Morgunblaðið - 06.03.2001, Síða 64
UMRÆÐAN
64 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fágun
fagmennska
Gullsmiðir
EFTIR rólega byrjun hefur
Kasparov sett í fluggírinn og unnið
hverja skákina á fætur annarri.
Einungis Judit Polgar hefur tekist
að ná jafntefli gegn honum síðan
hann hóf sigurgöngu sína í fjórðu
umferð mótsins. Skák þeirra Judit
Polgar í sjöundu umferð varð gríð-
arlega spennandi og flestir þeirra
sem fylgdust með skákinni töldu að
henni mundi ljúka með glæsilegum
sigri Kasparovs. Reyndar var
Kasparov sjálfur þeirrar skoðunar
meðan skákin stóð yfir og líklega
gaf staðan tilfefni til þess, en Judit
varðist af hugkvæmni og tókst að
halda jafntefli eftir mikla baráttu
sem hélt skákáhugamönnum um
allan heim hugföngnum. Karpov
var ekki jafnheppinn í sömu um-
ferð gegn Grischuk. Þar náði hann
að jafna stöðuna með svörtu, og
jafnvel betra tafli, en í fertugasta
og síðasta leik fyrir tímamörkin lék
hann skákinni af sér. Karpov hefur
vakið nokkra athygli á mótinu fyrir
taflmennsku sína. Það er t.d. at-
hyglisvert, að hann hefur aldrei
hrókað í þeim fjórum skákum þar
sem hann hefur stýrt svörtu mönn-
unum. Þá hefur hann teflt prýð-
isvel á köflum, en virðist ávallt
lenda í tímahraki þegar á reynir og
það hefur spillt fyrir honum. Hann
er því greinilega ekki sami skák-
maður og á sínum gullaldarárum
þegar hann bar höfuð og herðar yf-
ir aðra skákmenn, tefldi hraðar en
flestir aðrir og lenti aldrei í tíma-
hraki. Í áttundu umferð fékk Karp-
ov þó uppreisn æru með því að
leggja sjálfa Judit Polgar að velli.
Hinn fyrrverandi heimsmeistarinn
á mótinu, Gary Kasparov, vann
einnig sína skák. Í þetta sinn var
fórnarlambið Alexei Shirov.
Greinilegt er, að nú er að fyrnast
yfir fyrri deilur þeirra Kasparovs
og Karpovs eins og fram kom þeg-
ar þeir mættust í fimmtu umferð
mótsins. Þá heilsuðust þeir fyrir
skákina og gáfu sér góðan tíma til
að skoða skákina saman að henni
lokinni. Kasparov hugsar einnig
vafalítið hlýtt til Karpovs eftir sig-
ur hans gegn Judit, því þar með er
Kasparov öruggur með að enginn
nær að skjótast upp fyrir hann á
mótinu. Kasparov er nú með
tveggja vinninga forystu þegar
tvær umferðir eru eftir. Staðan á
mótinu er þessi:
1. Kasparov 6 v.
2. Judit Polgar 4 v.
3.–6. Anatoly Karpov, Peter
Leko, Alexei Shirov, Griscuk 3½ v.
Fórnarlamb Kasparovs í sjöttu
umferð var ungverski stórmeistar-
inn Leko. Byrjunin var spænskur
leikur, þar sem Kasparov sneiddi
hjá hinni vel þekktu Marshall-árás.
Hann tefldi byrjunina rólega en yf-
irvegað og þessi leikmáti virðist
hafa komið Leko í opna skjöldu því
hann tefldi mjög ómarkvisst og lét
Kasparov hreinlega pakka sér
saman!
Hvítt: Gary Kasparov (2.849)
Svart: Peter Leko (2.745)
Spænski leikurinn [C88]
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0–0 Be7 6. He1 b5 7.
Bb3 0–0 8. a4 Kasparov forðast
Marshall-árásina sem upp kæmi
eftir 8. c3 d5 8. ... Bb7 9. d3 d6 10.
Rbd2 Ra5 11. Ba2 c5 12. Rf1 He8
Annar möguleiki er 12. ... b4 13.
Re3 Í skákinni Balashov-Frolov
Moskva 1996 var framhaldið 13.
Rg3 h6 14. Rf5 Bf8 15. Bd2 b4 16.
R3h4 og hvítur stóð aðeins betur
13. ... h6 14. Bd2 Tilgangur þessa
rólega leiks er ekki eingöngu að
koma manninum út, heldur hótar
hann að riðla peðastöðu svarts með
Bxa5 Dxa5 og axb5
14. ... c4? Nú missir Leko þol-
inmæðina. Betra var 14. ... Rc6 15.
c3 Dd7 og upp er kominn dæmi-
gerð staða úr spænskum leik, þar
sem hvítur heldur örlitlum stöðu-
yfirburðum 15. Bc3 Db6 16. Rd2
Rc6 Skárra var 16. ... cxd3 17. cxd3
Rc6 þó hvítur haldi öflugu frum-
kvæði eftir 18.b4
17. Rd5! Rxd5 18. exd5 Ra5 19.
Bxa5 Dxa5 20. dxc4 Dxa4 21. c5
21. ... Db4? Leko er heillum horf-
inn. Ekki var öll nótt úti enn eftir
21. ... Da5 22. Re4 Dc7 þó eftir 23.
c6 hafi hvítur töglin og hagldirnar
22. Re4 Dxb2 23. cxd6 Bf8 24. c3
f5 25. d7 Hed8 26. d6+ Kh8
27. Rc5! Kasparov gat nú unnið
drottninguna með 25. He2 Da3 26.
Be6, en textaleikurinn er mun
sterkari 27. ... Bc6 28. Rd3 Dxc3
29. Rxe5 Be4 30. Rf7+ Kh7 31.
Rg5+ og Leko gafst upp því hann
er varnarlaus eftir 31. ... Kg6 32.
Rxe4 fxe4 33. Bd5! og eftir Ha7
kemur 24. Bxe4+ Kf6 25. Dg4 blas-
ir mátið við, 1–0.
Bragi missti
naumlega af áfanga
Bragi Þorfinnsson stóð sig afar
vel á skákmótinu í Capelle la
Grande, einu fjölmennasta og
sterkasta opna skákmóti ársins.
Þegar tvær umferðir voru til loka
mótsins þurfti hann einungis hálf-
an vinning til að tryggja sér áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli. Hann
tapaði hins vegar báðum síðustu
skákunum og missti því naumlega
af áfanganum. Miðað við frammi-
stöðu hans á mótinu er þess greini-
lega skammt að bíða að hann
tryggi sér alþjóðlegan meistaratit-
il.
Alls sóttu 18 íslenskir skákmenn
mótið undir forystu Helga Ólafs-
sonar, stórmeistara og skólastjóra
Skákskóla Íslands.
Skákþing Kópavogs
Skákþing Kópavogs hófst á
sunnudag, en frestaðar skákir
verða tefldar á þriðjudagskvöld, 6.
mars, kl. 19:30. Þeir sem hafa
áhuga á að hefja keppni á þriðju-
daginn hafi samband við Harald
Baldursson (s.: 896 6925, hallib@-
mmedia.is) eða mæti tímanlega til
leiks og skrái sig á staðnum. Tefld-
ar verða 7 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Umhugsunartími er 90 mín-
útur á 30 leiki og 45 mínútur til að
ljúka skákinni.
Skákmót á næstunni
9.3. SÍ. Íslandsmót skákfélaga.
11.3. Hraðskákmót Íslands.
12.3. TR. Fyrirl. Ian Rogers.
15.3. SA. 10-mínútna mót.
16.3. SÍ. Íslandsm. grunnsk.sv.
16.3. TR. Íslandsm. framhsk.sv.
Kasparov langefstur
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
SKÁK
L i n a r e s
LINARES-SKÁKMÓTIÐ
23.2.–7.3. 2001
Morgunblaðið/ÓmarGary Kasparov þungt hugsi.
KJARTAN Guð-
jónsson, minn gamli
kennari úr Myndlista-
og handíðaskólanum,
vandar okkur gagn-
rýnendum Morgun-
blaðsins ekki kveðj-
urnar í nær þriggja
dálka langhundi sín-
um, laugardaginn 17.
febrúar. Hvergi hef ég
séð mann nota jafn-
mörg orð til þess eins
að frábiðja sig gagn-
rýni. Hefði hann ekki
betur sparað sér blek-
ið með því að biðja
sómafólkið Elínbjört
og Tryggva um að
verja sýningasal Gallerí Foldar
fyrir ágengni okkar? Í staðinn kaus
Kjartan að flíka ólundinni sem
hann hefur svo oft látið í ljós eftir
að önnur tegund listsköpunar en
hann aðhyllist kom til sögunnar.
Eins og sannast á frábærum skrif-
um hans til varnar abstraktlistinni
á ofanverðum fimmta áratugnum
naut hann sín í hvívetna meðan
hann var sjálfur ungur og upp-
reisnargjarn. Hans verður ábyggi-
lega lengi minnst fyrir eldmóðinn
og rökfestuna þegar hann hafði
þann góða málstað að verja sem
var framúrstefnulist eftirstríðsár-
anna.
En hætt er við að hans verði
jafnframt minnst með öðrum hætti
eftir að heimurinn tók að þróast ei-
lítið öðruvísi en honum þóknaðist.
Þegar ný kynslóð listamanna kom
til sögunnar sem honum var ekki
að skapi tók hann þegar til við að
væna hana um slæleg vinnubrögð,
nákvæmlega eins og þegar honum
og hans kynslóð var brigslað um
fúsk tuttugu árum fyrr. Í staðinn
fyrir að leggja saman tvo og tvo og
læra af síendurteknum mistökum
þröngsýnna samferðarmanna kaus
Kjartan að spóla með þeim í for-
pokunarforinni.
Svo lágt leggst hann í herferð-
inni á hendur ímynduðum and-
stæðingum sínum frá sjöunda ára-
tugnum að hann vílar ekki fyrir sér
að veitast að látnum listamanni.
Þannig fullyrðir hann í viðtali við
Þórunni Þórsdóttur – í Morgun-
blaðinu, laugardaginn 24. febrúar –
að Jón Gunnar Árnason, mynd-
höggvari, hafi ekki farið að brillera
fyrr en hann veiktist af hvítblæði.
Fyrir utan glámskyggnina – en
hún ber vott um hreina vanþekk-
ingu hans á höggmyndalist – er
svona fleipur um látinn kollega svo
smekklaust að það er engum manni
sæmandi, ekki einu sinni Kjartani
Guðjónssyni.
Þá er það í hæsta máta óviðeig-
andi þegar Kjartan notar orðið
múslimi sem skammaryrði um mig.
Hér á landi búa ófáir sem aðhyllast
íslam og hvers á þetta blessaða
fólk að gjalda? Eru þetta ekki ansi
grófir fordómar? Ég hef heyrt orð-
ið talíbani notað um hvers kyns
öfga. Það hefði verið snöggtum við-
kunnanlegra einkum nú þegar þeir
eru uppvísir að spell-
virkjum gegn ómetan-
legum fornminjum í
Afganistan.
Af ofansögðu má sjá
að það er hið mesta
hnoss að fá það óþveg-
ið frá Kjartani, jafnvel
þótt yfirhalningin sé
uppfull af dylgjum og
mótsagnakenndum
rangfærslum. Sem
dæmi er honum á ein-
um stað mjög í mun að
milli listar nútímans
og fyrri alda haldist
ákveðin tengsl. Dálæti
hans á Picasso er ekki
hvað síst fyrir það að
Spánverjinn skyldi ætíð halda
tryggð við klassísk viðhorf hversu
oft sem hann hljóp út undan sér.
Að sama skapi telur hann einn
versta glæp ungu kynslóðarinnar á
sjöunda og áttunda áratugnum
vera þann að rjúfa öll slík tengsl
við fortíðina.
En um leið og hann viðrar slík
sjónarmið fer það ekki lítið fyrir
brjóstið á honum að ég skuli voga
mér að benda á tengsl Þorbjargar
Höskuldsdóttur við einn af ágæt-
ustu meisturum endurreisnartím-
ans, þó svo það megi kallast borð-
leggjandi, og sé Þorbjörgu ekki til
annars en sóma.
Það er eins og ég sé að drýgja
glæp eða ofsækja kollega hans ef
mér verður á að benda á þau tengsl
sem Kjartan telur mest um vert að
listamenn samtímans varðveiti. En
hann hefur ekki fyrr sleppt ákær-
unni um að ég fari offari í sam-
anburðarfræðunum þegar hann
álasar mér fyrir að dæma Pétur
Gaut án þess að taka tillit til hefð-
arinnar og tengsla hans við hana.
Þannig kemur á daginn, ef farið
er í saumana á skrifum Kjartans,
að rökin í einni málsgreininni
stangast á við fullyrðingarnar í
þeirri sem á undan fór uns ekkert
stendur eftir af allri orðræðunni
annað en innantóm stílæfingin. Það
er vissulega gott að hafa stíl, en
mikið er það þreytandi þegar ekk-
ert er á bakvið stílinn annað en sví-
virðingar í garð þeirra sem maður
velur að kalla óvini sína.
Dylgjunum
svarað
Halldór Björn
Runólfsson
Höfundur er gagnrýnandi.
Listrýni
Það kemur á daginn ef
farið er í saumana á
skrifum Kjartans, segir
Halldór Björn Runólfs-
son, að rökin í einni
málsgreininni stangast
á við fullyrðingarnar í
þeirri sem á undan fór.
Mörkinni 3, sími 588 0640G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur
Mjólkurglös
kr. 1.050
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
Hálskremið — hálskremið
BIODROGA