Morgunblaðið - 06.03.2001, Síða 53
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 53
Fyrrum samstarfs-
maður minn í rúman
áratug á Orkustofnun,
Benný Ingibjörg Bald-
ursdóttir, hefur nú
fallið frá fyrir aldur
fram. Á stuttum tíma hefur verið
höggvið stórt skarð í þann litla hóp
góðra kvenna sem unnu á stofn-
uninni á áttunda og níunda áratug
síðustu aldar. Benný kom til starfa
BENNÝ INGIBJÖRG
BALDURSDÓTTIR
✝ Benný IngibjörgBaldursdóttir
fæddist í Reykjavík
25. júlí 1932. Hún
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans 21.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Fossvogs-
kapellu 1. mars.
á Orkustofnun vorið
1976 þegar auglýst var
starf þunnsneiðar-
gerðarmanns hjá
útibúi Orkustofnunar í
Keldnaholti. Mér
fannst Benný strax
dugnaðarleg og hress
og tók af skarið með
að ráða hana til starfa
hjá stofnuninni.
Reyndist það vera
heilladrjúg ákvörðun
því í starfi reyndist
Benný einnig vera
dugnaðarforkur og
gekk að störfum með
krafti og útsjónarsemi. Jafnframt
var hún bæði skemmtileg og góður
félagi og féll vel inn í það sérstaka
og glaðværa samfélag sem ríkti í
okkar litla hópi. Benný var þar
gjarnan hrókur alls fagnaðar. Þeg-
ar starfsemi stofnunarinnar var
flutt á Grensásveginn og í Skeifuna
varð lengra á milli okkar og dagleg
samskipti minni en þó vorum við
nokkur á Grensásveginum sem
gjarnan fórum í hádegismat til
Bennýjar og Gígju í Skeifunni.
Árið 1987 varð Benný að láta af
störfum hjá stofnuninni vegna van-
heilsu og gat eftir það ekki sinnt
vinnu. Við höfum þó haldið nokkru
sambandi og síðast í haust ræddum
við lengi saman í síma eftir að ein
fyrrum samstarfskona okkar féll í
valinn. Ég heyrði þá að Benný var
léleg til heilsunnar en gerði mér
ekki grein fyrir hversu mikið veik
hún var, enda ekki hennar vandi að
bera sig illa. Þótt ævi Bennýjar hafi
verið erfið og margt á henni mætt
var aðdáunarvert hvað hún gat
sætt sig við orðinn hlut og litið á
björtu hliðar lífsins. Ég þakka góðri
konu samfylgdina og votta syni
Bennýjar og öðrum ættingjum
samúð mína.
Hrefna Kristmannsdóttir.
Mig langar að hripa
niður nokkrar línur til
að minnast elskulegrar
frænku minnar, hennar
Jönu.
Æska mín hefði um margt verið fá-
tæklegri, hefði ég ekki fengið að njóta
samvista við Frænku, eins og ég kall-
aði hana nánast alltaf. Aðrir nákomn-
ir henni kölluðu hana Jönu, en fyrir
mér var hún alltaf Frænka. Ferðirn-
ar á Akranes eru mér snemma minn-
isstæðar, frænkan sem tók alltaf svo
stórmannlega á móti okkur, hugsaði
um að enginn liði skort og hreinleg
tróð í mann kræsingunum ef svo bar
undir, en umfram allt stóð uppúr
hvað hún var skemmtileg. Hún hló
gjarnan dátt, og sendi skeytin frá
pabba hressilega til baka, það átti
enginn neitt inni hjá henni. Hún var
orðheppin og fylgin sér. Þegar ég var
KRISTJANA
KRISTJÁNSDÓTTIR
✝ Kristjana Krist-jánsdóttir fædd-
ist á Innra-Leiti á
Skógarströnd 14.
desember 1918. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 17. febrúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Akraneskirkju
23. febrúar.
ekki svo ýkja há í loft-
inu fékk ég að fara ein
með Akraborginni til
Frænku í langa heim-
sókn. Þetta var heilmik-
ill viðburður og dvölin
stóð öll rúmlega undir
væntingum. Ég fékk að
fara með Magga
frænda í hesthúsið,
Fúsi frændi skrapp
með mig í sjoppuna í ís
og annan tíma var ég
eins og viðhengi á Jón-
asi, meðan Frænka var
að vinna. En ég beið
hennar þegar hún kom
heim, hún nefnilega ræddi málin við
unga frænku, gaf mér ótakmarkaðan
tíma og athygli, en ég er henni líka
þakklát fyrir að hún var svo hrein-
skiptin að hún gaf mér byr undir báða
vængi þegar við átti en óvægna gagn-
rýni þegar henni fannst það passa.
Og þrátt fyrir að ég hefði einatt bara
trú á einni skoðun, þ.e.a.s. minni,
mátti Frænka gagnrýna, og fékk mig
ótrúlega oft til að skoða hug minn á
ný. Eftir því sem árin liðu þurfti ég
meira á henni að halda, og fór æði oft
með Boggunni á Skagann, ég trúði
Frænku fyrir öllum mínum málum,
og enn þann dag í dag veit ég að hún
reyndist traustsins verð. Ég hef alltaf
dáðst að því hvað hún hafði mikinn
tíma til að skipta á milli allra, þrátt
fyrir langan vinnudag, stórt hjarta
sem gaf stöðugt af sér og ofurmann-
lega orku til allra verka. Hún hafði
líka stórt skap, þessi elska, en
snemma lærðist manni að það var
jafnfljótt úr henni. Mér finnst það
vera forréttindi að hafa kynnst svo
einarðri og elskuverðri konu, sem
Frænka var mér, og þótt samskiptin
hafi verið minni síðustu árin lifir
minningin sterk og hlý um þau bæði,
hana og Jónas, sem var mér sá allra
besti og þolinmóðasti stóri frændi,
sem nokkur gæti óskað sér. Það er
trú mín að nú séu þau hamingjusam-
lega sameinuð á ný og hendi gaman
að öllu milli himins og jarðar. Guð
blessi minningu þeirra beggja. Ég
votta öllum öðrum vandamönnum
okkar samúð mína.
Með kveðju frá okkur á Egilsstöð-
um,
Steinunn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Á heimasíðu okkar utfarir.is
má finna:
Undirbúningur á útför.
Myndir af kistum.
Myndir af kórum og söngvurum.
Listi yfir sálma.
Verð á öllu sem lýtur að útför.
Símar 567 9110 og 893 8638
runar@utfarir.is
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Sjáum einnig um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.
7
)
9500F9G
2
-: %%46
. @
'
!
,
! <
! 2
"##$
. !!&
) ( 0 9!& 5!H/0,
!9!!
1 9!&
$9!!
9!&
<F$ & 9<$) !!
. .!& ! !!
) 0 9<$!& 5) .! !!
) 9<$9<$!! .!('/$ %$&!&
$ 9<$!! (! 3 *!&
$9<$!! ( $% !&
! !!! ( <$ !&
3 , !!& $ $$ %$&!!/
7
7
.
2
' !! : $
'( 3 $I
'
( :
0
&
'
!
!
' 1
"##$
+ '
F
'$& /$ &
$ /$ !!
B& /
'0 ;0F01;
' 3 $#
'
!
8 '
! G
"##$
:
'
!
*!(! !
,!-& /
;
<
<
6
& '
, '
1
'15?
?+10 . $:
'!/
(
<
H'
,
I
!,' 9
9 ,6! F9
' ,$(! !
$ 3 ,./' ,!& ', $+ ,!!
)*('/' ,!! 1$ $' ) !&
$ 3 ,)*(& .!) !!
3 3,3 3 3,/
.
/.
1
J: *$ :%$$&
$; C
- (
2
&
'
!
8
! '
1
"##$
.
<
< '! ,
I
: $)! &/)!
9<$9<$!!
$ ' & K: 1&<!&
($
: &
3 3,/