Morgunblaðið - 06.03.2001, Síða 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 37
að skoða og reyna að skilja stelpur
frá eigin karlmannlegu sjónarhorni
eins og hann orðar það. Á sviðinu
standa þrjár konur hver í sínum
upplýsta ferhyrningi. Þær hreyfa
sig vélrænt.
Sterk ljós uppsviðs blinda áhorf-
endur þegar þrír karlmenn birtast
og virða konurnar forvitnir fyrir sér.
Þær hreyfa sig í takt við erlent
tungumál og þeir horfa á. Tónlistin
og hljóðin í verkinu koma úr ýmsum
áttum.
Rafmagnshljóð er notað til að búa
til atburðarás. Rauður sófi og hæg-
indastóll eru á sviðinu en í þeim situr
fólk sem líkist framliðnum verum.
Það starir og bendir út í loftið en fær
raflost þess á milli frá ljósaperu sem
gengur á milli þeirra. Leikurinn
færist um sviðið þegar karldansar-
arnir leitast við að koma lífi í einn
kvendansarann sem dansaður er af
Hildi Óttarsdóttur en hún situr
hreyfingalaus eftir raflost í hæg-
indastólnum. Stóllinn fylgir hreyf-
ingum hennar um sviðið svo úr verð-
ur einskonar stóladans. Á loka-
spretti verksins dansar Cameron
Corbett sóló undir rússneskum kór-
söng.
Verkið var frekar sundurleitt þó í
því séu fallegar fléttur hreyfinga og
samsetninga. Konurnar þrjár
hreyfðu sig undir erlendu tungumáli
sem gerði það að verkum að þær
virtust fjarlægar og ókunnugar.
Karldansararnir þrír voru ýktir í
túlkun og minntu óneitanlega á
Bakkabræður í fautaskapnum við að
nálgast konurnar. Umhverfi senunn-
ar sem á eftir kom gat hæglega verið
tilvitnun í X-Files sjónvarpsþættina,
þar sem framliðnar verur létu að sér
kveða í dansi og leik. Stóladansinn
og atlaga karlmannanna þriggja við
að fá konuna til að lifna við eða sýna
viðbrögð var athyglisverð og
skemmtilega útfærð þar sem stóll-
inn var notaður á allan mögulegan
og ómögulegan hátt. Hildur Óttars-
dóttir sýndi einlægni og styrk í
dansi svo og Cameron Corbett sem
dansaði stutt, fallega túlkað sóló við
rússneskan kórsöng. Engum nýjum
flötum um hvernig karlmenn sjá
konur var velt upp í verkinu. Það
bar fremur með sér: Ég skil ekki
konur versus karlmenn eru óþol-
andi. Verkið var engu að síður vel
dansað og skartaði góðum kostum
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ síð-
astliðið frumsýndi Íslenski dans-
flokkurinn tvö dansverk eftir þá Jo
Strömgren og Rui Horta. Báðir höf-
undarnir hafa flutt verk hérlendis
áður. Björgvinjarbúinn Jo Ström-
gren var gestur Norræna hússins
árið 1999. Hann hefur hlotið athygli í
Noregi fyrir verk sín. Hann stofnaði
sinn eigin dansflokk, Jo Strömgren
Kompani, árið 1998 og semur nú í
fyrsta sinn fyrir Íslenska dansflokk-
inn. Portúgalinn Rui Horta er ís-
lenskum dansunnendum góðkunnur.
Fyrir ári flutti dansflokkurinn tvö
dansverk í Borgarleikhúsinu eftir
hann. Horta lærði og starfaði sem
dansari í New York og tók við
stjórnun Companhia de Danca de
Lisboa 1984. Hann stofnaði SOAP
Dance Theater Frankfurt árið 1991
en sagði skilið við flokkinn nokkrum
árum síðar til að geta einbeitt sér að
samningu eigin dansverka. Rui
Horta hefur kosið að fara aðra leið
en flestir danshöfundar samtímans.
Hann hafnar vinnuumhverfi stóru
leikhúsanna sem standa honum til
boða en vinnur þess í stað með fá-
mennum hópi dansara utan við
Lissabon. Íslenski dansflokkurinn
frumflytur að þessu sinni dansverk
eftir Horta sem er sérstaklega sam-
ið fyrir flokkinn.
Í dansverkinu fæst höfundur við
dansara Íslenska dansflokksins sem
eru gott vald á snerpu í hreyfingum í
bland við ljóðræna hreyfimýkt.
Vatn er höfundi hugleikið í verk-
inu sem og í fleiri verkum hans.
Pocket Ocean er þverstæða, því haf
rúmast ekki í vasa. Þó langar mann-
eskjuna til að fanga hafið. Hún býr
yfir forvitni til að seilast eftir því
ómögulega.
Fyrir höfundi er ekkert jafn dul-
arfullt og vatn. Það færir innra jafn-
vægi og gefur ákveðna kyrrð en er
dularfullt þar sem eingöngu yfir-
borðið sést.
Verkið hefst þegar áhorfendur
eru að koma inn í salinn eftir hlé.
Cameron Corbett talar í míkrafón
við félaga sinn Chad Adam Bantner.
Saman blaðra þeir þar til allir eru
sestir og ljós deyfast. Mynd af
straumharðri á er varpað á tjald
með tilheyrandi árniði. Félagarnir
breytast í teiknimyndafígúrur og
skakklappast um sviðið dágóða
stund. Annar þeirra spýtir vatni á
renning sem er í myndlíkingu vatns
á sviðinu. Hildur Óttarsdóttir birtist
og dansar við straumharða ána.
Dansarar hreyfa sig við vélræn
verksmiðjuhljóð og þungan vatnsnið
og stökkva yfir vatnsrenninginn ým-
ist ákveðið eða hikandi. Verkið end-
ar á því að Cameron Corbett stígur
á renninginn og skuggamynd hans
er varpað endilangri á vegginn upp-
sviðs.
Skuggamynd hans og hreyfingar
vatnsins renna saman í eitt á veggn-
um.
Verkið samanstóð af misgóðum og
misvel útfærðum hugmyndum. Sam-
tal dansaranna tveggja í upphafi
virkaði tilgerðarlegt meðan dans
Hildar Óttarsdóttur við ána bar með
sér djúpa einlægni. Dansi undir
þungum verksmiðjuhljóðum (ofnot-
aður effekt hjá mörgum danshöf-
undum) var ofaukið.
Hann bætti engu við verkið og
virkaði sem klisja gegnt snilldarlega
vel útfærðum endi verksins þar sem
einfaldleikinn og hugvit fengu notið
sín.
Lýsingin í verkinu var takmörkuð
og einhæf sem gerði það að verkum
að grámi var yfir því að óþörfu. Af
öðrum ólöstuðum var það einlæg
túlkun Hildar sem gerði sér mat úr
sínu hlutverki og feykifallegur, ljóð-
rænn og myndrænn endir verksins
sem var eftirminnilegastur. Ofsa-
hraðar samsetningar við ærandi tón-
list þurfti ekki til að halda athygli
áhorfenda. Einfaldleikinn og ein-
lægnin í dansverkinu ásamt mynd-
rænu hugviti höfundar er það sem
stóð upp úr. Aðrir þættir þess eru
áhrifaminni og sumum þeirra var
ofaukið.
Áhorfendur sem greinilega kunnu
að meta sýninguna, létu hrifningu
sína í ljós með því að rísa úr sætum
og hylla aðstandendurna með dynj-
andi lófaklappi.
LISTDANS
B o r g a r l e i k h ú s i ð ,
Í s l e n s k i d a n s -
f l o k k u r i n n
Danshöfundur: Jo Strömgren. Tón-
list: Ýmsar óþekktar upptökur,
raddir dansara Íslenska dans-
flokksins, Jean Marc Zelwer, Jo
Strömgren, Kór Rauða hersins.
Lýsing: Jo Strömgren. Búningar:
Jo Strömgren, Stefanía Adolfs-
dóttir. Hljóðhönnun: Jo Strömgren,
Lars Aardal. Aðstoðarmaður dans-
höfundar: Lone Torvik. Dansarar:
Cameron Corbett, Chad Adam
Bantner, Guðmundur Helgason,
Hildur Óttarsdóttir, Hlín Diego
Hjálmarsdóttir, Katrín Johnson,
Lára Stefánsdóttir, Peter And-
erson. Laugardagur 3. mars 2001.
KRAAK EEN –
KRAAK TWEE
Karlar um konur
og haf í vasa
Morgunblaðið/Golli
Hildur Óttarsdóttir í hlutverki sínu í Pocket Ocean eftir Rui Horta.
Lilja Ívarsdótt ir
Danshöfundur: Rui Horta. Tónlist:
Yens & Yens, Andy Cowton, Death
Ambient, Louis Andriessen. Lýsing:
Rui Horta, Elfar Bjarnason. Bún-
ingar: Kathy Brunner. Aðstoð-
armaður danshöfundar: Jan Kodet.
Dansarar: Cameron Corbett, Chad
Adam Bantner, Elías Knudsen,
Guðmundur Helgason, Hildur Ótt-
arsdóttir, Hlín Diego Hjálm-
arsdóttir, Katrín Johnson, Lára
Stefánsdóttir, Peter Anderson.
POCKET OCEAN