Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 48
MINNINGAR
48 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Páll Sverrir Pét-ursson fæddist á
Akranesi 13. maí
1960. Hann lést 23.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
hjónin Margrét Vet-
urliðadóttir, f. á Ísa-
firði 18. júlí 1930, og
Pétur G. Jónsson, f. í
Reykjavík 15. des-
ember 1931. Systkini
Páls eru: 1) Jóna Lilja
Pétursdóttir f. 27.
apríl 1953, sambýlis-
maður hennar er
Árni Jón Kristjáns-
son, f. 20. desember 1955. 2) Jón
Pétur Pétursson, f. 26. mars 1954.
Kona hans er Kristín H. Guð-
mundsdóttir, f. 27. júní 1958. 3)
Gunnar Pétursson, f. 24. janúar
1956. Kona hans er Elísabet Magn-
úsdóttir, f. 13. ágúst 1957. 4) Þor-
lákur Pétursson, f. 21. ágúst 1968.
Kona hans er Sigríður H. Sigmars-
dóttir, f. 27. janúar 1968.
Hinn 13. maí 1989 kvæntist Páll
eftirlifandi eiginkonu sinni, Kötlu
Þorsteinsdóttur, f. 11. janúar 1964
í Reykjavík. Hún er dóttir
hjónanna Þorsteins Ólafssonar, f.
25. júní 1942, og Kolfinnu Ketils-
dóttur, f. 10. ágúst 1943. Börn Páls
eru: Af fyrra hjónabandi Jónína
Lilja, f. 11. júní 1980,
Arna, f. 18. apríl 1985.
Af seinna hjónabandi
Ólafur, f. 15. maí
1990, Diljá, f. 21. sept-
ember 1993. Sonur
Kötlu af fyrra hjóna-
bandi og fóstursonur
Páls er Þorsteinn, f. 5.
desember 1983.
Fyrri eiginkona
Páls er Martha Árna-
dóttir. Þau skildu.
Páll starfaði sem
kerfisfræðingur.
Ferill hans sem slíks
hófst hjá Heimilis-
tækjum árið 1981. Í framhaldi af
því stofnaði hann sitt eigið hug-
búnaðarfyrirtæki, sem hann rak
svo síðar í samstarfi við aðra –
ALLT hugbúnað. Árið 1990 seldi
hann stóran hluta fyrirtækisins til
Ópuss og er sá samruni þekktur
undir nafninu Ópus-Allt í dag.
Hann sneri sér svo alfarið að því að
þjóna hugbúnaði hita- og rafveitna
og vann sjálfstætt að því til 1998 er
hann seldi þann þátt til Tölvu-
mynda. Þar starfaði hann til 2000
er hann hóf störf hjá Landsteinum
þar sem hann starfaði er hann lést.
Útför Páls fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Dáinn, horfinn, harmafregn!
Hvílíkt orð mig dynur yfir,
en ég veit, að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn.
Þannig fórust Jónasi Hallgríms-
syni orð, þegar honum bárust þau
tíðindi, að hans besti vinur og nánasti
samstarfsmaður hefði lotið í lægra
haldi fyrir dauðans bitra brandi á
meðan ævisólin hans stóð enn í há-
degisstað.
Okkur finnst sem áþekkar tilfinn-
ingar og Jónas lýsir hafi tekið sér bú-
stað í hjarta okkar, þegar elsku
hjartans drengurinn okkar, hann
Páll Sverrir, sem við alltaf kölluðum
Palla, var hrifinn frá okkur foreldr-
um hans, fjölskyldu hans og öðrum
ástvinum á svo grimmdarlegan og
miskunnarlausan hátt, að okkur
finnst við stödd í náköldu niða-
myrkri, þar sem við sjáum ekki
handa okkar skil. Við skiljum ekki
hvers vegna þetta hlaut þannig að
fara og getum í raun og veru alls ekki
sætt okkur við það. Palli okkar, þessi
yndislega góði, fallegi, ljúfi og
hjartahlýi drengur, horfinn frá okkur
fyrir fullt og allt! Við trúum því ein-
faldlega ekki. En samt vitum við, að
það er staðreynd, sem við verðum að
lúta og búa við á meðan ævin okkar
endist. En það er svo ósegjanlega
sárt og erfitt að hugsa sér lífið án þín,
elsku drengurinn okkar, sem svo oft
tendraðir gleðiljós í hjarta okkar
með návist þinni einni saman. Og
þegar við lítum til liðinna stunda, þá
er sem rofi til. Heljarmyrkrið svarta
víkur fyrir björtum geislum frá þeim
ljúfu og ljósu minningum, sem við
eigum frá samverustundum með þér.
Þær munu lifa og lýsa okkur til leið-
arloka.
Sjálfur verður hann þó alltaf bjart-
asti geislinn. Hann kom eins og ynd-
islegur sólargeisli inn í líf okkar þeg-
ar hann fæddist. Og þannig var það
löngum á meðan leiðirnar okkar lágu
saman. Brosandi gleði og birta
fylgdu honum. Glettnisblikið í augum
hans var bjart og tært eins og dögg á
vori. Hann var svo einstaklega minn-
ugur á hin ýmsu tímamót í lífi okkar,
afmælisdaga, mæðradag og aðra há-
tíðisdaga í lífi fjölskyldunnar gerði
hann lifandi, með blómum eða á ein-
hvern þann hátt annan, sem honum
þótti við hæfi. Honum var líka svo
eiginlegt að vefja mömmu sína örm-
um og tjá henni þannig væntum-
þykju sína. Hið hlýja viðmót var
meðal þeirra mörgu góðu eiginleika,
sem einkenndu hann allra mest.
Hann var smekkvís í klæðaburði,
háttvís í framkomu og glæsimenni að
vallarsýn. Þótt það sé að vísu alveg
rétt, að „hverjum þykir sinn fugl fag-
ur“, þá getum við staðhæft þetta með
fullri vissu, af því að allir þeir sem
þekktu hann Palla okkar, voru á einu
máli um útlit hans.
Góðir námshæfileikar Palla voru
okkur mikið gleði- og þakkarefni.
Það var sem flest þau hlutverk er
hann fékkst við, léku í höndum hans.
Fallegt heimili og dásamleg fjöl-
skylda var honum einnig af Guði gef-
in.
Ein af mörgum samverustundum
með Palla okkar og Kötlu hans var
ferðin okkar með þeim til Kúbu fyrir
tæpum fimm árum. Þar reyndist
Palli og þau hjónin bæði okkur svo
vel, að ekki gleymist. Þar var öll
áhersla á það lögð, að við fengjum að
njóta sem allra best alls þess, sem
fyrir augu og eyru bar. Kæmu upp
einhver vandamál, voru þau leyst í
einni svipan og reynt að koma til
móts við allar óskir okkar, væri þess
nokkur kostur. Og þetta var ekki í
eina skiptið, sem við fengum að njóta
umhyggju þeirra og elskusemi. Þau
áttu alltaf nóg af hlýju og kærleika til
þess að gera okkur glatt í geði og
varpa birtu fram á veginn.
En nú er hann Palli ekki lengur hjá
okkur. Við sitjum ein eftir vafin
svörtum sorgarskuggum. Eina von-
arstjörnu eygjum við þó á framtíð-
arhimninum, þá sömu og Jónas forð-
um. Við vitum, að látinn lifir. Hann
Palli lifir í kærleiksfaðmi Guðs, í
samfélagi við foreldra okkar, afa sína
og ömmur, og aðra kæra ástvini, sem
þegar eru gengnir Guðs á fund. Við
vitum og trúum því staðfastlega, að
þar, á landi lifenda, fáum við í fyll-
ingu tímans fagnandi að reyna með
honum, þegar „æðri dagur, dýrðar-
skær og blíður, með Drottins ljósi
skín á öll vor spor“.
Við kveðjum þig, elsku drengurinn
okkar, með dýpri og heitari þökk en
mannleg orð fá tjáð, biðjum góðan
Guð að blessa Kötlu og börnin ykkar
öll, lýsa þeim með ljósi kærleika síns
og vaka yfir heimilinu ykkar.
Guð geymi þig, elsku vinur.
Mamma og pabbi.
Guð minn góður, hvað hefur gerst?
Þú ert dáinn og þú valdir það?
Af hverju komstu ekki til okkar og
baðst um hjálp?
Og af hverju leið þér svona illa?
Það er svo erfitt að vera fullur af
spurningum sem enginn getur svar-
að, og að vita að þú gætir örugglega
ekki svarað þeim, elsku pabbi minn.
Þú varst með stærsta hjarta sem
ég veit um og þú réðst ekki við það.
Þú elskaðir svo sterkt og hlýtt að það
var enginn vafi á að þú elskaðir okk-
ur, þess vegna er svo erfitt að vita að
þér leið samt svo illa að á endanum
gafstu upp.
Svo margar minningar rifjuðust
upp þegar þetta gerðist, eins og þeg-
ar þú kallaðir mig alltaf „stóra happ-
drættisvinninginn“ þinn. Ég á eftir
að sakna þess svo mikið.
Margt annað hefur líka rifjast upp
eins og þegar ég var fjögurra ára og
borðaði allt nammið úr dagatölunum
okkar Steina og sagði að vinur Steina
hefði gert það en þú vissir nú betur.
Það sem mun sitja svo fast í minn-
ingum mínum er það sem við gerðum
bara tvö saman, eins og í London, ég
var ellefu ára og við fórum á óperu,
bara við tvö, og þú gafst mér kjól til
að fara í og ég var svo fín eins og þú.
Svo í sumar fórum við öll til Ítalíu,
sem var svo yndisleg ferð, jafnvel
þótt þú hentir okkur allavega þrisvar
á dag í ískalda laugina, og ég á eftir
að sakna þess svo mikið að fara með
þér til útlanda.
Elsku pabbi minn, við eigum svo
margar minningar saman að þær
geta brennt mig að innan og ég græt
og hlæ til skiptis.
Ég er búin að hugsa mikið um hver
á að leiða mig upp að altarinu þegar
ég gifti mig? Hver fer með mér í æf-
ingaakstur? Og hver á eftir að kalla
mig „stóra happdrættisvinninginn“
sinn? Ég veit að það verður ekki þú,
en ég mun hugsa til þín alltaf þegar
ég geri þessa hluti og ég veit að þú
verður alltaf þarna hjá mér þótt ég
sjái þig ekki.
Það er svo sárt og ósanngjarnt að
þurfa að kveðja þig núna, ég er bara
fimmtán og þú fertugur. En ég veit
að þetta er bara kveðja í bili, því þeg-
ar ég dey og fer til himna verður þú
þar og tekur á móti mér með opnum
örmum, tekur utan um mig og kyssir
mig.
Elsku pabbi minn, megi góður Guð
passa þig þangað til ég kem til þín.
Ég elska þig af öllu mínu hjarta og
mun alltaf gera það og ég mun hugsa
til þín á öllum stundum og veit að þú
munt passa mig og fylgjast með mér í
lífinu.
Bless í bili, pabbi minn, ég elska
þig.
Þín dóttir,
Arna.
Elsku pabbi okkar. Okkur finnst
svo leiðinlegt að þú sért dáinn út af
því að við elskum þig svo mikið og við
eigum svo erfitt með að trúa þessu.
Takk fyrir allar leikhúsferðirnar
og bíóferðirnar og allt sem þú hefur
gert með okkur. Við munum aldrei
gleyma þér og því sem þú gerðir fyrir
okkur. Við munum aldrei hætta að
elska þig þótt þú sért farinn frá okk-
ur. Þegar við söknum þín sem mest
þá getum við alltaf hugsað um góðu
stundirnar okkar saman og þær voru
sko mjög margar. Þú varst besti
pabbi í heimi. Þú varst alltaf svo góð-
ur við okkur. Við vonum að Guð passi
þig og þú sért núna kominn til ömmu
þinnar og Óla frænda. Við vonum að
þú sért að fylgjast með okkur og
verðir alltaf hjá okkur.
Við elskum þig, elsku pabbi, og við
söknum þín.
Þín börn
Ólafur og Diljá.
Við erum öll harmi slegin yfir
brottför þinni, elsku hjartans Palli
minn, en vegir Drottins eru órann-
sakanlegir. Við verðum að trúa því að
nú líði þér vel og afar okkar og ömm-
ur hafi tekið vel á móti þér í nýjum
heimkynnum. Við trúum því líka að
nú hafir þú hitt Dodda frænda, sem
var þinn besti vinur í æsku og þú
saknaðir svo sárt, og hann hafi fagn-
að þér og nú getið þið tekið upp þráð-
inn sem frá var horfið.
Sársaukinn er ólýsanlegur er ég
hugsa til þess að eiga ekki eftir að sjá
þig aftur, heyra hláturinn þinn, sjá
glettnina í fallegu augunum þínum
og ekki síst finna fyrir sterku og
hlýju faðmlagi þínu, elsku bróðir
minn, en minningarnar um þig mun
ég geyma í hjarta mínu um ókomna
framtíð. Mér finnst ég finna fyrir ná-
lægð þinni nú er ég rifja upp þessi
minningarbrot. Mér finnst ég sjá þig
í gegnum tárin, þú brosir svo fallega
til mín, brosi sem enginn á nema þú.
Ég var sjö ára gömul er mér hlotn-
aðist sá heiður að eignast þig fyrir
bróður. Ég man hve mér fannst þú
fallegur og stoltið skein úr augum
mömmu og pabba er þau kynntu þig
fyrir okkur, mér, Didda og Gunna.
Ég fylltist strax ábyrgðartilfinningu
gagnvart þér og mín fyrstu viðbrögð
voru að fá að vera ein með þér og
horfa á þig. Ég vildi hafa þig út af
fyrir mig.
Þú dafnaðir vel við ástríki foreldra
okkar og það gerðum við öll. Við átt-
um góða æsku og mér fannst að ég
sem elst af okkur systkinunum
þyrftiað hjálpa mömmu og pabba að
passa ykkur bræðurna og þá sérstak-
lega þig, Palli minn, þar sem þú varst
þá yngstur. Þú varst svo prúður og
skemmtilegur lítill drengur, bros-
mildur, söngelskur og svolítill prakk-
ari eins og gerist og gengur með litla
drengi. Þér datt ýmislegt í hug eins
og að fara að skoða heiminn og þá
fórum við öll að leita að þér. Þú varst
oftast skammt undan og ég fékk
skammir fyrir að hafa ekki passað
þig nógu vel.
Í gegnum árin höfum við systkinin
oft skemmt okkur við að rifja upp
ýmis skemmtileg atvik frá æsku okk-
ar. Þér fannst alltaf jafnspaugilegt að
heyra mig segja frá aðferðinni sem
ég notaði þegar ég svæfði þig á
kvöldin. Fyrst las ég ótal bækur, svo
frumsamdar sögur og síðast drauga-
sögur og þá loks sofnaðir þú. Svo
voru bíóferðirnar á hverjum sunnu-
degi. Oftast var sama bíómyndin viku
eftir viku en það skipti ekki máli, þér
fannst hún alltaf jafnskemmtileg. Ég
keypti eitt sæti fyrir okkur bæði svo
ég gæti keypt meira nammi handa
þér.
Á þessum tíma voru myndavélar
ekki eins mikil almenningseign eins
og nú og foreldrar okkar áttu enga
slíka. Þegar þú varst fimm ára lang-
aði mig til að láta taka af þér mynd.
Ég klæddi þig í þín fínustu föt og
ferðinni var heitið til Reykjavíkur til
alvöru ljósmyndara. Ég hlýt að hafa
fjármagnað þetta uppátæki mitt sjálf
því mamma og pabbi vissu ekki af
þessu fyrr en ég sýndi þeim mynd-
irnar. Hárið þitt var að vísu ekki
nógu vel greitt og slaufan ekki alveg
bein, en í dag, elsku Palli minn,
þakka ég Guði fyrir að láta mér detta
þetta í hug því þetta eru einu mynd-
irnar sem til eru af þér á þessum
aldri.
Það kom fljótt í ljós smekkur þinn
fyrir fegurð. Þú vildir alltaf vera fínn
til fara og það hefur fylgt þér alla tíð.
Glæsileiki þinn og fáguð framkoma
þín hefur verið þitt vörumerki. Strax
sem lítill drengur vaktir þú athygli
fyrir glæsileika og ég man þegar þú
fékkst græna tírolhattinn þinn með
fjöðrinni, þú varst svo „flottur“ að
eftir var tekið.
Þú tókst fljótt ákvörðun um að
ganga menntaveginn og eiga skjala-
tösku. Þú hafðir allt að bera til að sú
ákvörðun stæðist. Ég gleymi seint
hve stolt mamma og pabbi voru þeg-
ar þú settir upp hvíta kollinn og afi
setti sinn líka upp í tilefni dagsins. Þú
varst gleðigjafi, elsku vinur, um-
hyggjusamur og hjartahlýr. Ávallt
varst þú fyrstur með blóm og gjafir
og það lýsir þér best þegar þú aðeins
átta ára fórst fyrstur okkar systkin-
anna með stóran blómvönd og færðir
mömmu á fæðingarheimilið þegar
Doddi yngsti bróðir okkar fæddist.
Nú ert þú horfinn úr lífi okkar og
þínu hlutverki hér á jörðu lokið. Það
er erfitt að skilja hvers vegna Guð
tekur til sín ungar sálir en þinni hef-
ur verið ætlað annað hlutverk á æðri
stöðum. Ég þakka þér fyrir samveru-
stundirnar sem ég átti með þér, elsku
hjartans bróðir minn, og megi algóð-
ur Guð styrkja fjölskyldu þína, for-
eldra okkar og aðra ástvini sem eiga
um sárt að binda í þessari miklu sorg.
Ég elska þig, bróðir minn, og megi
Guð blessa minningu þína.
Þín systir,
Jóna Lilja.
Elskulegur tengdasonur minn Páll
Sverrir Pétursson er látinn. Sorgin
nístir, en það verður engu breytt.
Haustið 1987 kom Palli inn í líf
okkar Þorsteins þegar þau Katla
dóttir okkar felldu hugi saman.
Hann var afar fallegur maður og
myndarlegur og þar að auki vel gerð-
ur í alla staði. og sem árin liðu kynnt-
umst við því líka hve harðduglegur
og handlaginn hann var, allt lék í
höndum hans, hvort sem hann var að
leggja parket, smíða sólverönd eða
gera upp gamlan Benz, allt var gert
af hagleik og stakri vandvirkni og
hvert smáatriði skipti máli.
Í sínu fagi sem kerfisfræðingur
veit ég að Palli var einnig afar flinkur
þó ég fylgdist betur með því sem
hann gerði í tómstundum sínum.
Heimilið og fjölskyldan var honum
allt og hann var afar stoltur af fjöl-
skyldunni sinni. Börnin hans voru
hænd að honum og hann var góður
faðir, faðir sem gaf sér tíma til að
sinna þeim og taka tillit til þarfa
þeirra og langana. Börnin voru alltaf
í fyrirrúmi, þau fengu að fara með í
ferðalög til útlanda og Palli fór með
þeim í bíó og leikhús. Þau fengu líka
gott uppeldi sem mun áreiðanlega
reynast þeim gott veganesti inn í
framtíðina. Þau hafa misst mikið,
elsku dóttir mín og barnabörnin. Ég
vona að góður Guð gefi þeim styrk til
að halda ótrauð áfram og lifa góðu og
fallegu lífi
Það er gott að eiga góðar minn-
ingar þegar ástvinir kveðja, það er
eitt af því sem hjálpar okkur sem eft-
ir lifum að afbera missinn, sorgina.
Minningarnar koma líka eins og
flaumur fram í hugann og þeim skul-
um við deila saman, elsku Katla mín,
Lilja, Steini, Arna, Óli og Diljá. Við
biðjum góðan Guð að taka vininum
okkar opnum örmum inn í himnarík-
ið.
Blessuð sé minningin um tengda-
son minn Pál Sverri Pétursson.
Kolfinna Ketilsdóttir.
Elsku Palli minn. Tómarúm í fjöl-
skyldunni okkar hefur myndast. Það
eru orðin 13 ár síðan þú komst inn í
fjölskyldu okkar og ég hef fengið
mörg og góð tækifæri til að kynnast
þér.
Þegar ég hugsa um þig þá hugsa
ég alltaf í fleirtölu. Það er auðvitað
vegna þess að þú og Katla eruð eitt í
mínum huga. Samband ykkar var án
efa mjög tilfinningaþrungið og ást-
mikið. Ég sé fyrir mér ljómann úr
augum ykkar af ást hvors til annars.
Ég er glöð fyrir ykkar hönd yfir öll-
um þeim minningum sem þið hafið
skapað og Katla getur yljað sér við.
Glæsileiki hefur alltaf verið þinn
stíll. Þú hefur alltaf viljað og valið
það besta fyrir ykkur Kötlu og börn-
in. Þið hafið byggt ykkur fallegt og
hlýlegt heimili þar sem áberandi
gestrisni hefur ríkt. Boðin sem þið
hélduð voru alltaf svo glæsileg.
Það sem þú tókst þér fyrir hendur
kláraðir þú vel. Þau eru mörg handa-
verkin sem þú skildir eftir þig. Park-
et hér og þar, gamlir uppgerðir
Benzar og margt fleira. Diljá sagði
PÁLL SVERRIR
PÉTURSSON
ERFIDRYKKJUR
STÆRRI OG MINNI SALIR
Borgartún 6 ehf., sími 561 6444
Fax 562 1524 Netfang borgaris@itn.is