árinu 2000 var 171
milljón krónur samanborið við 235
milljónir á árinu 1999. Hagnaður af
vátryggingarekstri var 145 milljónir
en var 256 milljónir árið áður.
Hagnaður félagsins af fjármála-
rekstri var 251 milljón krónur á síð-
asta ári en 234 milljónir árið 1999.
Hagnaður af hlutdeildarfélögum
minnkaði milli ára, var 108 milljónir
en 139 milljónir árið áður, og tekjur
af öðrum eignarhlutum lækkuðu
einnig, voru 45 milljónir samanborið
við 84 milljónir árið 1999. Vaxta-
tekjur og gengismunir hækkuðu á
milli ára, voru 930 milljónir króna
en 880 milljónir árið áður. Fjárfest-
ingatekjur yfirfærðar á vátrygg-
ingarekstur voru 835 milljónir sam-
anborið við 789 milljónir 1999.
Undir liðnum önnur gjöld er gjald-
færsla á afskrift á viðskiptavild
vegna kaupa á Tryggingu hf. að
fjárhæð 103 milljónir. Trygging hf.
er að öllu leyti í eigu Trygginga-
miðstöðvarinnar en starfsemi
félagsins er eingöngu fólgin í eigna-
umsýslu og uppgjöri útistandandi
tjóna í erlendum endurtryggingum.
Hagnaður af sölu fjárfestinga var
81 milljón en var 30 milljónir 1999.
Afleit afkoma
í ökutækjatryggingum
Í tilkynningu frá Tryggingamið-
stöðinni segir að hagnaðurinn af vá-
tryggingarekstrinum hafi ekki verið
viðunandi á árinu 2000 því taka
verði tillit til þess að félagið færði
200 milljónir króna úr útjöfnunar-
skuld til að mæta miklum tjóna-
þunga. Þetta er annað árið í röð
sem félagið hefur þurft að grípa til
þessa úrræðis, en árið 1999 færði
félagið 255 milljónir úr útjöfnunar-
skuldinni. Þá kemur fram í tilkynn-
ingunni að mjög stór tjón hafi lent á
félaginu á síðasta ári, bruni í Ís-
félaginu í Vestmannaeyjun og bruni
í ms. Hannover á hafi úti. Einnig
hafi tjónaþungi verið mikill í öku-
tækjatryggingum og fjölskyldu- og
fasteignatryggingum. Góð afkoma
hafi hins vegar verið í sjó-, flug- og
farmtryggingum, ábyrgðartrygg-
ingum og innlendum endurtrygg-
ingum. Afkoman hafi verið viðun-
andi í slysatryggingum, slæm í
eignatryggingum og afleit í öku-
tækjatryggingum, sérstaklega lög-
boðnum ökutækjatryggingum.
Erfitt að áætla rekstrarhorfur
Í tilkynningu félagsins segir að
mjög erfitt sé að áætla rekstrar-
horfur til skamms tíma hjá vátrygg-
ingafélagi þar sem langstærsti
gjaldaliður félagsins, tjónin, séu háð
mjög miklum sveiflum. Félagið meti
hins vegar líklegan tjónaþunga og
reyni að taka iðgjald í samræmi við
það. Ekkert stórtjón hafi lent á
félaginu það sem af sé þessu ári. Þá
segir að fjármunatekjur félagsins
byggist á efnahagsumhverfinu og
þeim möguleikum til ávöxtunar sem
það gefi. Erfitt sé að segja til um
þróunina á því sviði á þessu ári, en
það sé mat félagsins að fjármuna-
tekjur verði svipaðar á árinu 2001
og á árinu 2000.
Fram kemur í tilkynningunni að
gerðar hafi verið ýmsar ráðstafanir
til að bæta afkomuna í vátrygg-
ingarekstrinum. Iðgjöld í lögboðn-
um ökutækjatryggingum hafi verið
hækkuð um 25% til 30% að jafnaði á
síðasta ári og ýmsar breytingar
gerðar á áhættuflokkum og áhættu-
svæðum og iðgjöld í húftryggingum
ökutækja hafi hækkað lítillega. Í
lok ársins hafi verið gerðar breyt-
ingar á gjaldskrá og skilmálum í
nokkrum greinum eignatrygginga.
Þá segir að vegna þess að trygg-
ingar séu að jafnaði greiddar ári
fyrirfram og gjalddagar trygginga
séu að jafnaði snemma á árinu gæti
áhrifa þessara gjaldskrárbreytinga
að takmörkuðu leyti fyrr en á árinu
2001. Þessar ráðstafanir muni bæta
afkomu vátryggingarekstursins og
leiða að öðru óbreyttu til betri af-
komu félagsins á árinu 2001 en á
árinu 2000. Mat félagsins er að
hagnaður ársins 2001 eftir skatta
geti orðið á bilinu 240 til 280 millj-
ónir króna.
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn 28. mars næstkomandi og legg-
ur stjórnin til að greiddur verði
20% arður til hluthafa á árinu 2001.
Betur í stakk búið
til að mæta sveiflum
Katrín Friðriksdóttir, sérfræð-
ingur í greiningadeild Búnaðar-
bankans Verðbréfa, segir að hagn-
aður Tryggingamiðstöðvarinnar sé í
samræmi við væntingar greininga-
deildarinnar. Eigin tjón félagsins
hafi verið nokkuð hærri en gert hafi
verið ráð fyrir en 200 milljóna
króna tilfærsla úr útjöfnunarskuld
hafi vegið þar upp á móti og skilað
félaginu þeim hagnaði af vátrygg-
ingarekstri sem búist hafi verið við.
„Útjöfnunarskuld stendur nú í 908
milljónum og hefur dregist saman
um rúmar 450 milljónir á síðustu
tveimur árum. TM hefur fært stór-
ar fjárhæðir á útjöfnunarskuld í
gegnum árin og er þess vegna betur
í stakk búið til að mæta sveiflum í
afkomu en hin tryggingafélögin.
Félagið varð fyrir tveimur
stórum tjónum á árinu, öðru í sjó-
tryggingum og hinu í eignatrygg-
ingum og var því afkoman í þeim
greinum verri en árið áður. Þrátt
fyrir þetta er flokkur sjó-, flug- og
farmtrygginga ennþá arðbærasti
flokkur trygginga. Vegna þessara
stóru tjóna vex tjónaskuld um tæpa
tvo milljarða milli ára, en af því er
hlutur endurtryggjenda 1.220 millj-
ónir. Vöxtur hreinnar tjónaskuldar,
þ.e. að frádregnum hluta endur-
tryggjenda, er því rúmar 700 millj-
ónir, sem er svipað og milli áranna
1998 og 1999. Áhrifin eru hins veg-
ar þau að efnahagsreikningur
félagsins vex um rúma 2 milljarða
milli ára en þegar þessi tjón hafa
verið gerð upp mun tjónaskuld
minnka að nýju með tilheyrandi
áhrifum á efnahagsreikning.
Athygli vekur að framlag til af-
skrifta og niðurfærslu eigna eykst
um tæp 60% á sama tíma og veðlán
aukast um 3%.
Á heildina litið er uppgjörið við-
unandi. Brugðist hefur verið við
lakri afkomu í ökutækjatryggingum
og eignatryggingum með hækkun
iðgjalda og má því búast við af-
komubata í þessum greinum. Nú-
verandi gengi hlutabréfa félagsins
er í samræmi við greiningu Bún-
aðarbankans Verðbréfa á félaginu.
Lítil viðskipti voru með bréf félags-
ins í gær og hélst gengi þeirra
óbreytt,“ segir Katrín.
Hagnaður
Trygginga-
miðstöðvarinn-
ar 171 milljón
&
<
# : #
:
&
#
*
9
@ #'B
(
:
('
;
9
C
#'
'"
!'&"
"!"
#!'"
$
#&
#"
#
!'
'&$&
&!
&%
4 "/42,
, .!.2,
/.-21
)! "1!2,
,112"
)1/!2!
%*%
%##*
)!.2.
)12.
$"#%%&
! 0!02-
- .4"2
$"#%%&
00/20
/2/=
""
$ %#*%!
*!
%*!
"%$* %%* "#* * %$* "$*#!
"%*%!
$*%!
*#!
$ * $*%!
$*$!
*!
&
'((
'((
'((
& !'$' !'$'
& ● EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Bruna-
bótafélag Íslands (EBÍ) hefur ráðið
Önnu Sigurðardóttur fram-
kvæmdastjóra
félagsins frá og
með 30. mars
næstkomandi.
Anna hóf störf hjá
EBÍ sem fjár-
málastjóri og
verkefnisstjóri
ýmissa verkefna
á sviði forvarna í
brunamálum árið
1998. Hún tekur við af Hilmari Páls-
syni sem lætur af störfum eftir 45
ára starfsferil hjá Brunabótafélag-
inu.
Anna Sigurðardóttir útskrifaðist
sem viðskiptafræðingur á stjórn-
unarsviði frá Háskóla Íslands árið
1987 og lauk meistaragráðu í op-
inberri stjórnsýslu frá Háskólanum í
Syracuse í New York fylki í Banda-
ríkjunum árið 1990.
Á árunum 1991 til 1995 starfaði
Anna sem sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Hornafjarðar og nágrennis og
gengdi síðan ýmsum stjórnunarverk-
efnum fyrir sveitafélagið Hornafjörð
á árunum 1995–1998. Hún var þá
m.a. framkvæmdastjóri stjórnsýslu-
sviðs Hornafjarðar og starfaði sem
bæjarstjóri um hríð í námsleyfi þá-
verandi bæjarstjóra.
Anna Sigurðardóttir er í sambúð
með Gunnari Þór Árnasyni versl-
unarstjóra.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
EBÍ
● EMIL B. Karlsson var ráðinn til
SVÞ-Samtaka verlsunar og þjón-
ustu frá 1. febrúar. Hann mun
annast kynningar
og markaðsmál,
menntamál, sér-
leyfismál og ým-
is önnur verk-
efni.
SVÞ eru næst-
stærstu atvinnu-
vegasamtökin
innan Samtaka
atvinnulífsins,
með um 400 aðildarfyrirtæki í
verslun og þjónustu.
Emil B. Karlsson var áður al-
þjóðafulltrúi á Iðntæknistofnun og
forstöðumaður Evrópumiðstöðvar
Impru. Þar áður var hann kynn-
ingar- og markaðsstjóri Iðntækni-
stofnunar. Emil er fil. kand. frá
Háskólanum í Lundi. Hann er gift-
ur Hallveigu Thordarson og á fjög-
ur börn og eina stjúpdóttur.
Nýr starfs-
maður SVÞ
● ORMARR Örlygsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Skinna-
iðnaðar hf. og mun hann hefja
störf hjá félaginu
um miðjan mars
nk.
Ormarr hefur
undanfarin tvö
og hálft ár starf-
að í Sviss við
þróun viðskipta-
sambanda hjá
svissneska efna-
vörufyrirtækinu
TFL, sem sér-
hæfir sig í framleiðslu efna fyrir
leðuriðnaðinn. Áður en hann fluttist
til Sviss gegndi hann starfi for-
stöðumanns rannsóknastofu
Skinnaiðnaðar hf. um tíu ára skeið.
Ormarr tekur við starfi fram-
kvæmdastjóra af Bjarna Jónassyni,
sem hefur veitt fyrirtækinu for-
stöðu frá stofnun þess árið 1993
en sagði upp störfum fyrr í þessum
mánuði.
Ormarr er 38 ára að aldri, efna-
fræðingur að mennt. Hann er
kvæntur Valgerði Vilhelmsdóttur
og eiga þau fjögur börn.
Ormarr Örlygsson
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Skinnaiðnaðar hf.
KAUPHÖLLIN í Helsinki
hefur ákveðið að kaupa 51%
í kauphöllinni í Tallinn, Eist-
landi. Kauphöllin í Tallinn
mun tengjast viðskipta- og
uppgjörskerfi HEX. Að því
er kemur fram í fréttatil-
kynningu er markmiðið með
sameiningunni að byggja
upp virkan verðbréfamark-
að í Tallinn og auka veltu,
sýnileika og seljanleika eist-
neskra verðbréfa.
Kaupin komu þeim aðil-
um sem standa að Norex-
samstarfinu verulega á
óvart. Kauphallirnar í
Eystrasaltslöndunum, Eist-
landi, Lettlandi og Litháen,
voru búnar að skrifa undir
yfirlýsingu um að ganga inn
í svokallað Norex-samstarf
kauphallanna í Svíþjóð,
Danmörku, Íslandi og Nor-
egi á þriðja ársfjórðungi
þessa árs. Í frétt frá Baltic
news service kemur fram að
í desember gekk allt sam-
kvæmt áætlun. Ljóst er að
TSE gengur ekki inn í
Norex-samstarfið að svo
stöddu. Tallinn-kauphöllin
er stærsti verðbréfamarkað-
urinn í Eystrasaltslöndun-
um.
Eystrasaltslöndin eru
ekki stór markaður miðað
við þann sænska og finnska.
Dagleg velta á finnska mark-
aðinum er um einn milljarð-
ur evra, um 80 milljarðar ís-
lenskra króna en veltan á
þeim eistneska er einungis
um 1,4 milljónir evra, um 112
milljónir króna. Veltan á
þeim lettneska og litháíska
er enn minni. Þessi litla velta
hefur gert að verkum að
kauphöllin í Tallinn hefur
lagt áherslu á að tengjast
stærri markaði. Forráða-
menn HEX hafa einnig lýst
yfir áhuga á samstarfi við
kauphallirnar í Riga í Lett-
landi og Vilnius í Litháen.
Viðskiptakerfi HEX verð-
ur tekið upp í Tallinn og mun
það auka sýnileika eist-
neskra skulda- og hluta-
bréfa. Alþjóðlegir fjárfestar
munu þannig eiga greiðari
aðgang að eistneskum verð-
bréfum. Eistneskir fjárfest-
ar hafa fjárfest nokkuð á
finnska markaðinum og
mun kostnaður við viðskipt-
in lækka með sameiningu
kerfa HEX og TSE.
OM-gruppen sem rekur
kauphöllina í Stokkhólmi og
á 15% í HEX-group sem
rekur kauphöllina í Helsinki
kom fréttin á óvart. Ljóst er
að Finnarnir hafa takmark-
aðan áhuga á að ganga inn í
Norex að svo komnu. Í yf-
irlýsingu HEX kemur fram
að kaupin á TSE þjóna
hagsmunum og framtíðar-
sýn kauphallarinnar í Hels-
inki. Stefna kauphallarinnar
hefur verið að vaxa og er
stærsti hluti af veltu HEX í
viðskiptum með bréf Nokia-
fjarskiptafyrirtækisins. Mat
stjórnenda HEX er að
nauðsynlegt sé fyrir kaup-
höllina að stækka markað-
inn og auka breidd í verð-
bréfavali. Með kaupunum á
TSE mun Helsinki verða
stærri og sýnilegri markað-
ur fyrir erlenda fjárfesta.
Þrátt fyrir smæð markað-
anna í Eystrasaltslöndunum
eru það vonbrigði fyrir þá
sem eru í Norex verði þau
ekki með og kjósi að taka
upp kerfi HEX. Haft var eft-
ir Gert Tiivas, framkvæmda-
stjóra TSE, að framtíðarsýn
HEX og TSE um framtíð
evrópskra verðbréfamark-
aða færi vel saman.
Mikill vöxtur hefur verið
undanfarin ár hjá HEX-
group sem rekur finnsku
kauphöllina. Velta á finnska
verðbréfamarkaðinum meira
en tvöfaldaðist milli árana
1999 og 2000. Alþjóðlegir
fjárfestar eiga um 70% af
heildarverðmæti hlutabréfa
á markaðinum og um eitt
hundrað aðilar dreifa upplýs-
ingum um habb um allan
heim. HEX- group áætlar að
selja hlutabréf sín á almenn-
um markaði innan skamms.
Markaðsvirði HEX er talið
vera um 250 til 300 milljónir
evra eða um 20 til 24 millj-
arðar íslenskra króna.
Hans-Ole Jochumsen sem
er í forsvari fyrir Norex-
samstarfið ítrekaði eftir
fréttirnar að Finnum stæði
til boða að vera með í Norex.
Kauphöllin í Helsinki
fjárfestir í Eistlandi
STUTTFRÉTTIR
GENGI hlutabréfa í net-
verslunarfyrirtækinu
Amazon.com hækkaði á
Nasdaq-hlutabréfamark-
aðnum í gær, í framhaldi
af orðrómi um viðræður
stjórnenda fyrirtækisins
og Wal-Mart verslunar-
keðjunnar um hugsanlegt
samstarf fyrirtækjanna.
Á síðastliðnu ári féll
gengið um 83% en strax
við upphaf viðskipta í
gær hækkaði það um rúm
24%.
Netið í umsjón Amazon
Til umræðu mun meðal
annars vera að Amazon
sjái um stefnumótun Wal-
Mart á Netinu en fá í
staðinn hluta af sölu-
tekjum sem kæmu í
gegnum netsölu Wal-
Mart. Hvorki stjórnendur
Amazon né Wal-Mart
hafa vilja láta hafa nokk-
uð eftir sér um hugsan-
legt samstarf.
Gengi Am-
azon.com
hækkar
vegna
orðróms
New York, Reuters