Morgunblaðið - 06.03.2001, Blaðsíða 34
ERLENT
34 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRNVÖLD í Bretlandi gripu
til umfangsmikilla varúðarráðstaf-
ana í gær vegna sprengjutilræð-
isins gegn aðalstöðvum breska rík-
isútvarpsins, BBC, á sunnudags-
morgun. Sprengjan var öflug, 4,5
til 9 kg. Hún sprakk í rauðum
leigubíl er lagt hafði verið við hús-
ið og varð mikið tjón á götuhliðinni
og neðstu hæðum en aðeins einn
slasaðist. Viðvörun barst símleiðis
seint á laugardagskvöld og lög-
reglu tókst að rýma svæðið í tæka
tíð. Einn maður meiddist hins veg-
ar lítillega af völdum glerbrota.
Óttast er að fleiri tilræði muni
fylgja í kjölfarið.
Nokkrum stundum eftir viðvör-
unina fann lögreglan bílinn sem
þótti grunsamlegur, honum hafði
verið lagt öfugt við akstursstefnu
og viðvörunarljós farartækisins
blikkuðu. Var þá hús BBC rýmt og
umferð í grennd við Victoria-járn-
brautarstöðina bönnuð í 90 mín-
útur en þar er jafnan mikill fjöldi
fólks, ferðamanna og viðskiptavina
stórverslana, á ferli. Sprengjan
sprakk skömmu eftir miðnætti,
dynkurinn heyrðist í margra kíló-
metra fjarlægð og logatungurnar
náðu hátt í loft upp.
Enginn hefur lýst ábyrgð á
hendur sér vegna tilræðisins en
lögreglan segir að klofningshópur
úr Írska lýðveldishernum, IRA, er
nefnir sig Hið sanna IRA, hafi
staðið fyrir því. Lögreglan hefur
beðið almenning um upplýsingar
um hvítan mann á fertugs-
aldri sem vitað er að keypti um-
ræddan bíl. Bílasalinn sagði mann-
inn hafa talað með norður-írskum
hreim.
„Verk hugleysingja“
Nýlega var sýndur sjónvarps-
þáttur í BBC um Hið sanna IRA
þar sem liðsmenn hópsins voru
bendlaðir við mannskætt tilræði í
Omagh á Norður-Írlandi árið 1998.
29 manns fórust í Omagh.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um
að sprengjan er liður í herferð eða
röð árása sem gerðar verða á meg-
inlandi Bretlands og Norður-Ír-
landi,“ sagði Alan Fry, yfirmaður
aðgerða gegn hryðjuverkum hjá
rannsóknarlögreglunni, Scotland
Yard. Hann sagði að tengsl væru á
milli tilræðisins og þriggja árása
sem gerðar voru í London í fyrra,
þar á meðal var eldflaugaárás á
aðalstöðvar leyniþjónustunnar,
MI6.
Vopnahlé sambandssinna og
IRA á Norður-Írlandi hefur staðið
frá 1997 en nokkrir hópar úr röð-
um kaþólikka eru ósáttir við samn-
ingana og vilja halda áfram að
beita hermdarverkum til að þvinga
breska herinn frá héraðinu og
sameina það Írlandi. Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, sagði
að tilræðið væri „verk hugleys-
ingja“ og það myndi ekki stöðva
friðarviðleitnina.
Írskir hryðjuverkamenn sagðir standa að baki tilræði gegn BBC
Óttast að fleiri sprengju-
árásir fylgi í kjölfarið
Lögreglumenn í London fjarlægja illa leikinn bíl sem lagt hafði verið í grennd við aðalstöðvar útvarpsins.
London. AP, AFP.
Reuters
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) hyggst
leggja til að í aðildarsamningum
við Mið- og Austur-Evrópuríkin
verði samið um fjögurra ára frest
á frjálsum flutningum vinnuafls
frá þessum löndum um allt Evr-
ópska efnahagssvæðið. Hafði
þýzka dagblaðið Frankfurter All-
gemeine Zeitung (FAZ) þetta upp
úr vinnugögnum frá framkvæmda-
stjórninni, sem að sögn blaðsins
stendur til að leggja fyrir ráð-
herraráð sambandsins á næstu
dögum.
Óttast ódýrt vinnuafl
Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, hafði lagt til að kveðið
yrði á um sjö ára aðlögunarfrest á
frjálsum vinnuaflsflutningum eftir
ESB-inngöngu Póllands og hinna
Mið- og Austur-Evrópuríkjanna,
og lýstu Austurríkismenn stuðn-
ingi við þá tillögu. Í Þýzkalandi og
Austurríki, sem næst liggja hinum
væntanlegu nýju aðildarríkjum, er
útbreiddur ótti við að ódýrt vinnu-
afl streymi að austan yfir landa-
mærin eftir stækkun sambandsins,
og að þetta muni t.d. auka enn á
atvinnuleysisvandann. Aðrir í ESB
gera minna úr þessari meintu ógn,
en með tillögu sinni um fjögurra
ára aðlögunarfrest fer fram-
kvæmdastjórnin bil beggja. Tillag-
an mun vera byggð á því fyr-
irkomulagi sem samið var um
þegar Spánn og Portúgal gengu í
Evrópusambandið (þá Evrópu-
bandalagið) árið 1985.
Stækkun ESB
Frjálsum
vinnuafls-
flutningum
frestað?
Frankfurt. AFP.
SAMKOMULAG náðist í síðustu
viku milli Evrópuþingsins (EÞ) og
ráðherraráðs Evrópusambandsins
(ESB) um nýja Evrópulöggjöf sem
skyldar tóbaksframleiðendur til
að prenta á umbúðir tóbaksvara á
Evrópumarkaði mun stærri og ein-
dregnari viðvaranir um óhollustu
tóbaksneyzlu en áður var krafizt.
Auk þess verður bannað að nota
villandi heiti um innihaldið, svo
sem „light“ og „mild“. Ennfremur
eru sett strangari mörk við því hve
mikið magn ávanabindandi efna
eins og níkotíns, tjöru og kolefnis-
mónoxíðs má vera í sígarettum.
Gert er ráð fyrir að þessar nýju
reglur verði orðnar að lögum í öll-
um aðildarríkjum ESB fyrir sept-
emberlok 2002. Þær ná til allra
tegunda tóbaksvara, þ.e. sígar-
etta, vindla, pípu-, nef- og munn-
tóbaks.
„Með þessu höfum við náð nýj-
um áfanga í baráttunni gegn tób-
aksneyzlu,“ sagði Lars Engquist,
heilbrigðisráðherra Svíþjóðar,
sem gegnir formennskunni í ESB
þetta misserið. Tilskipunin „þýðir
að við höfum nú það sem til þarf til
að grípa til róttækra aðgerða
gegn mestu ógninni við heilsu al-
mennings sem við búum við í álf-
unni“, sagði hann.
David Byrne, sem fer með heil-
brigðis- og neytendamál í fram-
kvæmdastjórn ESB, sagði að til-
skipunin væri áfangi í átt að því
markmiði að lækka hlutfall reyk-
ingamanna í Evrópu – úr einum af
hverjum þremur niður fyrir einn
af hverjum fimm, eins og hlutfallið
er í Bandaríkjunum.
„Forgangsmarkmiðið er að
reyna að fá ungt fólk til að byrja
ekki að reykja,“ sagði Byrne.
Ljósmyndir af reykingasjúk-
dómum á sígarettupökkum
Samkvæmt nýju reglunum eiga
viðvaranir um heilsuspillandi áhrif
reykinga að þekja a.m.k. 30% af
yfirborði sígarettupakka, í stað
um 4% nú. Auk þess heimila þær
yfirvöldum aðildarríkjanna að
setja enn strangari reglur, svo
sem að á alla sígarettupakka skuli
prenta ljósmyndir af illa förnum
líffærum úr reykingafólki, s.s.
lungnakrabbameini eða krans-
æðastífluðu hjarta.
Herferð gegn reykingum
Brussel. Reuters. AFP.
Sviss höfðu knúið fram að yrði borin
undir þjóðaratkvæði. Samkvæmt
svissneskum stjórnlögum ber að láta
fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu sé
nógu mörgum undirskriftum safnað –
í þessu tilviki 100.000.
Fjögurra flokka samsteypustjórn-
in, sem er við stjórnvölinn í Bern,
túlkaði niðurstöðuna þó sem staðfest-
ingu á því að Svisslendingar væru upp
til hópa samþykkir Evrópustefnu
stjórnarinnar, sem gerir ráð fyrir
hægfara aðlögun að ESB. Höfnuðu
RÍKISSTJÓRN Sviss staðfesti í gær
að hún hygðist halda fast við þau
áform, að hefja viðræður um fulla að-
ild að Evrópusambandinu fyrir árið
2007, þrátt fyrir að tillaga um að slík-
ar viðræður skyldu hafnar strax hefði
verið felld með miklum meirihluta í
þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag.
Stjórnin hafði mælt með því að tillög-
unni yrði hafnað.
Rúmlega þrír af hverjum fjórum
sem greiddu atkvæði höfnuðu tillög-
unni, sem eindregnir ESB-sinnar í
talsmenn stjórnarinnar þeirri túlkun,
að niðurstaðan þýddi að einangrunar-
hyggja landsmanna hefði styrkzt.
„Það er of snemmt að fara út í að-
ildarviðræður nú, en stefnan (inn í
ESB) er óhögguð,“ sagði Rudi Chris-
ten, talsmaður svissneska utanríkis-
ráðuneytisins.
Aðeins rúmt ár er síðan tvíhliða
samningar Sviss við ESB gengu í
gildi og þykir flestum Svisslendingum
rétt að láta betur á þá reyna áður en
gengið er lengra í að nálgast ESB.
Svisslendingar hafna tillögu um ESB-aðildarviðræður
Ríkisstjórn Sviss túlkar
niðurstöðuna sér í hag
Zürich. Reuters.
súlu af þremur, sem sagðar eru
tákna Satan. Eru þær í Mina-dal,
skammt frá fæðingarstað Múham-
eðs spámanns. 1998 týndu 118 píla-
grímar lífi og meira en 180 slösuð-
ust við þessa sömu athöfn.
Myndin sýnir hluta mannfjöldans
en súlan, tákn Satans, er ofarlega
fyrir miðri mynd.
ÞRJÁTÍU og fimm múslímskir píla-
grímar tróðust undir í gær er tug-
þúsundir manna söfnuðust saman til
að „grýta Satan“ skammt frá hinni
helgu borg Mekka í Sádi-Arabíu.
Ríkisútvarpið í Sádi-Arabíu
sagði, að 23 konur og 12 karlmenn
hefðu troðist undir í látunum er
mannfjöldinn þusti í átt að einni
AP
35 tróðust undir
Mina. AFP.