Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 52
MINNINGAR
52 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Séra Hans-Joach-im Bahr fæddist
28. júní 1895. Hann
andaðist hinn 8. jan-
úar síðastliðinn.
Þannig hafði hann
lifað 2 árþúsund, 3
aldir og tvær heims-
styrjaldir. Foreldrar
hans voru sr. Erich
og Margarethe Bahr
í Königsmühl í
Pommern. Þau áttu
átta börn og var
Hans-Joachim elstur
þeirra. Kona hans
var Gertrud Bahr,
fædd Schöne, frá Berlín, f. 1897,
d. 1992. Afkomendur þeirra eru:
1) Elisabeth, f. 1926, d. 1965,
maki: Baldur Ingólfsson mennta-
skólakennari og þýðandi. Börn
þeirra eru: a. Baldur Joachim, f.
1953, arkitekt og iðnskólakenn-
ari, maki Halla Hauksdóttir, f.
1952, fulltrúi í Íslandsbanka-FBA;
b. Hans Eiríkur, f. 1957, master í
búddískum fræðum, búsettur í
Boulder í Bandaríkjunum; c.
Magnús Diðrik, f. 1959, MA í
heimspeki, aðstoðarmaður há-
skólarektors, maki Sigríður Þor-
geirsdóttir, f. 1958, doktor í heim-
speki og dósent við Háskóla
Íslands. Dóttir þeirra er Elísabet,
f. 1986, nemi. 2) Hans-Eckehard,
f. 1928, doktor í guðfræði og pró-
fessor við Háskólann í Bochum í
Þýskalandi, maki 1. Anne Hase-
mann, f. 1934, þjóðfélagsfræðing-
ur og menntaskólakennari, maki
2. Rosemarie Ochs, f. 1949, tungu-
málakennari. 3)
Klaus-Dietrich,
doktor í hagfræði og
erindreki UNESCO í
París og Alþjóða-
bankans í Wash-
ington, maki Ruth
von Creyz, f. 1933.
Börn þeirra eru: a.
Dorothee, f. 1958,
tískuteiknari, gift
Francois Rousseau
einkasjúkraþjálfara.
Sonur þeirra er
Pierre, f. 2000. Þau
eru búsett í París; b.
Kathrin, f. 1961, gift
Vincent Forveille, f. 1961. Börn
þeirra eru Sara, f. 1990, Simon, f.
1993. Þau reka býflugnabú í Suð-
ur-Frakklandi; c. Christoph, f.
1964, tölvunarfræðingur, maki
Claudia, tölvunarfræðingur, f.
1964. Dóttir þeirra er Jana, f.
2000. Þau eru búsett í Düsseldorf;
d. Valérie, f. 1966, maki Arnold
Staniczek, f. 1964, náttúrufræð-
ingur. Synir þeirra eru Arne, f.
1994, Jan, f. 1996. Þau eru búsett í
Tübingen. 4) Christiane, f. 1936,
kennari, maki Jan Sieverts dr.
jur., f. 1931. Börn þeirra: a. Jul-
iane, f. 1964, sérkennari; Henn-
ing, f. 1966, blaðamaður og tón-
listarmaður, maki Elke, f. 1963,
tónlistarkennari. Dætur þeirra
eru Johanna, f. 1994, Miriam, f.
1996. Þau eru búsett í München.
Útför Hans-Joachim Bahr fór
fram frá Südfriedhof-kapellunni í
Minden í Nordrhein-Westfalen 15.
janúar.
Séra Hans-Joachim Bahr stund-
aði háskólanám í Tübingen og Soest
og tók embættispróf og vígslu 1924.
Fram að seinni heimsstyrjöld
gegndi hann, eins og faðir hans og
afi, prestsembætti í heimahögum
sínum í Pommern og 1930 settist
fjölskyldan að í smábænum Jassow
nálægt Stettin sem nú heitir Jarz-
ewo og er í Póllandi og bjó þar til
1945.
Þegar H.-J. Bahr var í síðasta
bekk í menntaskóla var fyrri heims-
styrjöldin skollin á. Því var allur
bekkurinn látinn taka skyndi-stúd-
entpróf, sendur í heræfingar og síð-
an á vígstöðvarnar. Sr. Bahr særðist
hættulega í Rússlandi er hann fékk
skot þvert gegnum kviðarholið en
það tókst að græða hann svo að
hægt var að senda hann á ný á víg-
völlinn þar sem hann særðist aftur
en minna en í fyrra sinnið. Þegar
seinni heimsstyrjöldin skall á í sept-
ember 1939 var hann aftur kvaddur
í herinn, þá 44 ára, en ekki sendur á
vígstöðvarnar heldur látinn stjórna
ásamt öðrum stríðsfangabúðum fyr-
ir franska liðsforingja, 5000 menn.
Það lýsir vel sr. Bahr að það var
ekki fyrr en mörgum árum eftir
stríðslok að í ljós kom að hann hafði
hjálpað hópi þessara fanga að
strjúka úr fangabúðunum. Þegar
stríðinu lauk hafði hann verið sam-
tals 10 ár undir vopnum og hlotið tit-
ilinn höfuðsmaður. Hann sagði
stundum frá frönsku drengjunum
sínum sem skrifuðu honum til að
þakka mannúðlega framkomu við
sig og rifja upp liðinn tíma. Þegar
framsókn Rússa hófst vestur með
Eystrasalti undir lok stríðsins flýðu
milljónir manna vestur á bóginn og
mynduðu geysilanga flóttamanna-
lest sem lá undir árásum á landi og
úr lofti. Enginn veit hve margir fór-
ust á flóttanum, en um það bil 1½
milljón komst til Slésvíkur og Holt-
setalands.
Það varð frú Gertrud Bahr og
börnunum til bjargar að stórbóndi
einn, nágranni og tryggur vinur fjöl-
skyldunnar hafði útbúið flóttavagn
handa sér og fjölskyldu sinni og lét
sig ekki muna um að taka þau fimm
með. Þau hjónin, sr. H.-J. Bahr og
frú Gertrud höfðu samið um það við
vinveitta fjölskyldu í Eckernförde
nálægt Kiel að fá þar húsaskjól ef
þau yrðu að flýja. Það stóðst á end-
um að þegar stríðinu lauk í byrjun
maímánaðar 1945 komst bóndinn á
flóttavagninum góða heilu og höldnu
til Eckenförde nálægt Kiel og um
sama leyti kom sr. Bahr þangað á
gömlu reiðhjóli sem hann hafði
fengið úr eigum hersins til að kom-
ast áfram frá Lübeck þar sem hann
hafði afhent Bretum frönsku stríðs-
fangana. Það hefur verið stór dagur
þegar öll fjölskyldan hittist aftur
heil á húfi og gat meira að segja
flutt strax inn í gott hús. Sr. Bahr
talaði stundum um þetta sem
“Gnade des neuen Anfangs, náðina
að mega byrja aftur.
Hér þurfti sannarlega að byrja
nýtt líf og afla sér alls sem til þurfti
því að á flóttanum hafði fjölskyldan
ekki getað tekið með sér annað en
smádót. Sr. Bahr fékk strax nóg að
starfa við að koma á laggirnar hjálp-
arstarfsemi fyrir þá sem höfðu flúið
frá austurhéruðunum. Þetta var
risavaxið verkefni sem tókst þó að
leysa á næstu árum. Fljótlega tók
hann að sér prestsembætti í Slésvík
og Holtsetalandi og stjórn heima-
vistar fyrir menntaskólanemendur
sem höfðu flúið að austan. Í nokkur
ár bjuggu þau í Lauenburg við Sax-
elfi og síðan í Soest í Westfalen þar
sem íslenskir pílagrímar höfðu
stundum viðkomu á leið til Róma-
borgar á miðöldum. Í Soest hafði sr.
Bahr mjög fallegan blómagarð sem
hann annaðist af smekkvísi og kunn-
áttu, enda hafði hann stundum á
orði að hann hefði orðið garðyrkju-
maður ef hann hefði ekki valið
preststarfið. Síðasti áfanginn var
flutningur þeirra hjóna á elliheimili í
Minden þar sem hún andaðist 1992
en hann 2001.
Fyrsta samband Bahr-fjölskyld-
unnar við Ísland komst á þegar
Margarethe Bahr, eldri systir sr.
Bahrs kynntist íslenskum stúdent-
um í Greifswald um 1935 og kom svo
hingað í kynnisferð 1936 og fór til
Akureyrar til að starfa þar. Á Ak-
ureyri kynntist hún landa sínum,
efnafræðingi sem hét Frank Hüter
og starfaði þar. Þau felldu hugi sam-
an og giftust skömmu síðar og eign-
uðust dóttur sem var skírð Eva Ísa-
fold. Þegar Ísland var hernumið af
Englendingum tóku þeir Frank
Hüter höndum og sendu hann til
Ástralíu. Hann kom aldrei aftur til
Íslands en Margarethe kynntist
dönskum garðyrkjumanni á Akur-
eyri, syni hirðgarðyrkjumanns
dönsku krúnunnar, og eignaðist
dóttur með honum Birthe að nafni.
Þau fjögur fluttust 1949 til Dan-
merkur og settust þar að nálægt
Hilleröd á Sjálandi. Margarete og
Ib Möller önduðust bæði árið 1999.
Eva var áður flutt til Ástralíu.
Sumarið 1949 varð það að ráði að
Elisabeth Bahr, þá 23 ára, færi eitt
ár eða svo til Margarethe frænku
sinnar á Akureyri til að létta á heim-
ilisrekstrinum hjá foreldrum hennar
og fá sér vinnu á Akureyri. Sú dvöl
varð þó lengri en ráðgert var því að
1951 giftist hún þeim sem þetta rit-
ar og settist að hér. Hún andaðist
fyrir aldur fram í desember 1965 að-
eins 39 ára.
Sr. Bahr fór margar ferðir til Ís-
lands á vegum kirkjunnar í Þýska-
landi til að heimsækja landa sína
sem höfðu flust hingað eftir stríðið.
Hann heimsótti líka starfsbræður
sína, hélt fundi með þeim og tók þátt
í guðsþjónustum og prestsverkum
með þeim. Þegar heim kom hélt
hann fyrirlestra um ferðir sínar og
sýndi skuggamyndir og skrifaði
greinar um íslensk og þýsk málefni.
Hann gaf lengi út dálítið blað handa
fyrrverandi Pommernbúum og
skrifaðist á við fjölda manns í ýms-
um löndum. Hann var nýlega kosinn
heiðursfélagi Íslandsvinafélaganna í
Köln og Hamborg en áður hafði
hann hlotið heiðursorðu Sam-
bandslýðveldisins Þýskalands
(Bundeverdienstkreuz) fyrir störf
sín.
Eftir að Bahr-hjónin settust að í
Minden fluttist miðpunktur fjöl-
skyldunnar með þeim þangað. Sá
hluti fjölskyldunnar sem næst þeim
bjó var Christiane, yngri dóttir
þeirra og hennar fólk í Berlín og
þannig varð það hennar hlutverk að
halda uppi sambandinu við föður
sinn og það gerði hún af mikilli fórn-
fýsi.
Sr. Bahr lifði mestan hluta ævinn-
ar við góða heilsu og fylgdist með
öllu. Aðeins síðust þrjá dagana sem
hann lifði sýndi hann merki þess að
sér þætti nóg lifað enda hefði hann
orðið 106 ára í sumar.
Requiescat in pace.
Baldur Ingólfsson.
HANS
JOACHIM-BAHR
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
-
00)1)'1
. $&
$:%!
,$%4=1$-
8!
!&
,&4
9
)
#
:
6
,$ !& .3$ !!
5$ !! $) !&
* $ !! . (: !&
3 3,3 3 3,/
;
<
<
6
& ,6, ' &
)
.1
1+)1
1
& :%$',
1 !/
(
<
7
(!&
,&4
9
'
,9 + - !& (!5 !
!& !!
!& 93!!
+- 3 ,!& &$ *!!
$ 3 ,!! > '%/
.?09502
!&
,&.
#
'
6
%
% !&
3 ,* & ' ,$$ 3 !!
9* ! 1 +/'% !&
*
/' !
*9!!/
0
'
,! = "#$$
"0#$' !
> ((?@@;(>ABC@((DE4@
7
1
1 1
?
: *$ :%$
@ $ !, $%
$:%!( 76
- (
%
89
,
.!( A *!&
*!$ !!/
;
<
9
6 & '
)
,'
7
)
11)
2
1
-/ %B%& !
0 $ !6C
- (
*
&
(
<
7
) ,!&
, F
.!( !&
) $ $$) !! + $3 ,!&
) !& ) !
!!
3 3,/
01;'0 12
3 &
'( &
D$!
,!&
, !
, (
%
$ ( $ !&
$ !! $ A+ ,! !&
E !! $ *0 * &
3 3,3 3 3,/