Morgunblaðið - 06.03.2001, Page 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 49
einn daginn að nú myndir þú park-
etleggja skýin.
Mér verður hugsað til allra ferða-
laga ykkar út um um allan heim, sem
hafa gert ykkur bæði víðsýn og opin.
Það eru margar ferðasögur sem þið
hafið sagt mér.
Þú varst stoltur og ánægður að
hefja nám við Háskóla Íslands í haust
og síðast þegar ég sá þig, varstu að
skrifa ritgerð í tengslum við námið.
Leikhúsferðanna þinna og
barnanna, sem mér virtust vera al-
veg heilagar stundir ykkar saman,
eiga börnin nú eftir að sakna.
Þú talaðir svo oft um að þú sakn-
aðir þess að hafa ekki fengið að kynn-
ast honum Óla okkar, mági þínum.
Nú færðu tækifæri til þess. Ég trúi
því að hann hafi tekið á móti þér með
opinn faðminn og þið eigið eftir að
fylgjast með okkur hinum, sem eftir
erum.
Elsku Katla mín og börnin öll,
missir ykkar er mikill og sár. Fram-
undan eru erfiðir tímar og það er fátt
huggandi sem ég get sagt. Ég vil að
þið vitið það að ég er til staðar fyrir
ykkur, hvenær sem þið þurfið á mér
að halda.
Ég votta ykkur, allri fjölskyldu
Palla, mína dýpstu samúð og bið góð-
an Guð að styrkja ykkur í sorginni.
Inga mágkona.
23. febrúar var erfiður dagur.
Pabbi hringdi í mig og sagði mér að
hann Palli mágur minn væri dáinn.
Það er erfitt að lýsa þeim tilfinning-
um sem í gegnum huga manns fara á
svona stundum en það er eins og
mörg ár renni í gegn á örskots-
stundu.
Ég kynntist Palla fyrir um 13 ár-
um þegar hún Katla systir mín
kynnti hann fyrir fjölskyldunni. Það
verður ekkert öðruvísi sagt en svo að
ég varð samstundis heillaður af hon-
um. Hann var svo skemmtilegur og
öll hans framkoma var á þann hátt að
ef hann var að tala þá hlustaði maður
af áhuga. Hann sagði svo skemmti-
lega frá. Ég var unglingur á þessum
tíma og leit mikið upp til hans. Hann
var líka einhvern veginn þannig að
það skipti ekki máli hvort hann var
að tala við börn, unglinga, jafnaldra
eða gamalmenni, hann sýndi öllum
sömu virðingu. Palli lá aldrei á skoð-
unum sínum sem slíkum. Ef honum
mislíkaði eitthvað sem ég gerði þá
fékk ég að vita það en hann tók mig
stundum á þessum árum undir
verndarvæng sinn og leiðbeindi mér í
ýmsum málum ef honum fannst ég
vera að fara í ranga átt. Því þótt ég
ætti mjög góða foreldra sem gerðu
það sama þá var það einhvern veginn
öðruvísi að heyra Palla segja það.
á mig. Hann gat tekið gamla bíla í
tætlur og sett þá aftur saman, eins
tók hann heilu íbúðirnar og gjör-
breytti þar öllu. Steinveggir stóðu
ekki fyrir honum því hann braut þá
bara niður ef því var að skipta. Bæði
Njörvasundið og Eikjuvogurinn
fengu stóra og mikla upplyftingu eft-
ir að hann hafði farið höndum um.
Svo nú síðast tók hann fokhelda íbúð-
ina í Reynihvamminum og gerði þar
allt með eigin höndum. Gerði hana að
höll. Það var reyndar um það talað að
hann hlyti að vera ofvirkur því hann
mátti sjaldan vera að því að setjast
niður og slaka á. Ef ekki þurfti að
rífa upp gólf eða skipta um glugga í
húsinu þá tók hann bara háaloftið og
gerði úr því fjölskylduherbergi. Það
fengu líka margir að njóta þess að
liggja úti á pallinum sem hann
byggði í Eikjuvoginum en hann var
engin smásmíði. En Palli hugsaði
líka vel um börnin og hafði gaman af
að gera eitthvað fyrir þau og með
þeim. Þannig var það að hann ætlaði
að smíða smákofa úti í garði eins og
svo margir gera. En þegar hann var
risinn stóð á flötinni tveggja hæða
kofi með steinullareinangrun, gleri í
gluggum og að sjálfsögðu sólpalli.
Þær eru margar minningarnar um
það hvað hann Palli var stórtækur en
hann hafði samt ekkert gaman af því
nema geta deilt því með öðrum því
allt sem hann gerði og átti virtist
vera svo aðrir gætu notið þess líka
með honum.
Við Palli náðum mjög vel saman og
öll þessi ár leit ég ekki bara á hann
sem mág minn, heldur líka sem bróð-
ur. Við vorum alltaf vinir og ég naut
þess líka alltaf að koma í heimsókn til
þeirra Kötlu því ávallt var manni
tekið opnum örmum.
Allir sem kynntust Palla urðu
heillaðir af honum og svo var líka um
hana Ellu mína því þau náðu líka
mjög vel saman. Palli var alltaf að
spyrja okkur hvort við ætluðum nú
ekki að fara að láta pússa okkur sam-
an, við ættum svo vel saman. Ein-
hvern veginn þykir mér mjög vænt
um þessi orð hans.
Ég á eftir að sakna þín, Palli minn,
mjög mikið nú þegar þú ert farinn.
Ég veit líka að nú átt þú eftir að
kynnast honum Óla bróður mínum
sem þú svo oft talaðir um að þig hefði
langað til að kynnast. Það var svo
margt í þínu fari sem mér fannst svo
aðdáunarvert og þú kenndir mér svo
margt. Ég á líka eftir að sakna spila-
kvöldanna sem við höfðum svo gam-
an af.
Elsku Katla mín, Lilja, Arna,
Steini, Óli, Diljá og aðrir aðstand-
endur, ég veit að Palla líður vel á
þeim stað sem hann er núna og hann
vakir yfir okkur. Palli var einstakur
maður og skarð hans verður aldrei
fyllt. Megi Guð styrkja ykkur á þess-
ari erfiðu stundu.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Kæri Palli. Mig langar með fáum
orðum að kveðja þig. Mér er það
minnisstætt hvernig þú tókst á móti
mér er ég hitti þig í fyrsta sinn. Þú
gekkst hröðum skrefum til mín,
þungur á brún eins og ég ætti ekki
von á góðu en allt í einu ljómaði and-
lit þitt og þú sagðir hátt og snjallt:
„Velkominn í fjölskylduna.“
Margoft þegar við Inga áttum leið
hjá varstu ýmist með hamar á lofti
eða sög að gera heimilið ykkar betur
búið og fallegt. Ég veit að þú varst
dugnaðarforkur og alltaf ákveðinn að
gefa fjölskyldunni þinni aðeins það
besta, sem var svo einkennandi fyrir
þig.
Við þau tækifæri þegar fjölskyld-
an kom saman, varstu áberandi og
með mikla kátínu. Þú virtist mjög
víðsýnn og gast rætt allt á milli him-
ins og jarðar.
Ég met mikils auðsýndan skilning
og stuðning frá þér er ég leitaði til
Kötlu með málið mitt. Þessi hlýju orð
frá þér skipta mig miklu máli enda
veit ég að þú vissir nákvæmlega hvað
var að brjótast um í mér. Þú varst
fyrirmyndarfaðir, börnin fengu alla
þína athygli og umhyggju.
Fyrir rúmri viku síðan ætlaði ég að
koma við um kvöld með pakka til
ykkar Kötlu og hafði hringt á undan
mér. Þú beiðst mín í anddyrinu og
tókst ekki í mál að ég færi án þess að
þiggja kaffi. Við áttum langt og gott
samtal, þar sem þú varst svo einlæg-
ur og hreinskilinn.
Öllum ástvinum þínum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Guð gefi Kötlu, börnunum og fjöl-
skyldu þinni styrk í sorginni.
Megi guð vera með þér og hvíl í
friði.
Þinn svili
Sigurður Guðmundsson.
Elsku Palli minn. Það er með
þungum huga sem ég kveð þig. Við
náðum svo vel saman strax við fyrstu
kynni og þú varst einn af þeim fyrstu
til að bjóða mig velkomna í fjölskyld-
una. Oft fékk ég líka að heyra frá þér
hversu mikið ég tilheyrði þessari fjöl-
skyldu, og mér þótti svo vænt um að
heyra það.
Það voru mörg spilakvöldin sem
við áttum fjögur saman, þú, Katla, ég
og Steini. Ég á eftir að sakna þeirra
kvölda mjög mikið því það var alltaf
svo gaman þegar við hittumst og þú
varst alltaf svo hress, og hélst uppi
hlátri með bröndurum, hnyttnum at-
hugasemdum og skemmtilegum um-
ræðum.
Mér finnst ofsalega skrýtið að þú
sért farinn því ég sá þig alltaf fyrir
mér sem svila minn og mér fannst ég
vera svo heppin að hafa eignast
svona frábæran svila. Hver á núna að
spyrja mig hvernig ég viti hvort ég sé
með magaverk eða bakverk? Og svo
varstu alltaf að spyrja okkur Steina
hvort við ætluðum ekki að fara að
setja upp hringa, þér fannst ekkert
annað koma til greina.
Elsku Palli minn, þú varst lang-
besti og yndislegasti svili sem ég
hefði getað eignast. Ég á eftir að
sakna samverustundanna með þér
mikið. En ég mun varðveita minning-
arnar um þig í huga mínum og hjarta.
Ég veit að Guð tekur vel á móti þér
og hugsar vel um þig. Takk fyrir allar
góðu stundirnar og minningarnar
sem við Steini eigum saman um
skemmtilega tíma með þér.
Blessuð sé minning þín.
Elsku Katla mín, Lilja, Steini,
Arna, Óli og Diljá, megi Guð vera
með ykkur og styrkja ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Elín Margrét.
Hinsta kveðja hjartans vinur góði.
Heimilisprýðin, vonin kvödd í ljóði.
Sofðu vinur, sofðu rótt.
Sofðu vinur, góða nótt.
(Hulda.)
Með þessum ljóðlínum viljum við
kveðja Palla okkar sem kallaður var
burtu í blóma lífsins.
Við biðjum algóðan Guð að styrkja
fjölskyldu hans, foreldra, systkini og
aðra ástvini í þeirra miklu sorg.
Við skulum öll minnast þess að
þegar tíminn, hinn mikli græðari,
hefur læknað dýpstu sárin, þá lifir
eftir minningin um yndislegan dreng
sem okkur öllum þótti svo vænt um.
Ég bið af hjarta barna vininn góða.
Að blessa soninn hér í minning ljóða.
Hann lifir áfram blessað ljósið blíða.
Ásvinir hans þeir trúa, vona og bíða.
(Hulda.)
Blessuð sé minning Palla frænda.
Svala og Richard.
Hann Palli er horfinn af sjónar-
sviðinu, horfinn óvænt og allt of
skyndilega. En þannig birtist hann
okkur fyrst haustið 1987, óvænt og
skyndilega. Hún Katla vinkona okk-
ar hafði farið á dansleik um helgina
og hitt draumaprinsinn sinn, hann
Pál.
– Hvaða Pál? spurðum við.
– Þið hittið hann á sunnudaginn,
hann langar svo að bjóða ykkur út að
borða.
– Okkur? Af hverju okkur? – Nú
hann langar til að kynnast vinum
mínum.
Við áttum yndislegt kvöld, borðuð-
um góðan mat og spjölluðum um lífið
og tilveruna og hann langaði að vita
allt, allt um hana Kötlu sína. Og
þannig var hann. Ákafur í að inn-
byrða allt sem viðkom lífi hennar,
prinsessunnar sem hann hafði hitt þá
um helgina. Og hún hafði líka hitt
sinn mann, það sáum við þessa kvöld-
stund.
Ófáar stundir höfum við átt síðan
og alltaf hefur verið glatt á hjalla, við
höfum hlegið, hlustað á óperur, karp-
að lítilsháttar um heimsins gagn og
nauðsynjar. Yfirleitt höfðu þau hjón-
in frá einhverju skemmtilegu að
segja frá síðustu utanlandsferð, þar
sem oftar en ekki hafði þeim tekist að
rata í óvænt ævintýri.
Við hittumst sjaldnar á síðari ár-
um, en í fertugsafmælinu hans Palla í
fyrra var hann sami strákurinn og sá
sem bauð okkur út að borða fyrir 14
árum og með sama ástarblikið í aug-
um.
Í okkar huga var Palli hennar
Kötlu hress og skemmtilegur maður
sem alltaf var gaman að hitta. En lífið
er því miður ekki alltaf eintóm sæla
og hann Palli fékk að kynnast því.
Það er erfitt og sárt að þurfa að sætta
sig við að hann sé farinn. Við hugsum
mikið til hennar Kötlu vinkonu okkar
núna og sendum henni og öllum ynd-
islegu börnunum þeirra hlýjar hugs-
anir oft á dag.
Lífið er stundum fáránlega erfitt
og maður skilur ekki hver meiningin
er.
Eina ráðið er víst að horfa fram á
veginn, annað er ekki í boði.
Elsku Katla, Lilja, Steini, Arna,
Óli, Diljá og aðrir aðstandendur, við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Megi Guð vera með
ykkur öllum.
Dóra og Guðmundur.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur. Genginn er góður og
hæfileikaríkur drengur. Foreldrar
muna ljóshærðan og bláeygan
hnokka, sem óx úr grasi og varð að
ungum og myndarlegum manni.
Systkini minnast Palla bróður á öll-
um aldursskeiðum.
Eiginkona og börn minnast föður
og maka. Þegar minningarnar um
Palla hrannast upp er kraftur og
atorkusemi það fyrsta sem kemur
upp í hugann. Allt varð að fram-
kvæma strax, ekki bara byrja, heldur
líka að klára. Ungur hugsaði hann
stórt og lét verkin tala. Til er sú skil-
greining að sá einn sé ríkur er geti
gefið. Þetta átti vel við um Palla, á
milli hans og orðsins „rausnarlegur“
var samasemmerki. Hann nam ung-
ur tölvufræði og starfaði á því sviði til
æviloka. Allir sem kynntust honum á
þeim vettvangi vita að þar var enginn
hálfdrættingur á ferðinni.
Palli og systkini hans fengu öll í
veganesti ríflegan skerf af verklagni.
Á heimili hans má sjá smekklegt
handbragðið hvar sem litið er.
„Sækjast sér um líkir“ á vel við um
Palla og Kötlu eiginkonu hans. Hún
átti fyrir soninn Steina og gekk fljót-
lega Örnu, dóttur Palla, í móður stað.
Saman eignuðust þau svo Óla og
Diljá. Katla gaf Palla ekkert eftir í
atorkusemi. Það segir sitt að með
barnauppeldi hefur hún tekið stúd-
entspróf og er nú nálægt því að ljúka
lögfræðinámi í Háskóla Íslands. Fá
hjón hafa ferðast jafn víða og gest-
risni þeirra var annáluð. Fyrir einu
og hálfu ári fluttist fjölskyldan í
Reynihvamm í Kópavogi. Þar tóku
þau við fokheldu húsi og komu sér
fyrir með sínum vel þekkta krafti og
dugnaði.
Nú stöndum við frammi fyrir
óvæntum og þungbærum lærdómi í
lífsins skóla. Á kveðjustund vitum við
þó að Palli á eftir að lifa með okkur í
minningunni um ókomna tíð.
Elsku Katla, Diljá, Óli, Arna,
Steini og Lilja. Það er gott að eiga
góðar minningar um pabba sem var
stoltur af börnunum sínum, duglegur
að fara með þau í leikhús, á tónleika, í
bíó, út að borða og í ótal ferðalög inn-
an lands sem utan, því: „Þegar þú ert
sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga
þinn og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.“ (Spá-
maðurinn).
Fjölskyldan í Vallargerði 39.
Það sló þögn á okkur vinnufélag-
ana á bæjarskrifstofunni í Hvera-
gerði þegar fregnaðist að Palli væri
látinn. Það var erfitt að trúa því að
hann svona ungur og glæsilegur væri
allur og að við fengjum ekki njóta
nærveru hans framar.
Palli starfaði fyrir veiturnar í
Hveragerði á annan áratug, ávallt af
mikilli samviskusemi og dugnaði.
Hann stofnaði ungur sitt eigið forrit-
unarfyrirtæki og byggði upp á eigin
spýtur afar flókið og umfangsmikið
orkureikningakerfi sem fjöldi hita-
og rafveitna vítt og breitt um landið
hefur nýtt sér.
Eins og flestir vita þá er mikil
vinna fólgin í því að veita hugbún-
aðarþjónustu, hugbúnaðurinn verður
að vera í stöðugri framþróun og stöð-
ugt þarf að auka fjölbreytni hans, til
að mæta síauknum kröfum tölvusam-
félagsins sem við lifum öll í. Palli var
fáliðaður í sínu fyrirtæki og var því
alltaf eins og þeytispjald út um allt
land til þess að þjónusta okkur, þessa
óþolinmóðu kúnna, sem skiptu við
hann. Við sem notum hugbúnað í
okkar starfi getum ekki beðið þegar
eitthvað fer úrskeiðis, orkureikning-
arnir verða að koma út á réttum tíma
og Palli verður að koma, ekki seinna
en strax til að kippa málunum í lag.
Það fór að sjálfsögðu ekki fram hjá
okkur að Palli var undir gríðarlegu
álagi í sínu starfi enda samviskusam-
ur með afbrigðum og lagði metnað
sinn í að halda okkur viðskiptavinum
sínum ánægðum. Palli kom alltaf eins
fljótt og hann gat til að bjarga mál-
um.
Það er ekki ofsagt að okkur vinnu-
félögunum þótti afar vænt um Palla,
hann hafði þessa útgeislun sem fékk
okkur, svona ósjálfrátt, til að brosa í
hvert skipti sem hann kom inn úr
dyrunum og okkur leið vel í nærveru
hans. Hann hafði líka frá svo mörgu
óvenjulegu, skemmtilegu og bros-
legu að segja um það sem á daga
hans hafði drifið og okkur fannst líf
hans hljóta að vera spennandi og við-
burðaríkt.
Ég votta þér, Katla, fjölskyldu
þinni, foreldrum og systkinum Páls
innilega samúð í þeirri von og trú að
ykkur veitist nægur styrkur til að
takast á við sorgina og missinn.
Guðmundur F. Baldursson.
Af eilífðar ljósi bjarma ber
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er
það stefnir á æðri leiðir.
En upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(E. Ben.)
Það voru hörmuleg tíðindi, þegar
ég frétti af láti Páls, en hann var ná-
granni minn í mörg ár.
Upphaf kynna okkar voru þau að
yngstu börnin þeirra tvö, Óli og
Diljá, fóru að venja komur sínar til
mín þegar ég var úti að vinna í garð-
inum. Þetta varð til þess að ég kynnt-
ist foreldrum þeirra Kötlu og Palla
og leiddi það til einlægrar vináttu.
Ég var reyndar búin að taka eftir
því hve þessi ungu fallegu hjón voru
samtaka í að fegra heimili sitt og
garð og hlúa að börnum sínum.
Oft var ég gestur á heimili þeirra
og þá fann ég hvað þau voru fróð og
víðlesin og jákvæð í afstöðu til manna
og málefna.
Palli studdi af alhug konu sína,
þegar hún ákvað að fara út í langt og
strangt laganám, en hún hafði lokið
stúdentsprófi jafnframt sínu hús-
móðurhlutverki á stóru heimili.
Ég sá fljótt að allt handverk lék í
höndunum á Palla, sama hvort það
voru smíðar eða eitthvað annað.
Þegar þau hjón ákváðu að selja
húsið og flytja saknaði ég þeirra og
barnanna. – Eftir að þau fluttu
gleymdu þau ekki gamla nágrannan-
um. Þau buðu mér í fertugsafmæli
Palla síðastliðið sumar, sem mér
þótti ákaflega vænt um.
Ég hitti fjölskylduna síðastliðið að-
fangadagskvöld eftir aftansöng í
Langholtskirkju. Þá geisluðu þau af
hamingju og hlýjan streymdi frá
þeim eins og svo oft áður.
Elsku Katla mín, á þessari sorg-
arstundu koma mér í hug orð sem
letruð eru á legstein ömmu minnar,
en hún missti mann sinn frá ungum
börnum:
Í vetrarhríð vaxinnar ævi
gefst ei skjól nema Guð.
Ég bið þann sem öllu ræður að
vera ykkur nálægur og styðja ykkur
og styrkja.
Blessuð sé minning látins vinar.
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir.