Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 66
HESTAR
66 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í SAMNINGSDRÖGUM er gert
ráð fyrir að sæðingarstöðin verði
opnuð í 40 daga og tekið sæði úr
Orra frá Þúfu og fyrir það verður
greidd ein og hálf milljón króna.
Sagði Sigurður að það væri síðan
undir þeim hjá Orrafélaginu komið
hversu vel þeir nýttu þennan tíma
og hvað mörgum hryssum þeir
kæmu að í sæðingar. Kostnaður á
hverja hryssu ráðist af því hversu
margar hryssur verða sæddar og
deilist fjöldinn í þessa heildarupp-
hæð. Á síðasta ári voru greiddar 20
þúsund krónur fyrir hverja hryssu
en Sigurður sagðist gera ráð fyrir
að hann yrði mun hærri nú. Sagð-
ist hann gera ráð fyrir að vel gæti
svo farið að greiddar yrðu 50 þús-
und krónur á hverja hryssu nú.
Næsta skref verður að kalla saman
fund hjá Orrafélaginu og bera
þessar hugmyndir undir eigendur
hestsins.
Tíu tollar á
frjálsan markað
Á aðalfundi Orrafélagsins nýlega
var samþykkt að aðeins yrðu boðin
pláss fyrir 10 hryssur á frjálsum
markaði en á síðasta ári voru 20
pláss seld á frjálsum markaði. Sig-
urður sagði þó koma til greina að
bæta við 5 hryssum til að mæta
kostnaðaraukningu vegna sæðinga.
Að loknum sæðingum í sumar
fer Orri í girðingu og sagði Sig-
urður að þá væri gert ráð fyrir að
búið væri að afgreiða hið minnsta
30 hryssur og og yrðu þá 40 eða 45
hryssur hjá honum á tveimur
gangmálum sem væri nokkuð hóf-
legt álag fyrir hestinn.
Á síðasta ári fengu 78 hryssur
við Orra en tvær hryssur fyljuðust
ekki sem gerir 97,5% fyljun sem
sjálfsagt er einsdæmi hjá hesti sem
gagnast svo mörgum hryssum.
Þess ber að gæta 56 hryssur af
þessum 78 voru sæddar. Sigurður
sagði að lögð væri mjög rík áhersla
á að allar hryssurnar fengju því
tóm hryssa þýddi mikið fjárhags-
tjón fyrir þann sem ætti hlut að
máli. Telja menn útilokað að ná svo
háu fyljunarhlutfalli án þess að
sæðingar komi til þrátt fyrir að
frjósemin hafi alltaf verið í góðu
lagi hjá Orra.
Folatollar á hálfa
milljón króna
Á aðalfundi félagsins var ákveðið
að verð á tollum á frjálsum mark-
aði yrði hið sama og á síðasta ári
eða 350 þúsund krónur. Eins og
áður kom fram voru 20 hlutir seld-
ir á frjálsum markaði í fyrra og
voru nokkrir þeirra endurseldir og
mun hæsta verð sem vitað er um
hafa farið yfir hálfa milljón króna.
Er það að öllum líkindum lang-
hæsta verð sem greitt hefur verið
fyrir folatoll hjá íslenskum stóð-
hesti.
Sigurður sagði að engin áform
væru uppi um útflutning á sæði úr
Orra þótt allnokkrar fyrirspurnir
hefðu borist félaginu.
Sæðingarnar standa
og falla með Orra
Páll Stefánsson dýralæknir hjá
Sæðingarstöðinni í Gunnarsholti
sagði að fyrirtækið hafi ritað Orra-
félaginu bréf þar sem fram kom að
ekki gæti orðið um sæðingar að
ræða á sama fjárhagsgrundvelli og
á síðasta ári og um leið kannað
hvort félagið hefði hug á viðræðum
um nýjan samning. Sagði Páll ljóst
að ef ekki næðust samningar um
sæðistöku úr Orra yrði engin starf-
semi þetta árið en eftir viðræður
við formann félagsins væri kominn
samningsgrundvöllur. Ef samning-
ar nást er hugsanlegt að einhverjir
fleiri hestar verði látnir fljóta með
og nefndi hann til dæmis Andvara
frá Ey sem er í eigu Hrossarækt-
arsamtaka Suðurlands sem eru
hluthafar í Sæðingarstöðinni. Kann-
aður hefði verið áhugi hjá eigend-
um Kolfinns frá Kjarnholtum og
Gusts frá Hóli I að láta taka sæði
úr klárunum en hann ekki verið
fyrir hendi.
Hvað frystingu sæðis varðar
sagði Páll að Sæðingarstöðin hefði
sótt um styrk til tilrauna við fryst-
ingu sæðis til Framleiðnisjóðs en
svar hefði ekki enn borist. Yrði þar
um að ræða þriggja ára verkefni
sem vantar fjármagn til. Útflutn-
ingur á sæði byggist á því að lausn
finnist á frystingu þess.
Samningur
um sæðing-
ar í sjónmáli
Orrafélagið og Sæðingarstöðin í Gunnarsholti reyna að finna samstarfsflöt
Allt stefnir í að Sæðingarstöðin í Gunnarsholti verði
opnuð á vordögum en útlit var fyrir að svo yrði ekki
eftir taprekstur síðasta árs. Fyrir liggja drög að
samkomulagi milli Orrafélagsins og Sæðingar-
stöðvarinnar þar sem gert er ráð fyrir að tekið verði
sæði úr Orra í 40 daga. Valdimar Kristinsson ræddi
við nýkjörinn formann Orrafélagsins Sigurð Sæ-
mundsson og Pál Stefánsson dýralækni um þessi
samningsdrög og hugsanlega starfsemi á árinu.
Morgunblaðið/Valdimar
Páll Stefánsson dýralæknir segir að þátttaka Orrafélagsins í sæðingum
sé grundvöllur þess að hægt sé að opna stöðina í vor.
Morgunblaðið/Valdimar
Orri frá Þúfu verður 40 daga á Sæðingarstöðinni í Gunnarsholti ef samningar takast milli stöðvarinnar og eig-
enda hestsins en fer síðan í heimahagana þar sem hann mun afgreiða þær hryssur sem eftir verða.
ÚRSLIT hafa borist frá þremur
mótum sem haldin voru um helgina
og einu sem fram fór í síðustu viku.
Fyrst er að nefna að í Hafnarfirði
hélt Sörli sitt árlega mót sem fram til
þessa hefur verið kallað PON-mót en
heitir nú með nýjum styrktaraðila
Virkon S-mót. Var mótið haldið inn-
anhúss og var þátttaka góð í opnum
flokki.
Að Hrísholti í Biskupstungum
héldu Logi og Trausti sitt fyrsta
sameiginlega mót. Er þar um að
ræða stigasöfnunarmót en alls verða
mótin þrjú. Þátttaka var allþokkaleg
eða um 30 keppendur.
Á Lögmannshlíðarvelli á Akureyri
var Léttir með sitt fyrsta vetrarmót
sem reyndar stóð til að halda á ís á
Pollinum. Þegar farið var að ryðja ís-
inn kom í ljós að hann var ekki
traustur og því brugðið á það ráð að
halda mótið á félagssvæðinu. Keppt
var í tveimur flokkum í tölti og 100
metra fljúgandi skeiði.
Þá var í vikunni haldið fyrsta mót-
ið í meistaradeild 847 á Ingólfshvoli
þar sem miklir snillingar leiddu sam-
an gæðinga sína í fjórgangi. Þar varð
Hinrik Bragason hlutskarpastur á
Roða frá Akureyri. Athygli vakti góð
frammistaða Sigurðar Sæmunds-
sonar á Esjari frá Holtsmúla sem er
reyndar afbragðsgóður fimmgangs-
hestur. Sigurður hafði ekki hugsað
sér að taka þátt í þessu móti en var
eggjaður til þess á síðustu stundu.
Var reyndar nýkominn úr erfiðum
þrekþjálfunartúr á Esjari en kembdi
klárnum og setti á hann yfirbreiðslu
og upp í kerru og beint á Ingólfshvol.
Ætla má að þessi mót gætu orði
skemmtileg þegar líður á.
Öðru stigasöfnunarmóti Geysis
sem halda átti á laugardag var frest-
að vegna veðurs. Þá er þess að geta
að úrtaka fyrir Stjörnutölt sem hald-
ið verður í Skautahöllinni á Akureyri
verður á föstudagskvöldið næstkom-
andi. Stjörnutöltið verður haldið um
aðra helgi en úrtakan mun fara fram
í Skautahöllinni.
Úrslit mótanna urðu annars sem
hér segir:
Meistaradeild 847 haldið
á Ingólfshvoli
1. Hinrik Bragason á Roða frá Akureyri, 6,60
2. Sigurbjörn Bárðarson á Hauki frá Akur-
gerði 6,57
3. Sigurður Sæmundsson á Esjari frá Holts-
múla 6,50
4. Sigurður Sigurðarson á Óliver frá Aust-
urkoti 6,50
5. Tómas Ragnarsson á Jódísi frá Reykjavík
6,50
6. Vignir Jónasson á Hegra frá Glæsibæ 6,47
7. Adolf Snæbjörnsson á Glóa frá Hóli 6,37
8. Þórður Þorgeirss. á Þengli frá Kjarri 6,33
9. Erlingur Erlingsson á Fold frá Feti 6,23
10. Friðdóra Friðriksdóttir á Hnokka frá Ár-
móti 6,07
Börn
1. Sandra L. Þórðardóttir, Sörla, á Díönu 9 v.
frá Enni
2. Margrét F. Sigurðardóttir, Sörla, á Skildi
8 v. frá Hrólfsstöðum
3. Jón Bjarni Smárason, Sörla, á Frosta 8 v.
frá Galtanesi
4. Bjarnleifur Bjarnleifsson, Gusti, á Tommu
8 v. frá Feti
5. Skúli Þ. Jóhannsson, Sörla, á Flugu 16 v.
frá Hafnarfirði
Unglingar
1. Halldór F. Ólafsson, Andvara, á Róm 11 v.
frá Hala
2. Harpa Þorsteinsdóttir, Andvara, á Söru 9
v. frá Húsey
3. Rósa B. Þorvaldsdóttir, Sörla, á Árvakri
11 v. frá Sandhóli
4. Þórunn Hannesdóttir, Andvara, á Gáska
11 v. frá Reykjavík
5. Halla M. Þórðardóttir, Andvara, á Regínu
6 v. frá Flugumýri
Ungmenni
1. Bylgja Gauksdóttir, Andvara, á Kolgrím 7
v. frá Ketilsstöðum
2. Daníel I. Smárason, Sörla, á Vestfjörð 10
v. frá Hvestu
3. Eva Benediktsdóttir, Herði, á Ísak 7 v. frá
Mosfellsbæ
4. Perla D. Þórðardóttir, Sörla, á Tý 8 v. frá
Lambleiksstöðum
5. Margrét Guðrúnardóttir, Sörla, á Frökk 8
v. frá Hafnarfirði
Opinn flokkur
1. Adolf Snæbjörnsson, Sörla, á Eldingu 6 v.
frá Hóli
2. Birgitta D. Kristinsdóttir, Gusti, á Nótt 7
v. frá Hlemmiskeiði
3. Matthías Barðason, Fáki, á Reginn 6v.
Ketu
4. Magnea R. Axelsdóttir, Herði, á Rúbín 6 v.
frá Tröllagili
5. Haukur Hauksson, Fáki, á Eddu 7 v. frá
Hvammi
Vetrarmót Léttis
á Lögmannshlíðarvelli
Tölt, opinn flokkur
1. Baldvin A. Guðlaugsson á Golu frá Ysta-
gerði
2. Úlfhildur Sigurðardóttir á Skugga frá
Tumabrekku
3. Ríkharður Hafdal á Þraut frá Glæsibæ
4. Björn Einarsson á Hrolli frá Árdal
5. Ásmundur Gylfason á Hákoni frá Hraukbæ
Börn og unglingar
1. Dagný B. Gunnarsdóttir á Fannari frá
Hólshúsum
2. Gréta Jónsteinsdóttir á Gretti frá Skriðu
3. Ragnhildur Haraldsdóttir á Dyni frá
Neðri Vindheimum
4. Sigurður H. Stefánsson á Glettu frá Ás-
laugsstöðum
5. Guðmunda Sveinsdóttir á Ternu frá
Skjaldarvík
100 metra fljúgandi skeið
1. Þorbjörn H. Matthíasson á Bleikju frá Ak-
ureyri, 8,4 sek.
2. Baldvin A. Guðlaugsson á Vaski frá Vögl-
um, 8,4 sek.
3. Freyja Putkammer á Eldjárn frá Efri-
Rauðalæk, 8,6 sek.
Fallegasti hestur mótsins
Ofsi frá Brún sem Höskuldur Jónsson sat.
Vetrarmót Loga og Trausta
haldið í Hrísholti
Börn
1. Tinna D. Tryggvadóttir, Loga, á
Lyftingu 12 v., bleikálóttri frá Kjarnholtum
2. Ragnheiður Bjarnadóttir Trausta, á
Hlé 9 v. brúnum frá Þóroddsstöðum
3. Andri Þ. Valgeirsson, Loga, á
Klængi 6 v. brúnum frá Torfastöðum
4. Guðrún K. Snæbjörnsdóttir, Trausta,
á Maístjörnu 8 v. rauðri frá Efstadal
Beint úr þrek-
þjálfun í keppni
Hestamót helgarinnar