Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 61
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
laugard. kl. 10-14
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
H
ö
n
n
u
n
&
u
m
b
ro
t
e
h
f
/
D
V
R
0
5
6
- trygging fyrir l
águ verði!
fjölbreytt úrval
B ú s e t i h s f . S k e i f u n n i 1 9 s í m i 5 2 0 - 5 7 8 8
w w w . b u s e t i . i s
Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði!
umsóknarfrestur til 13. mars
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00. Með umsóknum
um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila: síðustu skattskýrslu og launaseðlum síðustu sex mánaða.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 14. mars kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína að öðrum kosti
gætu þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns.
3ja herb.
Frostafold 20, Reykjavík
78m2 íbúð 305 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.211.008
Búsetugjald kr. 42.442
Afhending maí/júní
Nónhæð 1, Garðabæ
90m2 íbúð 202 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.198.301
Búsetugjald kr. 42.168
Afhending í apríl
2ja herb. 4ra herb.
Miðholt 3, Hafnarfirði
81m2 íbúð 201 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 931.748
Búsetugjald kr. 37.280
Afhending í apríl
Nýtt - Kirkjustétt, Reykjavík
112m2 íbúð 107 Alm.lán
Búseturéttur kr. 1.977.000
Búsetugjald kr. 77.122
Afhending 18. maí
Frostafold 20, Reykjavík
88m2 íbúð 201 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.308.002
Búsetugjald kr. 47.073
Afhending fljótlega
Íbúð með leiguíbúðalánum
veitir rétt til húsaleigubóta.
Íbúð með almennum lánum
veitir rétt til vaxtabóta.
ÉG FLETTI upp í
almennum hegningar-
lögum frá 1940, nr. 19
frá 12. febrúar. Í 34.
gr. stendur: „Í fangelsi
má dæma menn ævi-
langt eða um tiltekinn
tíma, ekki skemur en
30 daga og ekki lengur
en 16 ár. Þegar lögin
leggja fangelsi við af-
broti, er átt við fang-
elsi um tiltekinn tíma,
nema annað sé sér-
staklega ákveðið.“
Síðastliðið vor voru
tvær ungar stúlkur
myrtar á miskunnar-
lausan hátt hér á landi,
önnur þeirra var yngri dóttir mín.
Þær þurftu báðar að berjast fyrir
lífi sínu og töpuðu. Dóttir mín var
alein, algjörlega alein að berjast fyr-
ir lífi sínu við fullburða karlmann.
Meðalaldur íslenskra kvenna er
u.þ.b. áttatíu ár. Það eru allar líkur
á að báðar þessar stúlkur hefðu átt
sextíu ár ólifuð. Annar morðingj-
anna fékk sextán ára fangelsi og
hinn 14 ár. Reyndar eiga bæði málin
eftir að fara fyrir Hæstarétt.
Nokkrum mánuðum eftir að stúlk-
urnar voru myrtar var ungur maður
innan við þrítugt einnig myrtur. Ég
held það sé örugglega rétt hjá mér
að það eigi eftir að dæma í því máli.
Miðað við ofangreinda dóma eru
engar líkur á að sökudólgurinn fái
lengri dóm en sextán ár. Meðalaldur
karla er aðeins lægri en kvenna, efa-
laust hefði þessi ungi maður lifað í
a.m.k. 50 ár í viðbót. Miðað við 40.
gr. sömu hegningarlaga og að ofan
er vitnað í munu þessir menn aldrei
sitja inni nema 50-75% tímans. Í
þeirri grein stendur: „Þegar fangi
hefur afplánað 2/3 hluta refsitímans
getur Fangelsismálastofnun ríkisins
ákveðið að fanginn skuli látinn laus
til reynslu.Reynslulausn má þó
veita, ef sérstaklega stendur á, þeg-
ar liðinn er helmingur refsitímans.
Reynslulausn verður ekki veitt ef
slíkt þykir óráðlegt vegna haga
fangans, enda skal honum vís hent-
ugur samastaður og vinna eða önnur
kjör sem nægja honum til fram-
færslu. Yfirlýsing hans skal og feng-
in um að hann vilji hlíta þeim skil-
yrðum sem sett eru fyrir
reynslulausn.“ Það er hvergi minnst
á að fanginn gæti verið stórhættu-
legur öðrum og umhverfi sínu og
hefði kannski ekkert út í þjóðfélagið
að gera.
Þetta er ekki mikil refsing fyrir
að taka heilt mannslíf. Morðingi tek-
ur ekki bara eitt mannslíf. Hann
tekur líf foreldra fórnarlambanna.
Allar væntingar til barnsins (ég
nota orðið barn vegna þess að af-
kvæmi þitt er alltaf barnið þitt, það
skiptir ekki máli á
hvaða aldri það er) eru
teknar frá foreldrun-
um og líf þeirra hrynur
til grunna. Barnið er
hluti og framlenging af
foreldrinu. Þótt for-
eldrar eigi fleiri börn
þá geta þeir yfirleitt
ekki hjálpað þeim í
gegnum þeirra sorg
vegna þess að þeir hafa
ekkert að gefa af sér,
þeir eru í svo miklum
sárum. Það getur haft
ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar í för með sér.
Þegar ég frétti af
láti yngri dóttur minn-
ar var ég að passa dótturson minn,
þá innan við þriggja ára gamlan.
Hann horfði á mig „geðbilast“. Ég
gat ekkert sinnt honum né eldri
dóttur minni mánuðum saman, en
hef verið að reyna að vinna í því al-
síðustu mánuði. Ég veit ekki hvaða
afleiðingar þetta áfall mun hafa á
dótturson minn í framtíðinni .
Stundum reiðist hann mér eða
mömmu sinni án nokkurrar sýni-
legrar ástæðu. Hvorug okkar veit
hvernig á að hjálpa þriggja ára
barni að syrgja náinn ástvin. Hann
veit að hún er dáin, en ekki hvernig
hún dó. Einhvern tíma verður að
segja honum frá því, en hvenær?
Ég ætla ekki að lýsa því í smáat-
riðum hvernig mér leið fyrstu mán-
uðina, en það var eins og helvíti á
jörðu. Ég vildi fá að leggjast inn á
spítala og láta taka líf mitt, en ég
hafði engan rétt til þess. Þessi vilji
minn kom því ekkert við hvort ég
elskaði eldri dóttur mína og dótt-
urson, ég taldi mig bara ekki færa
um að lifa. Núna reyni ég bara að
komast í gegnum einn dag í einu og
það er enginn leikur. Það tekur for-
eldra 2-4 ár að læra að lifa með þess-
um mesta missi í heimi, en þeir bera
sorgina það sem þeir eiga eftir ólif-
að. Hér vitna ég í bók eftir Barböru
D. Rosof sem heitir „The Worst
Loss“ og ég pantaði hjá Máli og
menningu. Það var óvenju stór hóp-
ur foreldra sem misstu börnin sín á
síðasta ári og ég ráðlegg þeim að
lesa fyrrnefnda bók. Hún auðveldar
manni að skilja allar tilfinninga-
flækjurnar sem fylgja barnsmissi.
Það mættu líka fleiri lesa þessa bók,
t.d. þeir sem tengjast þeim sem hafa
misst barn. Margir spurðu mig fljót-
lega eftir þetta mikla áfall hvort ég
væri ekki farin að hressast, eins og
það hefði verið tekinn úr mér botn-
langinn eða eitthvað álíka.
Ég hefði verið tilbúin að gefa líf
mitt í stað dóttur minnar, eins og
hendi væri veifað, en ég fékk ekki
það val og ég er viss um að allir for-
eldrar þessara ungmenna hefðu ver-
ið jafntilbúnir og ég að gefa þeirra
líf í stað barna þeirra. Ég mun aldr-
ei sætta mig við að hafa ekki getað
verndað dóttur mína frá þessum
hryllingi. Nú hefur verið tekinn frá
mér sá réttur að deyja sæmilega
sátt við sjálfa mig og lífið.
Tíminn læknar ekki öll sár og
aldrei stærsta sár í heimi: Að missa
barnið sitt. Eina sem ég tel heilagt í
þessum heimi er líf hverrar mann-
eskju, það má enginn, alls enginn
snerta annars líf. Ef ég hefði framið
einhvern af þessum glæpum fyndist
mér ég hafa fyrirgert lífi mínu og
vildi að það yrði tekið frá mér.
Ef einhvern tíma er ástæða til að
dæma einstakling í lífstíðarfangelsi
þá er það þegar hann hefur tekið
annars líf. Ég vil gjarna að einhver
svari mér sem vit hefur á hvenær
ástæða er til að dæma einhvern í
lífstíðarfangelsi. Er hægt að fremja
stærri glæp en morð? Mig langar
einnig til að vita hvaða formúla var
notuð þegar þessi 16 ára regla var
ákveðin.
Ég er sannfærð um að ég tala fyr-
ir munn þeirra foreldra sem hlut
eiga að máli.
Hvaða glæpur krefst
lífstíðardóms á Íslandi?
Gerður
Berndsen
Refsingar
Ég ætla ekki að lýsa
því í smáatriðum, segir
Gerður Berndsen,
hvernig mér leið fyrstu
mánuðina, en það var
eins og helvíti á jörðu.
Höfundur er teiknari FÍT.
annan hvern miðvikudag
Njálsgötu 86,
s. 552 0978
Vöggusængur,
vöggusett,
barnafatnaður