Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 51
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 51
Barcelóna
Íbúð til leigu miðsvæðis í borginni.
Uppl. gefur Helen f.h. í síma 899 5863.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Skóla- og fræðslunefnd
Sjálfstæðisflokksins
Opinn fundur
Er menntun fjárfesting?
Þriðjudaginn 6. mars kl. 17.15—18.30 í Valhöll.
Frummælendur:
Runólfur Ágústsson rektor: Jafnrétti til náms.
Áslaug B. Guðmundardóttir, sérfræðingur í
fræðslumálum: Að skapa verðmæti með þekk-
ingu, hugviti og hæfileikum.
Magnús Ragnarsson, markaðsstjóri: Íslenskt
NBA-nám — nýr valkostur.
Ketill B. Magnússon, MA í heimspeki: Frelsi
til menntunar.
Fundarstjóri er Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
alþingismaður.
Síðan verða almennar umræður.
Allir áhugamenn um heilbrigðismál eru vel-
komnir.
Stjórnin.
Hjúkrunarfræðingar
Félagsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga verður haldinn á Suðurlandsbraut 22
fimmtudaginn 8. mars kl. 17.00—18.00.
Fundarefni: Kosning fulltrúa Reykjavíkurdeild-
ar á fulltrúaþing félagsins 17.-18. maí 2001.
Hjúkrunarfræðingar á Reykjavíkursvæðinu eru
hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Aukanámskeið
Vilt þú breyta lífsmynstrinu?
Helgarnámskeið dagana 24., 25. og
31. mars og 1. apríl. Þú hefur hæfi-
leikann til að umbreytast á öllum
sviðum lífsins, tilfinningalega, and-
lega og líkamlega. Verð 16.900 kr.
***
Annað nýtt námskeið; orkustund á laugar-
dagsmorgnum, og hugarró, slökun og kyrrð
á miðvikudagskvöldum. Verð 7.000 kr.
Lærðu að þróa mátt hugans hjá Fannýju Jón-
mundsdóttur. Innritun og upplýsingar í símum
552 7755 og 692 2758.
TIL SÖLU
Verslun til sölu
Rekstur verslunarinnar Nesval, Melabraut 19,
Seltjarnarnesi, er til sölu. Um er að ræða versl-
un með matvöru, vídeó, sælgæti o.fl.
Upplýsingar veitir Arnar í síma 575 2200.
Stórglæsilegt málverk
eftir Jóhannes S. Kjarval
frá 1957, sem ber heitið Ísland (Iceland), er til
sölu. Verkið er 105x155 cm.
Þeir, sem kunna að hafa áhuga á að eignast
málverkið, eru beðnir um að senda upplýsingar
til augldeildar Mbl., merktar: „Kjarval“, fyrir
12. mars 2001. Beðið er um nafn og símanúmer
viðkomandi.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Reiki
Reikimeistaranám-
skeið 17. mars.
Karuna-Reiki
18. mars.
Námskeið í Reiki 1
og Reiki 2 24.og 25. mars.
Einkatímar í heilun.
Guðbergur Björnsson,
Reikimeistari, sími 898 0277.
ÝMISLEGT
■ www.nudd.is
Roger Dyson, hómópati og
grasalæknir,
mun starfa í Heilsuhvoli, Flóka-
götu 65, þri. 6. mars, fim. 8. mars
og fös. 9. mars. Roger gerir alls
kyns prófanir, m.a. á ofnæmi,
fæðuóþoli og umhverfisóþoli.
Upplýsingar í símum 561 2129
og 588 4461.
FÉLAGSLÍF
EDDA 6001030619 III
HLÍN 6001030619 VI
Hamar 6001030619 I
I.O.O.F.Rb.4 150358-8½.O*
FJÖLNIR 6001030619 I Atkv.
AD KFUK, Holtavegi 28
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Sr. Guðmundur Óli Ólafsson
fjallar um trúarlíf Bachs.
Allar konur velkomnar.
Kvöldvaka í F.Í.-salnum
7. mars kl. 20.30. Skarphéð-
inn Þórisson, líffræðingur á
Egilsstöðum, fjallar um
hreindýr á Íslandi fyrr og nú í
máli og myndum. Inga Rósa
Þórðardóttir fer yfir byggða-
sögu Víðidals í Lóni og sýnir
myndir úr dalnum.
Allir velkomnir. Aðgangseyrir kr.
500. Kaffiveitingar.
Skíðagönguferð í Tindfjöll-
um 9.—11. mars.
Bakpokanámskeið 13. mars.
Spurningaleikur á heimasíðu F.Í:
www.fi.is. Textavarp RUV bls.
619.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Amma mín, Soffía
Helgadóttir, hefur lok-
ið sínu æviverki og skil-
ur eftir hjá mér sæg
minninga sem ég hef
verið að ylja mér við
síðustu daga. Þó við
eyddum góðum tíma saman núna síð-
ustu árin leita á mig minningar frá
minni barnæsku. Þar standa hæst
minningar um Blómsturvelli, heimili
þeirra ömmu og afa í Neskaupstað,
þar sem ávallt var sól, tifandi lækjar-
sprænan, sjóstillan, rólan á snúrunni,
stóri kartöflugarðurinn, afi að vinna í
stóru gúmmístígvélunum sínum,
stéttin sem maður notaði sem parís á
alla kanta og ég tala nú ekki um dul-
arfulla kofann undir bílskúrnum með
moldargólfinu.
En það var ekki bara sjarmi í
kringum húsið utanhúss heldur var
það í mínum huga afar spennandi og
hrollvekjandi á köflum innanhúss.
Efri hæðin með sínum krókum og
kimum, herbergin undir súð og litla
dimma kompan inn af stiganum. En
það sem var hrollvekjandi, svo mjög
að hárin risu, var gryfjan inni í
þvottahúsi. Það eru ekki nema um
tvö ár frá því ég fékk að vita hvað var
niðri í henni!!
Einnig er amma mér lifandi í
minningunni í ljósbláa sloppnum í
eldhúsinu á Sjúkrahúsinu í Neskaup-
stað sem hún veitti forstöðu til fjölda
ára. Þangað var gott að koma, fá
mjólkurglas og bakkelsi, en ekki síst
að fá að sjá öll þau risavöxnu heim-
ilistæki sem þar voru.
Þegar kom að því að amma þurfti
SOFFÍA
HELGADÓTTIR
✝ Soffía Helgadótt-ir fæddist á Mel í
Norðfirði 23. janúar
1925. Hún lést á
Landspítalanum 22.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Norðfjarð-
arkirkju 3. mars.
að láta af störfum
vegna aldurs tók hún til
við önnur störf, störf
sem undu upp á sig með
vaxandi barnabarna-
hóp. Þessi störf fólust í
því að fylgjast vel með
sínum barnabörnum og
barnabarnabörnum,
prjóna á þau yngstu
peysur, húfur, vettlinga
og hosur og hekla eða
prjóna á þau eldri sjöl
og trefla. Einnig var
hún dugleg við að
föndra og skildi eftir sig
marga fallega hluti sem
voru merktir með hennar upphafs-
stöfum og vænst þykir mér um
drykkjarkönnurnar sem hún málaði
og merkti með nafni handa drengj-
unum mínum. Hún lagði sig fram við
að muna alla afmælisdaga og lét allt-
af í sér heyra við þau tilefni. Gjaf-
mildi hennar var einstök og hún
passaði upp á að gefa öllum sínum
börnum, barnabörnum og barna-
barnabörnum afmælisgjafir og jóla-
gjafir. Ég var oft búin að halda langa
tölu um að hún ætti að lifa lífinu og
nýta peningana sína til þess en henn-
ar svar var stutt og laggott: „Þetta er
líf mitt og yndi og þetta er það sem
veitir mér gleði.“
Já, ég var svo heppin að eiga með
ömmu góðar stundir síðustu árin
hennar. Mér er minnisstætt hversu
hamingjusöm hún var eftir afmælis-
veislu sína í Skíðaskálanum í Hvera-
dölum þegar hún varð 70 ára, eftir líf-
legan harmonikuslátt þar sem hún
dansaði og söng innan um börnin sín,
barnabörnin og barnabarnabörnin.
Einnig áttum við góðar stundir sam-
an úti á Spáni sumarið 1999 í þrjár
vikur, þá var það hún sem dró okkur
unga fólkið í fjörið á kvöldin, ég tala
nú ekki um þar sem bingóið var. Í
þessari dvöl fann ég þó að eitthvað
óljóst var byrjað að taka toll af heilsu
ömmu sem smátt og smátt ágerðist.
Nú síðastliðið sumar dvaldist hún
hjá mér í góðar fjórar vikur þar sem
hún aðstoðaði mig við heimilið og
börnin í fjarveru eiginmanns míns.
Ég veit að það kostaði ömmu mikla
þrautseigju að halda út þessa vist en
hún tók ekki í mál að gefast upp.
„Nei, ég efni mín loforð,“ sagði hún
og gerði það vel.
Elsku amma, nú er komið að
kveðjustund, stund sem ég hefði vilj-
að geta frestað enn um nokkur ár en
stund sem var þér og okkur sem þyk-
ir vænt um þig þrautalausn úr því
sem komið var. Guð blessi minningu
þína.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Hildur Jóhannsdóttir.
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Grein-
arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
+ 6 & ,6, '
5
5 12
1
%* %!
0 $ 67
- (/
! ./8$%
1 5! !!
.! 5! !! 9 % /./
:& !
.!(/.! !& ! /! !!/
+ & /
-
7
.1
5
1
,!&
,
#
! ( !!
+ , !!&
( !!!
' & !!&
5! $ %$&!& /
7
.
0;
#
'
6
& !
' & & )!1+$!!
1&<! $/