Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 69
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 69
RANNSÓKNARKVÖLD Félags ís-
lenskra fræða verður haldið mið-
vikudaginn 7. mars í Sögufélags-
húsinu í Fischersundi. Þorgerður
Þorvaldsdóttir, sagnfræðingur,
flytur erindi sem nefnist: Meyjur,
mæður og dræsur: um táknmyndir
hins kvenlega í íslenskri þjóðarvit-
und. Hefst erindið kl. 20.30.
„Í erindinu verður sjónum beint
að táknmyndum hins kvenlega lík-
ama í íslenskri þjóðarvitund og því
hvernig hugmyndir um íslenska
náttúru, menningu, þjóðerni og
hreinleika holdgerast í líkömum
valinna kvenímynda. Þær kven-
myndir sem Þorgerður beinir sjón-
um að eru móðirin, drósin og meyj-
an þ.e. fjallkonan, ástandskonan og
fegurðardrottningin. Þær birtast
sem útverðir hins kvenlega. Ímynd-
ir þeirra marka hástig en jafnframt
niðurlægingarmörk íslensks kven-
leika enda kristallast í þeim tog-
steitan um konur sem kyn-(lausar)-
verur. Líkamar þeirra standa sem
tákn fyrir vonir og væntingar þjóð-
arinnar en einnig vonbrigði og
skömm ef því er að skipta og eru
þau viðbrögð óháð þeim ein-
staklingum sem með hlutverkin
fara hverju sinni.
Þorgerður Þorvaldsdóttir lauk
BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla
Íslands 1995 og MA-prófi í kynja-
fræðum (Gender Studies and Fem-
inist Theory) frá The New School
of Social Research í New York árið
1998. Þorgerður vinnur nú sem
sjálfstætt starfandi fræðimaður í
Reykjavíkurakademíunni.
Félagsmenn og aðrir sem áhuga
hafa eru sérstaklega minntir á nýj-
an fundarstað, Sögufélaginu við
Fischersund (upp af Aðalstræti),“
segir í fréttatilkynningu.
Erindi um meyjur,
mæður og dræsur
Eldri konum
verði boðin
krabbameins-
leit í brjóstum
AÐALFUNDUR Félags eldri
borgara í Reykjavík var haldinn 24.
febrúar sl. í félagsheimili félagsins
Ásgarði, Glæsibæ. Á fundinum,
sem var mjög fjölmennur, voru
samþykktar 5 tillögur stjórnar.
Tillaga frá Páli Gíslasyni lækni
og fyrrv. formanni félagsins var
samþykkt samhljóða, en þar segir:
„Aðalfundur Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni haldinn í
Ásgarði, Glæsibæ, 24. febrúar 2001
skorar á stjórn Krabbameinsfélags
Íslands að bjóða öllum eldri konum
þátttöku í Leitarstöð félagsins þar
sem leitað er að krabbameini í
brjóstum kvenna. Það er mikil þörf
á þessari leit og réttlætismál að
eldri konur njóti þess sama og aðr-
ar.
Formaður félagsins Ólafur Ólafs-
son var kosinn til tveggja ára. Í
stjórn voru kosin: Bryndís Stein-
þórsdóttir, Baldvin Tryggvason,
Halldóra H. Kristjánsdóttir, Helga
Gröndal, Jón Jónsson, Pétur Guð-
mundsson og Sigfús Johnsen. Fyrir
í stjórn eru Gróa Salvarsdóttir,
Guttormur Þormar, Jakob
Tryggvason, Marías Þ. Guðmunds-
son, Pétur H. Ólafsson, Stefán
Ólafur Jónsson og Þórir Daníels-
son.
Ólafur Ólafsson formaður félags-
ins heiðraði fyrrverandi formenn
félagsins og afhenti þeim heiðurs-
skjöl. Þeir eru Snorri Jónsson,
Bergsteinn Sigurðarson, Páll Gísla-
son og Kristján H. Benediktsson.
Ólafur Örn
með fundi
víða um land
ÓLAFUR Örn Haraldsson, alþingis-
maður, heldur nú fundi víða um land í
aðdraganda flokksþings Framsókn-
arflokksins. Ólafur Örn hefur boðið
sig fram til varaformanns Framsókn-
arflokksins og vill með heimsóknum
sínum og fundum kynna framboð sitt
og áherslur í stjórnmálunum jafn-
framt því að fræðast um hag og hugð-
arefni fólks, segir í fréttatilkynningu.
Ólafur Örn hefur þegar haldið
fundi í Hafnarfirði, Sauðárkróki og á
Snæfellsnesi en á næstu dögum verð-
ur hann á fundum á Egilsstöðum,
Reyðarfirði og Höfn í Hornafirði.
Næstkomandi föstudag verður Ólaf-
ur Örn á Akranesi og í Kópavogi á
laugardag. Þriðjudaginn 13. mars
verður Ólafur Örn á fundi í á Ísafirði
og daginn eftir, miðvikudag, í
Reykjavík. Þá eru einnig fyrirhugað-
ir fundir á Suðurlandi og í Keflavík en
ekki er enn afráðið hvenær þeir
verða.
Fimmtudaginn 15. mars verða
ungir framsóknarmenn með fram-
boðskynningu og er þangað boðið
þeim sem boðið hafa sig fram til
ábyrgðarstarfa fyrir Framsóknar-
flokkinn en milli þeirra verður valið á
flokksþinginu 16.-18. mars.
Fræðslufundur
um eigindlega
aðferðafræði I
GUÐRÚN Kristinsdóttir, dósent við
Kennaraháskóla Íslands, mun stýra
fræðslufundi á vegum Rannsóknar-
stofnunar KHÍ miðvikudaginn 7.
mars næstkomandi kl. 15.15–17.
Fundurinn verður haldinn í stofu M
301 í aðalbyggingu Kennaraháskóla
Íslands við Stakkahlíð og er öllum
opinn. Fundurinn er fyrstur í röð
þriggja funda um eigindlega að-
ferðafræði og eru þeir sjálfstæðir
hver um sig. Markmiðið með fund-
inum er að kynna og efna til umræðu
með þátttakendum um sérkenni að-
ferðafræði eigindlegra rannsókna á
sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis og
umönnunar. Fundurinn er sérstak-
lega ætlaður þeim sem eru að byrja
að kynna sér viðfangsefnið, eru að
rifja það upp eða taka þátt í um-
ræðum um það.
Varað við til-
raunaveiðum
á farfuglum
SIGRÍÐUR Ásgeirsdóttir formað-
ur Sambands dýraverndunarfélaga
Íslands hefur sent frá sér eftirfar-
andi:
„Í frétt í Morgunblaðinu á föstu-
dag er haft eftir yfirdýralækni að
menn hafi áhyggjur af þeim fjar-
læga möguleika að smit vegna gin-
og klaufaveiki kunni að berast til
landsins með álftum sem koma frá
Bretlandseyjum. Jafnframt kemur
fram að yfirdýralæknir telur nauð-
synlegt að skjóta nokkra fuglanna
til að kanna hvort þeir beri með
sér slíkt smit. Hins vegar kemur
einnig fram að ekki er hægt á
þessari stundu að segja til um það
til hvaða aðgerða verði gripið ef
fuglarnir reynist bera með sér
smit.
Nú mun yfirdýralæknir hafa sótt
um undanþágu til að skjóta tíu
álftir. Samkvæmt lögum um vernd,
friðun og veiðar á villtum fuglum
og villtum spendýrum no. 64/1994
eru fuglar, sem berast til landsins
friðaðir og þar með taldar álftir.
Ráðherra getur veitt undanþágu
frá þessu ákvæði að fenginni um-
sögn ráðgjafarnefndar um villt
dýr, ef talið er að dýrin valdi tjóni.
Reynslan er hins vegar sú, að enda
þótt gin-og klaufaveiki hafi herjað
á nágrannalöndin á undanförnum
öldum, mun hún ekki hafa borist til
landsins og allan þenna tíma munu
farfuglarnir hafa sótt landið heim,
án þess að bera smit í búsmalann.
Hér með er eindregið varað við
því að gripið verði til vanhugsaðra
tilraunaveiða á farfuglunum án
þess að yfirvöld hafi gert sér grein
fyrir því, hvaða tilgangi slíkar
veiðar eigi að þjóna. Að öðrum
kosti má búast við því að tauga-
veiklunar kunni að verða vart hjá
almenningi og jafnvel að skotglaðir
náungar grípi tækifærið og hefji
„tilraunaveiðar í vísindaskyni á
farfuglunum, til bjargar íslenskum
búpeningi.“
Almenn
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudaginn
8. mars kl. 19. Kennsludagar verða
8., 12. og 15. mars frá kl. 19-23. Nám-
skeiðið telst vera 16 kennslustundir.
Einnig verður haldið 8 kennslu-
stunda endurmenntunarnámskeið
dagana 20. og 21. mars frá kl. 19-22.
Á þessum námskeiðum verður notað
nýtt námsefni sem RKÍ gaf út fyrir
skömmu. Þátttaka í þessum nám-
skeiðum er heimil öllum 15 ára og
eldri. Námskeiðin verða haldin í Ár-
múla 34, 3. hæð.
Önnur námskeið sem eru haldin
hjá Reykjavíkurdeild RKÍ eru barn-
fóstrunámskeið, sálræna skyndi-
hjálp, slys á börnum og það hvernig
á að taka á móti þyrlu á slysstað.
Tekið skal fram að Reykjavíkurdeild
RKÍ útvegar leiðbeinendur til að
halda þessi námskeið fyrir þá sem
þess óska.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Vetrarfundur
Reykjavíkur-
deildar RKÍ
VETRARFUNDUR kvennadeildar
Reyjavíkurdeildar Rauða kross Ís-
lands verður haldinn í Gyllta salnum,
Hótel Borg, fimmtudaginn 8. mars
kl. 19.
Á dagskrá fundarins segir formað-
ur frá starfi deildarinnar, kvöldverð-
ur verður borinn fram og gestur
kvöldsins verður Jónína Benedikts-
dóttir íþróttafræðingur. Tilkynna
þarf þátttöku til kvennadeildar
Rauða krossins.